Fréttablaðið - 04.04.2003, Blaðsíða 18

Fréttablaðið - 04.04.2003, Blaðsíða 18
19FÖSTUDAGUR 4. apríl 2003 hvað?hvar?hvenær? 1 2 3 4 5 6 7 APRÍL Föstudagur FÓTBOLTI Um síðustu helgi skrifaði Paolo Maldini, fyrirliði AC Milan, undir tveggja ára samning við fé- lagið. Maldini hefur verið á mála hjá Milan frá 16 ára aldri en þeg- ar nýi samningurinn rennur út varður hann orðinn 37 ára. Maldini hefur verið afar far- sæll leikmaður hjá Milan. Sex sinnum hefur hann orðið ítalskur meistari, þrisvar Evrópumeistari, tvisvar heimsmeistari og einu sinni bikarmeistari. Maldini er einnig leikjahæstur Ítala með 127 leiki. Fjórtán ára landsliðsferli hans lauk eftir heimsmeistarakeppnina í fyrra en Maldini lék alla 23 leiki Ítalíu í fjórum lokakeppnum HM. Cesare Maldini, faðir Paolo, lék með Milan í tólf ár. Hann kom til félagsins frá Triestina árið 1954 og fór til Torino árið 1966. Hann varð síðar þjálfari hjá Foggia, Ternana, Parma og ítalska U21- liðinu áður en hann tók við A- landsliðinu árið 1997. Maldini þjálfaði Milan frá 1998 til 2001 og landslið Paragvæ fram yfir loka- keppni HM í fyrra. ■  18.00 Sýn Sportið með Olís. Fjallað er um hel- stu íþróttaviðburði heima og erlendis  18.30 Sýn Football Week UK. Nýjustu fréttirnar úr enska boltanum.  19.00 Sýn Trans World Sport. Íþróttir um allan heim.  20.00 Sýn 4-4-2. Snorri Már og Þorsteinn J. fjalla um enska og spænska fótbolt- ann, Meistaradeildina og allt mark- vert sem gerist í þessum hasarleik tuttugu og tveggja leikmanna. Þetta er þáttur fyrir þá sem vita allt um fót- bolta og líka þá sem vita lítið sem ekkert  23.00 Sýn 4-4-2 (e.) FERILL PAOLO MALDINI (26. júní 1968) AC Milan 1985-2003 501 25 Ítalía 1988-2002 126 7 Fyrsti deildarleikur Udinese - AC Milan 1-1, 20. janúar 1985 Fyrsti landsleikur Júgóslavía - Ítalía 1-1, 31. mars 1988 FERILL CESARE MALDINI (5. febrúar 1932) AC Milan 1954-1966 347 60 Ítalía 1961-1963 14 - Fyrsti deildarleikur AC Milan - Triestina 4-0, september 1954 Fyrsti landsleikur Ítalía - Norður-Írland 3-2, 25. apríl 1961 Paolo Maldini: Kjölfestan í liði AC Milan MALDINI Paolo Maldini, fyrirliði AC Milan, fram- lengdi samning sinn við félagið til 2005. bekkinn. En Sheringham átti eftir að skila ómetanlegu starfi fyrir United því þegar hann kom inn á í tveimur af stærstu leikjum fé- lagsins frá upphafi skipti hann sköpum fyrir liðið og átti stóran þátt í að tryggja liðinu þrennuna frægu. Sheringham kom inn á sem varamaður í úrslitaleik ensku bik- arkeppninnar gegn Newcastle og skoraði strax eftir 96 sekúndur. Því næst lagði hann upp annað mark United fyrir Paul Scholes og var í kjölfarið valinn maður leiks- ins. Sheringham átti eftir að endur- taka leikinn því í úrslitaleik Meist- aradeildarinnar gegn Bayern München kom hann inn á sem varamaður, skoraði jöfnunarmark United og lagði upp sigurmarkið ógleymanlega fyrir Ole Gunnar Solskjær. Þar með hafði marka- hrókurinn þaggað niður í öllum óánægjuröddum og um leið öðl- aðst þá virðingu sem hann verð- skuldaði. Næsta leiktíð var Sheringham erfið. Hann fékk aðeins fjórtán sinnum að byrja inn á í liði United og skoraði lítið. Sú næsta, sem jafnfnframt var hans síðasta með United, var aftur á móti frábær. Sheringham festi sig í sessi sem aðalframherjinn í liði United, skoraði 22 mörk fyrir liðið í öllum keppnum og var kjörinn leikmað- ur ársins í úrvalsdeildinni, eitt- hvað sem fáum hefði dottið í hug nokkrum árum áður. Eftir að Sheringham sneri aft- ur á White Hart Lane hefur hann gert góða hluti en nú hillir undir endalok hans hjá félaginu. Samn- ingur hans rennur út eftir þessa leiktíð og honum hefur verið til- kynnt að samningur hans verði ekki endurnýjaður komist félagið ekki í Evrópukeppnina. Sheringham getur samt sem áður vel við unað. Ferill hans hef- ur verið afar farsæll. Yfir 300 deildarmörk á ferlinum, þrennan fræga með United og fjöldi lands- liðsmarka fyrir England í gegnum árin sanna það. ■

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.