Fréttablaðið - 04.04.2003, Blaðsíða 28

Fréttablaðið - 04.04.2003, Blaðsíða 28
29FÖSTUDAGUR 4. apríl 2003 MS-Stoðmjólk er mjólk sem ætluð er börnum frá 6 mánaða til 2 ára aldurs. Hún var þróuð af Mjólkursamsölunni að beiðni og í samvinnu við samstarfshóp um næringu ungbarna.* Nýja Stoðmjólkin er unnin úr íslenskri mjólk og er líkari móðurmjólk en nýmjólkin og tekur samsetning hennar sérstaklega mið af næringar- þörfum ungra barna hér á Íslandi. Hún hentar vel til notkunar samhliða brjóstagjöf og mælt er með áframhaldandi brjóstagjöf svo lengi sem hugur stendur til hjá móður. Mælt er með notkun Stoðmjólkur í nýjum ráðleggingum Manneldisráðs og Miðstöðvar heilsuverndar barna um næringu ungbarna. Stoðmjólkin er m.a. járnbætt og er að mati sérfræðinga talin tryggja næringarbúskap barna mun betur en nýmjólk. Próteinsamsetning hennar virðist henta ungbörnum betur en prótein- samsetning þurrmjólkurafurða sem unnar eru úr mjólk úr erlendum kúakynjum. Stoðmjólkin er jafnframt hentugri þar sem hún er tilbúin til drykkjar. Nánari upplýsingar um næringu ungra barna fást hjá fagfólki ung- og smábarnaverndar og heilsugæslu. *Samstarfshópur um næringu ungbarna starfar á vegum Manneldisráðs, Landlæknisembættisins, barnalækna við Landspítala- háskólasjúkrahús, félags barnahjúkrunarfræðinga og félags heilsugæsluhjúkrunarfræðinga. Í starfshópnum sátu fulltrúar ofangreindra aðila auk sérfræðinga frá Miðstöð heilsuverndar barna og rannsóknarstofu í næringarfræði við Háskóla Íslands og Landspítala- háskólasjúkrahús. Einnig fékk málið stuðning barnalækna í ung- og smábarnavernd. FYRIR ÁRA H V ÍT A H Ú S IÐ / S ÍA barnsins sto› og stytta STO‹MJÓLK byggja nýjan skóla strax. Reynd- ar fékk ég spurnir af því ekki alls fyrir löngu að samþykkt hafi ver- ið að veita fjármagni í byggingu fyrir þetta hverfi. En það hefur verið sagt áður og ég trúi því ekki fyrr en ég sé framkvæmdir hefjast,“ segir Aðalbjörg. Ýmislegt hefur batnað Aðalbjörg segir að áður hafi hún búið í Vesturbænum og sótt þjónustu til Heilsugæslu miðbæj- ar. „Fín bílastæði eru undir heilsugæslunni en þegar ég ætlaði að borga mig út þurfti að fara upp tröppu þannig að bílastæðin nýtt- ust mér ekki neitt. Nú er ég kom- in í Grafarvoginn þar sem er glæ- ný heilsugæslustöð og aðgengi er mjög gott í alla staði. Áður en stelpan byrjaði í skóla var hún á leikskóla í Víkurhverfi. Þar var allt mjög gott hvað aðgengi varð- ar, það var eitt þrep þegar hún byrjaði en það var lagað fljótlega og rafmagn sett í hurðina. Helst er vandamál með bílastæði. Marg- ir eru með P-merki í bílum. Bæði þeir sem eru í hjólastól og þeir sem eiga erfitt með gang. Tvær breiddir af bílastæðum væri mjög góð lausn. Sá sem er í hjólastól þarf rými til að komast inn og út úr bílnum. Mér er sama þó ég fái stæði lengra í burtu, ef ég get bara lagt og verið örugg um að komast inn í bílinn aftur. Allt í sambandi við aðgengi fyrir fatlaða hefur lagast til muna, í það minnsta hérna í Reykjavík. Líka ef fólk hringir og lætur vita af vanköntum hvað að- gengi fatlaðra varðar, þá er mál- unum oftast kippt í liðinn. Ég skil vel að fólk sé ekki alltaf að velta þessu fyrir sér. Ég vil því benda á þessa hluti. Frekar en að hver sitji í sínu horni og tuði, það lagast ekkert við það. Yfirleitt eru allir boðnir og búnir til að bæta úr því sem upp á vantar,“ segir Aðal- björg. hrs@frettabladid.is KORPUSKÓLI Í skólanum er slæmt aðgengi fyrir fatlaða. Allt í sambandi við aðgengi fyrir fatlaða hef- ur lagast til muna, í það minnsta hérna í Reykjavík. Líka ef fólk hringir og lætur vita af vanköntum hvað að- gengi fatlaðra varðar þá er málunum oftast kipp í liðinn. ,, NUDD „Við erum að ræða við lögmenn okkar um þessa heim- sókn Íslands í bítið,“ segir Gunnar Jónsson, eigandi nuddstofunnar X-nudd, um myndskeið sem morgunþátturinn Ísland í bítið sýndi þar sem starfsmaður þátt- arins fór inn á nuddstofuna með leynimyndavél innanklæða. Gest- inum var vísað inn til nuddara sem bauð þjónustu sína með þeim orðum að erótíska nuddið væri ekki fyrir þá sem þjáðust af vöðvabólgu. Markmiðið með nuddinu væri kynferðisleg full- næging. Myndir frá heimsókninni voru sýndar á þriðjudagsmorgun en í gærmorgun heimsótti þáttur- inn vændiskonu þar sem leyni- myndavélin var með í för. Gunnar framkvæmdastjóri segist reka stofuna ásamt Birnu Pálsdóttur í Mosfellsbæ, sem skráð er eigandi lénsins xnudd.is. Hann segir að þar eigi sér ekkert ólögmætt stað en heimsókn sjón- varpsstöðvarinnar hafi verið sið- laus og að sínu mati ólögleg. Hann segist leggja ríka áherslu á það við starfsstúlkur sínar að þær leyfðu ekki viðskiptavinum að snerta sig. „Hjá okkur er ekkert vændi leyft,“ segir hann. ■ ÍSLAND Í BÍTIÐ Fóru með leynimyndavél á fund nuddara og vændiskvenna. Eigendur X-nudd óánægður með sjónvarpsþátt: Ræða leynimyndavél við lögmenn

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.