Fréttablaðið - 04.04.2003, Blaðsíða 21

Fréttablaðið - 04.04.2003, Blaðsíða 21
12 4. apríl 2003 FÖSTUDAGUR ÍRAK Talsverðrar óánægju gætir meðal breskra hermanna með framgöngu Bandaríkjamanna í innrásinni í Írak, að sögn breska dagblaðsins The Times. Blaðið hefur eftir breskum herforingj- um að bandarísku hermennirnir séu of harðhentir og taki ekki nægjanlegt tillit til mannslífa. Mannfall meðal óbreyttra borgara fyrir hendi bandarískra hermanna hefur farið fyrir brjóstið á Bretum. Þar ber hæst atvikið þegar bandarískir her- menn skutu ellefu óbreytta íraska borgara til bana við vegatálma. Blaðamaður dagblaðsins Wash- ington Post sagði yfirmenn her- mannanna sem skutu á fólkið hafa öskrað á undirmenn sína að þeir hefðu drepið fólk vegna þess að þeir hefðu varað það of seint við til þess að því gæfist færi á að stöðva. Að sögn The Times þykir bresku herforingjunum atvikið til marks um að bandarískir her- menn leggi annað hvort ekki nægjanlega áherslu á að verja óbreytta borgara eða að þeir séu ekki undir það búnir. Þeir vísa til þess að reynsla Breta frá Norður- Írlandi og friðargæsluverkefnum víða um heim hafi undirbúið þá fyrir að eiga við almenning þrátt fyrir árásir borgaralega klæddra manna. Bretar eru einnig svekktir út í Bandaríkjamenn vegna árása á eigin hersveitir sem hafa kostað þrjá breska hermenn lífið. Að auki segja þeir bandarískar her- sveitir hafa skilið Breta eftir strax í upphafi innrásarinnar þeg- ar hersveitir beggja landa áttu að vinna saman. ■ Herforingjar segja aðferðir Bandaríkjahers of harkalegar: Bretar ósáttir við Bandaríkjamenn LÉTTLYNDUR BRESKUR HERMAÐUR Breskum hermönnum hefur verið fyrirskipað að taka léttar húfur fram yfir hjálmana þegar þeir eiga leið um borgir og bæi. Þannig eiga þeir að virka vinalegri en ella. SKEMMDARVERK Tölvuþrjótar brutust inn á vef Al-Jazeera í síðustu viku og sendu alla gesti heimasíðu stöðvarinnar inn á enska vefsíðu með mynd af bandaríska fánanum. Sjónvarpsstöðin Al- Jazeera: Vinsælli en kynlíf NEW YORK, AP Þó heimasíða arab- ísku sjónvarpsstöðvarinnar Al- Jazeera hafi legið meira og minna niðri að undanförnu er hún engu að síður ein sú fjölsóttasta á ver- aldarvefnum þessa dagana. „Al- Jazeera“, með mismunandi staf- setningu, hefur jafnframt verið algengasta leitarorðið á fjölmörg- um leitarvélum og þar með slegið út orðið „sex“. Sjónvarpsstöðin Al-Jazeera vakti athygli umheimsins þegar hún birti myndir af bandarískum stríðsföngum í haldi Íraka sem bandarískar sjónvarpsstöðvar vildu ekki sýna. Stöðin sendir út frá smáríkinu Katar við Persaflóa en þykir fremur sjálfstæð og óháð í fréttaflutningi í samanburði við aðra arabíska fjölmiðla. ■ DRÁP ÓBREYTTRA BORGARA FOR- DÆMD Abdullah II Jórdaníukon- ungur fordæmdi dráp á saklausu fólki í Írak. Kóngurinn þótti óvenju berorður þegar hann sagðist finna „til sársauka og sorgar þegar við fylgjumst með sífellt auknum fjölda píslarvotta meðal óbreyttra íraskra borgara. Sem faðir finn ég sársauka hverrar íraskrar fjölskyldu.“ Stjórn Abdullah hefur verið gagnrýnd heima fyrir að and- mæla ekki innrásinni í Írak. HÆTTULEGAR MATARGJAFIR Barnahjálp Sameinuðu þjóðanna hefur gagnrýnt að matarpakkar sem bandarískir og breskir her- menn hafa dreift til íraskra barna séu í sama lit og smá- sprengjur sem varpað er á Írak. Forráðamenn Barnahjálparinnar óttast að börn geri ekki greinar- mun á sprengjunum og matar- pökkunum með skelfilegum af- leiðingum. ■ Innrás í Írak/ Örfréttir AÐ SKURÐAÐGERÐ LOKINNI Nokkur tími leið frá því skurðaðgerð á þessu íraska barni lauk áður en það var flutt á aðra sjúkradeild. Barnið er eitt þeirra sem slösuðust í loftárásum á Al Hillah. FAÐIR HUGGAR SON SINN Abbas Kissim missti annan handlegg sinn í loftárás á Al Hillah. Sonur hans særðist einnig í loftárásinni. Starfsmenn sjúkrahússins segja að 33 hafi látið lífið í árásunum og yfir 300 særst. MEÐ SPRENGJUR Á LOFTI Harðar árásir hafa verið gerðar á íraskar hersveitir um allt land. Þessi Kúrdi heldur tveimur íröskum sprengjum á lofti. Í bakgrunni má sjá eyðilagt farartæki. HART BARIST Í KARBALA Harðir bardagar hafa verið háðir við Kar- bala. Aðfaranótt miðvikudags réðust Bandaríkjamenn til atlögu og notuðu þungar vélbyssur á borð við þá sem hér mótar fyrir. STÖÐVUM INNRÁSINA Í ÍRAK Sumir andstæðingar innrásar í Írak velkjast ekki í vafa um hverjar séu ástæðurnar fyrir innrás. Þessu spjaldi var haldið á loft í mótmælagöngu í Róm. „Stöðvum innrás- ina í Írak“ er yfirskrift spjaldsins. MEIRI RÓ Í UMM QASR Breskir hermenn segjast hafa fundið fyrir því snemma í vikunni að íbúar bæja undir þeirra stjórn væru farnir að taka þeim vel. Í kjölfarið viku þungu hjálmarnir fyrir léttum húfum. PAKISTANAR MÓTMÆLA INNRÁS Bandaríkjamenn hafa haldið því fram að tengsl væru á milli Saddams Husseins og al Kaída-hreyfingar Osama bin Ladens. Engar afgerandi sannanir hafa fengist fyrir því. Pakist- anskir andstæðingar innrásar steypa þeim þó saman í eina hreyfingu.

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.