Fréttablaðið - 07.05.2003, Síða 8
8 7. maí 2003 MIÐVIKUDAGUR
Saltið og sárið
Hefðum átt að skora fleiri mörk.
Gunnlaugur Jónsson, fyrirliði Skagamanna,
eftir 4-1 sigur á KR. DV, 5.maí.
Herforinginn
Davíð stóð heill á bak við
ákvörðun um frelsi Íraka.
Jón Gunnar Hannesson læknir.
Morgunblaðið, 5. maí.
Nei, láttekkisona
Stjórnmál snúast
um völd og það er
ekki sama hvernig
með þau völd er
farið.
Ingibjörg Sólrún
Gísladóttir.
DV, 5. maí.
Orðrétt
Mánudaga
til Föstudaga
Laugardaga kl: 12:00 til 16:00
Opnunartími í sumar:
Sími: 514-4407
kl: 13:00 til 18:00
ALDRAÐIR „Okkur finnst að í jafn
stórum bæ eins og Selfoss er
vanti einhvers konar heimili
með þjónustu fyrir aldraða,“
segir Sólrún Tryggvadóttir, for-
maður Kvenfélags Selfoss.
Kvenfélagið sendi bæjarstjórn
Árborgar, Heilbrigðis- og trygg-
ingamálaráðherra og þingmönn-
um Suðurlands bréf varðandi
áhyggjur félagskvenna af stöðu
aldraðra á Selfossi.
Sólrún segir að á Selfossi séu
íbúðir fyrir aldraða í Grænu-
mörk. Þar sefur vörður um næt-
ur en enga þjónustu er að fá þar,
ekki frekar en í venjulegri
blokkaríbúð. Svo er hjúkrunar-
heimilið Ljósheimar sem er fyr-
ir fólk sem þarf algjöra umönn-
un. Sólrún segir að eitthvert
millistig vanti. „Elliheimili eru á
Eyrarbakka og Stokkseyri, sem
eru í sama bæjarfélagi og Sel-
foss, en okkur finnst það ekki
duga. Ef til dæmis annað hjóna
þarf á þjónustu að halda verður
það að flytja í annan bæ og getur
makinn átt erfitt með heimsókn-
ir. Þeir sem fæddust í Rangár-
vallasýslu eru jafnvel settir á
elliheimili á Hellu eða Hvolsvelli
þó þeir eigi enga ættingja þar að
lengur,“ segir Sólrún. ■
FRÁ SELFOSSI
Kvenfélagið ekki sátt við aðstöðu aldraðra
á staðnum.
Selfoss:
Vantar þjónustu
fyrir aldraða
FYRNINGARLEIÐIN „Vinnslustöðin
hefur verið tekin sem dæmi um
fyrirtæki sem færi á hausinn ef
fyrningarleiðin svokallaða væri
farin. Endurskoðandi Vinnslu-
stöðvarinnar er fenginn til að
votta að fyrningarleiðin sé vond
og fyrirtækið fari á hausinn ef sú
leið er farin,“ segir Tryggvi Agn-
arsson, lögfræðingur og fram-
bjóðandi Nýs afls.
Tryggvi segir að hann hafi
skoðað síðasta ársreikning
Vinnslustöðvarinnar því fyrir-
tækið sé á markaði
og þar sjái hann að
fyrirtækið sé allt
öðruvísi en því er
lýst í skýrslu end-
u r s k o ð a n d a n s .
Hann segir eignir
félagsins margfalt
meiri en talað er um í skýrslunni.
Þar sé miðað við rangar forsend-
ur.
„Davíð Oddsson segir að ekki
sé hægt að fara fyrningarleiðina
því enginn gjafakvóti sé til leng-
ur, allir séu búnir að selja hann.
En Vinnslustöðin á hvorki meira
né minna en 10 milljarða af slíku
góssi, það er hægt að lesa úr töl-
unum. Verðmæti hvers kílós er
vitað og þeir verðleggja það
meira að segja sjálfir,“ segir
Tryggvi. Hann segir að í ársreikn-
ingi Vinnslustöðvarinnar komi
fram að fyrirtækið eigi 15 þúsund
þorskígildistonn en í efnahags-
reikningi þess komi aðeins fram
brot af þeim veiðiheimildum, að-
eins sá kvóti sem það hefur keypt
af öðrum. Því sé eins og eigið fé
þess sé aðeins tveir milljarðar og
allir útreikningar endurskoðand-
ans gerðir út frá því.
Tryggvi segir að ef allar eign-
ir félagsins væru teknar inn í
efnahagsreikninginn væru eignir
þess tólf milljarðar en ekki tveir.
Þá er ógetið um einn milljarð
sem bætist við vegna væntan-
legrar hlutdeildar í 30.000
þorskígildistonnum til viðbótar
sem forsætisráðherra hefur boð-
að. „Það er rangt að fyrirtækið
færi á hausinn í fyrningarleið-
inni og það er líka rangt að eng-
inn gjafakvóti sé eftir,“ segir
Tryggvi.
hrs@frettabladid.is
ÁRSREIKNINGUR VINNSLU-
STÖÐVARINNAR
Í ársreikningi vinnslustöðvarinnar kemur
fram að fyrirtækið eigi 15 þúsund
þorskígildistonn.
Tólf milljarðar
en ekki tveir
Vinnslustöðin í Vestmannaeyjum hefur verið tekin sem dæmi um að
fyrirtæki færu á hausinn ef fyrningarleiðin væri farin. Tryggvi Agnars-
son, lögfræðingur og frambjóðandi, er á annarri skoðun.
■
„En Vinnslu-
stöðin á hvorki
meira né minna
en 10 milljarða
af slíku góssi.“
TURNER SELUR HLUTABRÉF Fjöl-
miðlakóngurinn Ted Turner hefur
selt 60 milljónir hluta í AOL Time
Warner Inc. fyrir sem svarar um
58 milljörðum íslenskra króna.
Turner á enn 45 milljónir hluta eða
um eitt prósent af fyrirtækinu.
Hlutabréf í AOL Time Warner
féllu lítillega í verði í kjölfar söl-
unnar.
VIÐBRÖGÐ VIÐ HRYÐJUVERKUM Á
mánudaginn kemur hefst sjö daga
löng æfing í viðbrögðum við
hryðjuverkum í borgunum Seattle
og Chicago. Markmiðið er að
kanna viðbragðshæfni stofnana.
Yfir 8.500 manns munu taka þátt í
æfingunni en heildarkostnaður er
áætlaður um 1,2 milljarðar ís-
lenskra króna.
■ Bandaríkin
MÍLANÓ, AP Silvio Berlusconi, for-
sætisráðherra Ítalíu, kom fyrir
rétt í Genóa ákærður fyrir mút-
ur. Billjónamæringurinn er
ákærður fyrir að múta dómurum
í Róm til að „sjá málið frá sinni
hlið“ í máli sem snerti einkavæð-
ingu á stóru matvælafyrirtæki í
eigu ríkisins.
Vörn Berlusconi var á þá leið
að Bettino Craxi, fyrrverandi for-
sætisráðherra, hefði beðið sig um
aðstoð í þessu máli því verið væri
að selja fyrirtækið undir verði.
Craxi hefur sjálfur margoft verið
bendlaður við spillingu.
Þykir þetta ákaflega bagalegt
fyrir ítölsk stjórnvöld, sem taka
við forsæti Evrópusambandsins í
júlí næstkomandi, ekki síst fyrir
þá staðreynd að Berlusconi virðist
ávallt hafa annan fótinn í réttar-
sölum víðs vegar um Ítalíu. ■
GLAÐBEITTUR
Hætt er við að brosið hafi minnkað und-
anfarið.
Réttað yfir billjónamæringnum:
Blásaklaus Berlusconi