Fréttablaðið - 07.05.2003, Page 27
7. maí 2003 Hús og garðar 9
Það er ekki þar með sagt að all-ir þeir sem vilja rækta garð
hafi græna fingur. Fyrir nýgræð-
ingana í garðrækt er mikilvægt að
byrja á að skipuleggja reitinn sinn
og ákveða hvar á að hafa há tré og
hvar lág. Brögð eru að því að fólk
viti ekki hversu há trén sem það
er að gróðursetja geta orðið, en
það veldur síðari tíma vandamál-
um, þegar reiturinn, þar sem kaff-
ið er drukkið og legið í sólbaði, er
kominn í skugga.
Þá þarf einnig að huga að vindátt
og hvar er besta skjólið. Þegar
garðurinn hefur verið skipulagður
er langskynsamlegast að leita sér
upplýsinga um blóm, tré og runna
og vera ekki feiminn að spyrja
starfsfólk verslana og garðyrkju-
stöðva. Fólk þarf að ákveða hvar
það ætlar að hafa sígrænar plöntur
og hvar fjölæringa sem blómstra.
Gróðrarstöðvarnar eru flestar með
vefsíður þar sem hægt er að leita
sér upplýsinga, en ekki er hægt að
ganga að því vísu að þar séu mynd-
ir af plöntunum. Þá er hægt að fara
inn á leitarvefinn „google“ og slá
inn latneska heiti plöntunnar. Í
sumum tilfellum dugir íslenska
heitið. Þá er bara að velja og draga
svo fram verkfærin og vinnufötin
og byrja. ■
VIÐVANINGAR GETA LÍKA RÆKTAÐ GARÐ
Þurfa bara að skipuleggja sig vel áður en verkið hefst.
Ekki vera
feimin að spyrja
Nýgræðingar
í garðrækt
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/B
IL
LI
Nokkur ráð frá
Stanislas Bohic
landslagsarkitekt
um hvernig hægt
er að fegra pallinn
og garðinn.
NOTIÐ BLÓMAPOTTA TIL SKRAUTS
Keramikpottar eru til í miklu úrvali. Þeir
geta sett ótrúlega mikinn svip á umhverfið.
VANDIÐ TIL HÚSGAGNA Á
VERÖNDINNI
Stanislas ráðleggur fólki að hafa falleg hús-
gögn á veröndinni.
VELJIÐ RÉTTAN GRÓÐUR
Afar mikilvægt er að hafa réttan gróður á
réttum stað.
HAFIÐ SKILVEGGINA ÓREGLULEGA
Langir skilveggir gera ekkert fyrir augað.
Öðru máli gegnir ef þeir eru óreglulegir og
skreyttir blómum.
GERIÐ RÁÐ FYRIR AÐSTÖÐU FYRIR
RUSLATUNNURNAR
„Ruslið þitt á allt gott skilið,“ segir
Stanislas hlæjandi.
BLANDIÐ SAMAN ÓLÍKU GRJÓTI
Sigursteinar og hnullungar mynda
skemmtilega heild.
NÝTIÐ AFGANGA
Ef timbur verður afgangs þegar búið er að
smíða pallinn er bráðsniðugt að nota það í
tröppur í garðinum.