Fréttablaðið - 04.04.2003, Blaðsíða 19

Fréttablaðið - 04.04.2003, Blaðsíða 19
Þegar ég var lítil hópuðustkrakkar saman og stofnuðu til ýmissa leikja. Í öllum hópum fann maður foringja. Við krufum það aldrei til mergjar af hverju einn var meiri for- ystusauður og oft reyndu minni spámenn að ná hylli á leik- vellinum og gripu til allra ráða sem tiltæk voru, t.d. að mæta með nammipoka. Þetta kom í hugann þegar ég hlustaði á ræðu Davíðs á lands- fundi Sjálfstæðisflokksins á fimmtudaginn var. Einhvern tím- ann hefði ráðherrann kallað það sem þar var boðið á borð ósann- færandi yfirboð og ábyrgðarleysi. Sérstaklega ef jafnaðarmenn ættu í hlut. Ég upplifi foringja sem hefur ráðið ríkjum á leikvellinum, en nú er komin ný hörkustelpa í hverfið. Allir laðast að henni og vilja vera í liðinu hennar. Þá reynir kappinn að mæta með fulla vasa af nammi til að ná sínum fyrri vinsældum. Við jafnaðarmenn höfum á Al- þingi oft minnt stjórnarflokkana á loforðin fyrir síðustu kosningar. Minnt Framsóknarflokkinn á barnakortin, hækkun barnabóta og afnám tekjutenginganna. Við höfum ítrekað minnt sjálfstæðis- menn á svikin við eldri borgara. Fyrir síðustu kosningar var því lofað að afnema tekjutengingu líf- eyrisgreiðslna almannatrygginga til þeirra sem náð hefðu 67 ára aldri. Þeir sögðu að í stað grunn- lífeyris, tekjutengingar og heimil- isuppbóta ætti hver einstaklingur að fá tiltekin eftirlaun á mánuði sem ekki yrðu tekjutengd eða skert með nokkru móti en þetta reyndust innihaldslaus kosninga- loforð. Það er alveg sama hvernig þeir reyna að snúa sig út skattaum- ræðunni. Staðreyndirnar koma fram í þingskjali sem kom fram á næstsíðasta degi þingsins með svörum við spurningum sem ég bar fram í október. Það er alvar- legt umhugsunarefni að upplýs- ingar um dreifingu skattbyrðanna skuli ekki hafa legið á lausu í fjár- málaráðuneytinu. Að hátt á fimm- ta mánuð hafi tekið að vinna upp- lýsingarnar sem ég bað um. Hvernig er unnt að framkvæma réttláta skattapólitík ef maður veit ekki hvernig byrðarnar dreifast á bökin? Í svarinu er stað- fest það sem stjórnarandstaðan, verkalýðshreyfingin, félög eldri borgara og Öryrkjabandalagið hafa margsinnis áréttað. Að með því að lækka skattprósentu flatt er þeirri skattalækkun óréttlát- lega skipt sé ekkert annað að gert og skattfrelsismörk haldast jafn lág áfram. Í þessu margrædda svari sést að ríkið er búið að spara hátt á 8. milljarð króna í barnabótum í stað þess að auka stuðning við barna- fólk. Úr því má líka lesa að ójöfn skattbyrði heldur áfram þó 5 millj- örðum verði veitt til lækkunar skattprósentunnar. Þarna sést svart á hvítu að skattbyrði 18 millj- óna hjónanna hefur lækkað um 8 prósent meðan neðstu tekjuhóp- arnir hækkuðu um 5 til 7 prósent. Áfram á að lækka tekjuskatt flatt, lækka hátekjuskattinn, ekki hækka fjármagnstekjuskattinn, ekki hækka skattfrelsismörk, ekki hlusta á verkalýðshreyfing- una og enn á að lofa barnafólkinu að skila til baka því sem af þeim hefur verið tekið í lækkuðum barnabótum. ■ 20 4. apríl 2003 FÖSTUDAGUR Laugavegi 32 561 0075 Hagsæld á landsvísu Helsta misskipting auðs, ogdragbítur á tilveru byggða kringum landið, sameinast í hinu alræmda kvótakerfi. Frá því kvótakerfið var sett á fyrir 20 árum hefur þorskafli dregist sam- an úr 400 þúsund tonnum á ári, niður í tæp 180 þúsund tonn, þvert ofan í spár og fyrirheit. Nú er svo komið að þjóðarbúið er að verða af útflutn- ingsverðmætum, sem nema hálfri Kárahnjúkavirkjun á ári. Við þetta bætist, að skuldir sjávarútvegsins hafa meira en tvöfaldast, og nema nú um 230 milljörðum króna. Tugir milljarða af þessari skuldaaukn- ingu kemur til af því að ríkis- stjórnin heimilar framsal á kvóta, þessari stjórnarskrárvörðu sam- eign þjóðarinnar. Með blessun rík- isstjórnarinnar, og hagstæðum breytingum á skattalöggjöf, þá hafa einstaklingar, sem fengu út- hlutaðar aflaheimildir, snúið baki við útgerð og farið með hundruð, jafnvel þúsundir milljóna króna, skattfrjálst úr landi. Slæm staða sjávarútvegsins hefur áhrif á alla landsmenn. Þeg- ar sú staða hefur komið upp, hefur hagur sjávarútvegsins gjarnan verið réttur af með skerðingu á gengi krónunnar, sem aftur rýrði kaupmátt launafólks. Þrátt fyrir öll teikn, þá hefur ríkisstjórn Ís- lands ekkert lært af reynslu sinni af kvótasetningum. Nú er landbún- aður að verða ofurseldur sömu ör- lögum, og öll framleiðsla þar að verða bundin kvóta. Þessi þróun hefur haft gífurleg áhrif á þróun byggðar í landinu. Sjávarpláss sem eitt sinn iðuðu af lífi, eru ekki nema svipur hjá sjón nú. Undir- stöðuatvinnuvegur sjávarbyggða hefur verið seldur burt. Eina raunhæfa samlíkingin, sem mér dettur í hug til að fólk í Reykjavík skilji áhrifin á þessar byggðir, er þessi: Segjum að mat- vöruverslun yrði sett undir kvóta. Síðan myndu Akureyring- ar kaupa annan helminginn kvót- ans og Keflvíkingar hinn. Þannig að matvöruverslun legðist af í Reykjavík. Það er ekki ofsögum sagt, að slík breyting á grund- vallar þætti mannlífs hér myndi hafa áhrif á líf fólks. Í hugum Reykvíkinga er þessi röskun á lífi þeirra fjarstæðukennd, en í mörgum byggðalögum í kringum landið hefur sambærileg röskun þegar átt sér stað. Þessi röskun á búsetuskilyrðum úti á landi, hef- ur orðið til þess, að fólk leitar í auknum mæli inn á höfuðborgar- svæðið. Þessir fólksflutningar kalla á aukna fjárfestingu í bæj- arfélaginu sem flutt er til, og valda vannýtingu á fjárfesting- um sem fyrir eru, svo sem í gatnagerð, skóla og heilsugæslu. Því getur sala á kvóta frá Raufar- höfn á ísfisktogara sem gerður er út frá Akureyri haft bein áhrif á útgjöld ríkis, og þeirra bæjarfé- laga sem fólk hefur flúið til í leit að atvinnu. Afnám núverandi kvótakerfis, og upptaka nýs fiskveiðistjórn- unarkerfis eftir tillögum Frjáls- lynda flokksins, með tilheyrandi breytingu á sóknarmynstri frá sjávarbyggðum, mun færa lífs- viðurværi sjávarplássanna aftur til síns heima. Að þeirri breyt- ingu á kominni, mun almenn hag- sæld á Íslandi aukast til muna, og þær breytingar á skattaumhverfi einstaklinga sem Frjálslyndi flokkurinn styður, munu nýtast enn betur. ■ Kosningar maí 2003 SIGURÐUR INGI JÓNSSON ■ oddviti F-lista, Reykjavík norður, skrifar um kvótakerfið. Raunsæ leið til kjarabóta Sannast sagna átti ég ekki von áþví að stjórnarflokkarnir tveir gerðu sig seka um eins mikil yfir- boð og raun hefur orðið á. Fram- sókn reið á vað- ið, skelfingu lostin yfir slæm- ri útreið í skoð- anakönnunum, og bauð upp á skattalækkanir og aukin ríkisút- gjöld sem flokk- urinn segir sjálf- ur að komi til með að kosta fimmtán milljarða á ári. Sjálfstæðisflokkurinn bætti um betur og hækkaði tilboð sitt til kjósenda um væna fimm millj- arða. Það er svipuð upphæð og varið er til félagslegra ráðstafana í gegnum Félagsmálaráðuneytið á heilu ári. Þessir tveir flokkar, sem hafa verið afspyrnu nískir gagnvart láglaunafólki og millitekjuhópum á þeim átta árum sem þeim hefur verið treyst fyrir stjórnartaumun- um, lofa nú gulli og grænum skóg- um. Eða hvað? Gæti verið að lof- orð um skattalækkanir séu jafn- framt hótanir um lífskjaraskerð- ingu? Ef svo færi að hagvöxtur yrði ekki eins mikill og vonir okk- ar allra standa til, þá þýða þessar skattalækkanir annað tveggja, stórfelldan niðurskurð eða að kostnaður fyrir veitta þjónustu yrði tekinn beint, þ.e. með not- endagjöldum, skólagjöldum, sjúk- lingasköttum og öðrum álögum. Þessu verða ábyrgir stjórn- málaflokkar að svara; hvernig ætla þeir að bregðast við ef hag- vöxturinn veitir þeim ekki sjálf- krafa tækifæri til að efna kosn- ingaloforð sín? Hvar ætla þeir þá að skera niður eða hverjir verða rukkaðir? Þetta eru sjálfsagðar og eðlilegar spurningar. Í ljósi reynslunnar upplifa margir kosn- ingaloforð Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks sem hótanir um niðurskurð og gjaldtöku. Hverjar eru þá tillögur Vinstri- hreyfingarinnar græns framboðs? Þær ganga ekki út á skattalækkun heldur tilfærslu innan skattkerfis- ins. Við viljum auka ráðstöfunarfé þeirra sem hafa minnstar tekjur eða heyra til svokallaðra milli- tekjuhópa. Með öðrum orðum, við viljum bæta stöðu almennings í landinu. Það hyggjumst við gera með tilfærslu innan skattkerfisins og millifærslukerfisins, svo sem í barnabótum og húsnæðisbótum. Við leggjum einnig fram tillög- ur um hvernig við hyggjumst reisa húsnæðiskerfið við og þá sérstaklega bæta stöðu láglauna- og millitekjufólks til að kaupa eða leigja húsnæði. Stuðning við barnafjölskyldur viljum við stór- auka. Þar leggjum við áherslu á að leikskólagjöld verði felld niður í áföngum og komið verði í veg fyr- ir að efnahagur foreldra ráði því hvort börn geti stundað íþróttir eða sótt tónlistartíma. Þetta eru dæmi um áherslur okkar á sviði velferðarmála. Við erum staðráðin í því að efla vel- ferðarkerfið á Íslandi. Það gerum við ekki í neinum heljarstökkum. Þvert á móti þá setjum við fram tillögur sem ganga upp, segjum hvernig við ætlum að afla fjárins og með hvaða hætti við hyggjumst framkvæma loforð okkar. Kosningastefna Vinstrihreyf- ingarinnar græns framboðs mun ekki fá falleinkunn eins og kosn- ingastefnuskrár Framsóknar og Sjálfstæðisflokks eru þessa dag- ana að fá frá greiningardeildum bankanna. Og eitt mega menn vita, að ef við verðum svo lánsöm að ytri skilyrði verða hagstæð, eins og þau hafa verið undanfarin ár, með miklum afla og hagstæðu mark- aðsverði, þá munum við láta allan þann ávinning sem þjóðinni sam- eiginlega áskotnast, renna til þeir- ra hópa sem ríkisstjórnir undir forræði Sjálfstæðisflokksins hafa fryst úti allar götur frá 1991. ■ Kosningar maí 2003 ÖGMUNDUR JÓNASSON ■ þingmaður Vinstri- hreyfingarinnar græns framboðs skrifar um skattalækkanir. Kosningar maí 2003 RANNVEIG GUÐMUNDS- DÓTTIR ■ alþingismaður skrif- ar um loforð Sjálf- stæðisflokksins á ný- afstöðnum landsfundi. Með fulla vasa af nammi „Slæm staða sjávar- útvegsins hef- ur áhrif á alla landsmenn. „Hvar ætla þeir þá að skera niður eða hverjir verða rukkaðir? „Við höfum ítrekað minnt Sjálfstæðis- menn á svikin við eldri borgara.

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.