Fréttablaðið - 04.04.2003, Blaðsíða 1

Fréttablaðið - 04.04.2003, Blaðsíða 1
Suðurgötu 10, 101 Reykjavík — sími 515 7500 Föstudagurinn 4. apríl 2003 Tónlist 18 Leikhús 18 Myndlist 18 Bíó 20 Íþróttir 15 Sjónvarp 22 KVÖLDIÐ Í KVÖLD ÞINGMENNSKA Barist við jaxla VORIÐ Bjartsýni og gleði einkenna vorið FÖSTUDAGUR 80. tölublað – 3. árgangur bls. 26 MYNDLIST Tvíeggjað farartæki bls. 31 TÓNLEIKAR Eivør Pálsdóttir og hljóm- sveit eru með tónleika í Kaffileik- húsinu klukkan 21. Á tónleikunum verða flutt lög eftir Eivøru auk gamallar færeyskrar tónlistar og nokkurra íslenskra laga. Færeyskir og íslenskir tónar FUNDUR Stígamót standa fyrir opnum fundi með frambjóðendum flokk- anna í Hlaðvarpanum klukkan 12. Á dagskrá verða málefni kynjanna með áherslu á kynferðisofbeldi í sinni víðustu mynd. Rætt um kynferðisofbeldi AFMÆLI Finnur Arnar opnar mynd- listarsýningu í 12 Tónum á Skóla- vörðustíg klukkan 16 í tilefni fimm ára afmælis verslunarinnar. Sýn- ingin ber yfirskriftina Að vera eða að þykjast ekki vera. Klukkan 17 mun hljómsveitin Kitchen Motors leika í versluninni. Myndlist og lifandi tónlist bls. 34 REYKJAVÍK Suðlæg átt, 5-10 m/s og súld öðru hverju eftir hádegi. Hiti 5 til 8 stig. VEÐRIÐ Í DAG + + + + VINDUR ÚRKOMA HITI Ísafjörður 5-10 Rigning 7 Akureyri 10-15 Rigning 5 Egilsstaðir 10-15 Slydda 5 Vestmannaeyjar 10-15 Þokusúld 7             !  "  #$%&'(  )"((**+  ) ,  -*(.* / 0-$%&'1   (-* ( ! ) RÁN „Rannsóknardeildin hefur ýtt flestum málum til hliðar og öllu er tjaldað til að leysa þetta mál. Okkur eru að berast vísbendingar frá ýms- um stöðum á landinu, bæði frá lög- reglu sem fólkinu í landinu,“ sagði Kristján Ólafur Guðnason, yfirlög- regluþjónn hjá lögreglunni í Hafn- arfirði, um gang rannsóknarinnar vegna ránsins í Sparisjóði Hafnar- fjarðar. Þrátt fyrir það hversu mik- ið afl hefur verið sett í málið hefur enginn verið handtekinn. Umfangsmikil leit stendur yfir að ræningjanum, en vitað er að hann er ungur. Margar vísbend- ingar hafa borist lögreglunni í Hafnarfirði og margir verið kall- aðir til. Bankaræninginn kom vopnaður hnífi inn í Sparisjóðinn og náði öll- um peningum í skúffu eins gjald- kerans. Kristján segir ránið alvar- legt en telur ekki spilla rannsókn- inni þó hún taki nokkurn tíma. Grunur leikur á því að banka- ræninginn hafi flúið á bíl. Eftir að starfsmenn Sparisjóðsins til- kynntu um ránið voru lögreglu- menn fljótir á staðinn, eða í kringum tvær mínútur. Ólíklegt er að maðurinn hafi komist af vettvangi á hlaupum. Kristján segir leitarhunda hafa rakið slóð ræningjans og að hún hafi endað við Bónusverslun skammt frá bankanum. Bankaræninginn var með hulið andlit þegar hann réðist til atlögu í sparisjóðnum. Því sést ekki hver er þar á ferð. Karl Karlsson, skósmiður í Skó- aranum í næstu byggingu við bank- ann, sagði að um sama leyti og rán- ið var framið hafi piltur komið inn til sín og viljað fá bíða. Lýsing Karls passar við þá mynd sem lög- reglan gefur af ræningjanum. Þrátt fyrir það taldi Karl ekki víst að hann myndi þekkja manninn á mynd. Ekki hefur fengist uppgefið, hvorki hjá lögreglu né Sparisjóðn- um, hversu hárri upphæð banka- ræninginn náði. kolbrun@frettabladid.is Ræninginn ófundinn Rannsóknardeild lögreglunnar í Hafnarfirði reynir allt til að finna þann sem rændi Sparisjóð Hafnarfjarðar. Vísbendingar hafa borist lögreglu frá ýmsum stöðum víða um land. Enginn verið handtekinn. BANKARÆNINGINN Víðtæk leit sendur nú yfir að manninum. ÍRAK Bandarískir hermenn komust að útjaðri Bagdad síðla í gær. Sprengingar heyrðust við alþjóða- flugvöllinn rétt fyrir utan borgina þar sem bandarískar og íraskar hersveitir börðust um yfirráðin. Donald Rumsfeld, varnarmálaráð- herra Bandaríkjanna, sagði banda- ríska hermenn hafa náð nokkrum jaðarsvæðum Bagdad á sitt vald. Íraskir ráðamenn sögðust vera að vinna stríðið. Rafmagn fór af borginni eftir að mikil sprenging kvað við að nætur- lagi að íröskum tíma. Bandaríska herstjórnin neitaði því að árásir þeirra hefðu beinst gegn rafveitu borgarinnar. Bardagar halda áfram víðs vegar í Írak. Írakar veita harða mótspyrnu í og við nokkrar borgir sem bandarískar og breskar hersveitir reyna að ná á sitt vald. Bæði Bandaríkjamenn og Bret- ar hafa viðurkennt notkun klasa- sprengja í stríðinu í Írak. Notkun slíkra sprengja hefur verið harka- lega gagnrýnd þar sem þær þykja ónákvæmar og líklegar til að valda mannfalli meðal óbreyttra borg- ara. ■ FASTEIGNIR Forystumenn í Félagi fasteignasala vilja að meiri kröfur séu gerðar til þeirra sem oft höndla með aleigu fólks í kaupum og sölu á fasteignum. Fasteignasalar: Áhyggjur af fasteigna- sölum FASTEIGNIR Félag fasteignasala hélt fund í fyrrakvöld þar sem mennt- unarmál fasteignasala voru meðal annars á dagskrá. Forystumenn fasteignasala hafa áhyggjur af reglum sem í gildi eru varðandi starfsleyfi og löggildingu fast- eignasala og þykir sem kröfur séu oft ekki nægar. Benda þeir á nýleg dæmi um ófagleg vinnubrögð ákveðinna fasteignasala máli sínu til stuðnings, vinnubrögð sem jafn- vel hafa endað í fjárhagslegri skelfingu viðskiptavinanna: „Við viljum auka orðspor stétt- arinnar og höfum ákveðnar áhyggjur,“ segir Björn Þorri Vikt- orson, formaður Félags fasteigna- sala, sem var ánægður með fundinn í fyrrakvöld þar sem ein- ing ríkti um að breytinga væri þörf í þessum efnum. Samkvæmt gild- andi reglum þurfa menn aðeins að ljúka einu námskeiði og starfa síð- an í 30 daga undir handleiðslu lög- gilts fasteignasala til að geta opnað eigin stofu og farið að höndla fjár- muni fólks, oft aleiguna. Námskeið fasteignasalanna tekur tvö ár og vinna þeir samhliða náminu. Kennt er tvö kvöld í viku og að auki á laugardögum. Að því loknu eru menn færir í flestan sjó: „Við verðum að gera meiri kröf- ur og það gleðilega er að dóms- málaráðuneytið er sammála þeirri skoðun okkar,“ segir Björn Þorri Viktorsson. ■ NOKKRAR STAÐREYNDIR UM MEÐALLESTUR FÓLKS Á ALDRINUM 12 TIL 80 ÁRA Á HÖFUÐBORGARSVÆÐINU ER 73% SAMKVÆMT FJÖLMIÐLAKÖNNUN GALLUP Í FEBRÚAR 2003. Fr é tt a b la ð ið M o rg u n b la ð ið Meðallestur 25 til 49 ára samkvæmt fjölmiðlakönnun Gallup frá febrúar 2003 26% D V 90.000 eintök 73% fólks lesa blaðið Hvaða blöð lesa 25 til 49 ára íbúar á höfuðborgar- svæðinu á föstudögum? 68% 77% ➜ ➜ ➜ ➜ Hart barist í og við írösku höfuðborgina: Snaran hert um Bagdad BANDARÍKJAHER SÆKIR FRAM Skriðdrekar Bandaríkjahers sjást hér sækja fram í Írak. Að sögn bandarískra heryfirvalda eru fremstu hersveitirnar komnar inn í ystu hluta Bagdad. AP /M YN D

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.