Fréttablaðið - 04.04.2003, Blaðsíða 11

Fréttablaðið - 04.04.2003, Blaðsíða 11
■ Afríka 11FÖSTUDAGUR 4. apríl 2003 blómstrandi páskar 299kr. Blómstrandi páskagreinar, 2 stk. 99kr. Ís & málsháttarpáskaegg (aðeins í Sigtúni og Akureyri) 699kr./stk. Páskabegoníur 699kr./stk. Páskakrýsi 399kr./stk. Páskaliljur í potti & Mónu páskaegg ÍS LE N SK A A U G LÝ SI N G A ST O FA N /S IA .I S B LO 2 07 26 04 /2 00 3 FERÐAMÁL Nýtt ferðakort sem sýn- ir svæðið frá Snæfellsnesi suður um Reykjanes og austur um að Skaftafelli er komið út. Einnig sýnir kortið drjúgan hluta há- lendisins og er í mælikvarðanum 1.250.000. Meðal nýjunga má nefna að við helstu ferðamanna- staði eru þjónustutákn svo auð- velt er fyrir ferðamenn að velja sér áfangastað með tilliti til þeirrar þjónustu sem sóst er eft- ir. Á kortinu eru yfir sex þúsund örnefni og allar almennar stað- fræðiupplýsingar. Þá er að finna hæðarskyggingu og 50 metra hæðarlínubil. Á því er meðal ann- ars að finna vegi, veganúmer, vegalengdir og bensínafgreiðsl- ur. Merkingar eru fyrir helstu staði þar sem þjónusta er í boði fyrir ferðamenn, s.s. gisting, tjaldstæði, sundlaugar, golfvellir og svo framvegis. Á kortinu er enn fremur að finna upplýsingar um söfn, friðlýstar minjar, upp- lýsingamiðstöðvar, hringsjár, bæi í byggð, eyðibýli og rústir svo eitthvað sé nefnt. Skýringar eru á ensku, frönsku og þýsku auk íslensku. ■ MANNFALL Í BORGARASTRÍÐI Að minnsta kosti 440 óbreyttir borg- arar hafa látið lífið í átökum Hutu-skæruliða og hersveita rík- isstjórnarinnar í Búrúndí síðan í janúar, að sögn óháðu útvarp- stöðvarinnar APR. Borgarastríð hefur ríkt í landinu í níu og hálft ár. HUNGURSNEYÐ YFIRVOFANDI Bann við flutningi búfénaðar til að koma í veg fyrir frekari út- breiðslu gin- og klaufaveiki í Mósambík hefur orðið til þess að auka til muna hungursneyðina í landinu. Fátækir bændur selja gjarnan búfénað til þess að kaupa matvæli. Hungursneyð blasir nú við hjá um einni og hálfri milljón landsmanna vegna þurrka. Hjálparstarfsmenn í Simbabve segja að stjórnvöld hafi lagt land- búnað í landinu í rúst með því að gera bóndabýli upptæk og úthluta þeim til stuðningsmanna sinna. Land sem eitt sinn var brauðkarfa nærliggjandi landa býr nú við það að sjö milljónir horfa fram á hungursneyð. Matargjafir til landsins hafa ekki skilað sér sem skyldi. Áætlað er að 200.000 tonn af matvælum hafi verið seld á svarta markaðn- um en ekki verið dreift eins og til var ætlast. Stjórnvöld í Malaví seldu mat- vælabirgðir sínar árið 2001. Á sama tíma bentu Sameinuðu þjóð- irnar á að útlit væri fyrir mat- vælaskort í fyrirsjáanlegri fram- tíð. Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn hefur greint frá því að spilling í stjórnkerfi Angóla kosti landið meira en nemur upphæðunum sem farið hefur verið fram á í að- stoð. Eyðni skæðasti ógnvaldur- inn Þrátt fyrir spillingu og upp- skerubrest er eyðnifaraldurinn skæðasti ógnvaldurinn og helsta ástæðan fyrir viðvarandi hungri, segir Richard Ragan, svæðisstjóri Matvælahjálpar Sameinuðu þjóð- anna í Sambíu. „Faraldurinn gegnsýrir allt sem þú gerir í þess- um heimshluta,“ segir hann. Ragan segir eyðni draga úr framleiðslu, auka fátækt og draga úr möguleikum stofnana til að koma fólki til hjálpar. Hann bend- ir á að af 40 afrískum verkfræð- ingum sem hafi verið ráðnir til að líta á vegi og hjálpa við skipulagn- ingu matvæladreifingar séu að- eins fjórir á lífi. Ef það á að takast að ráða bug á hungri í Afríku verða Sameinuðu þjóðirnar og afrískar ríkisstjórnir að ráðast til atlögu gegn eyðnifar- aldrinum af fullum krafti, segir Ragan. „Ef þau gera það ekki, á eyðni eftir að útrýma heimsálf- unni að mestu.“ ■ FRJÓSÖM LANDSVÆÐI ERU EKKI NÓG Víða eru það ekki landslag og veðurfar sem stuðla mest að hungursneyð. Skortur á fólki til að vinna í landbúnaði hefur orðið sífellt meiri samhliða því að fleiri hafa orðið eyðnifaraldrinum að bráð. NÝTT FERÐAKORT Magnús Guðmundsson, forstjóri Landmælinga Íslands, afhenti Siv Friðleifsdóttur umhverf- isráðherra fyrsta kortið á blaðamannafundi sem haldinn var í tilefni af útgáfunni. Er kortinu ætlað að taka við af gömlu Aðalkortum Landmælinga Íslands en þau voru níu talsins. Nýtt ferðakort: Rýnt í Vesturland og Suðurland

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.