Fréttablaðið - 07.05.2003, Page 29
7. maí 2003 Hús og garðar 11
Þegar leggja á hellur, hvortsem um er að ræða í inn-
keyrslu eða í sjálfan garðinn, er
jarðvegurinn það fyrsta sem
þarf að huga að. Ragnar Eyþórs-
son hjá Fínum garði segir nauð-
synlegt að byrja á að skipta um
jarðveg. „Jarðvegurinn verður
að vera frostfrír og sjávargrús
er mjög hentugt efni undir hell-
urnar. Að vísu er misjafnt
hversu langt þarf að jarðvegs-
skipta, en ef við erum til dæmis
að tala um innkeyrslu þá þarf að
grafa alveg 80 sentimetra til
metra niður og aðeins út fyrir
hellulögnina. Síðan þarf að fylla
með grúsi.“
Ragnar segir nauðsynlegt að
gera þetta í lögum og þjappa með
góðri jarðvegsþjöppu á 30 sentí-
metra millibili og bleyta vel í
grúsinni í leiðinni.
„Þegar búið er að jarðvegs-
skipta er sandurinn lagður út og
hann þarf líka að jafna, þjappa
og bleyta. Þá er sandurinn
straujaður eins og kallað er, mað-
ur setur leiðara og strengilínur
og stillir leiðarana eftir línunum.
Síðan eru hellurnar lagðar ofan á,
en það þarf að spá í hvar er byrj-
að upp á að þurfa ekki að saga
hellurnar, best er að hafa þetta
þannig að allt stemmi.
Síðan eru hellurnar lagðar
með örlítilli fúgu á milli og gott
er að steypa meðfram jöðrunum
á hellulögninni svo hún fari ekki
að skríða til. Þá þarf að setja
sand í lögnina, fínn pússninga-
sandur er bestur, sem dreift er
yfir hellulögninga,“ segir Ragnar.
Hann segir gott að hafa vatns-
slöngu og kúst og sópa sandinum
fram og aftur ofan í fúgurnar.
„Þegar sandinum er sópað þar í
binst lögnin enn frekar saman,“
segir hann og undirstrikar að
grunnvinnan skipti gríðarlegu
máli og sé að minnsta kosti helm-
ingur af lögninni.
Hellulagnir:
Mikið vandvirknisverk
HELLULAGNIR ERU MARGVÍSLEGAR
Grunnvinnan er mikilvægust, segir Ragnar
Eyþórsson.
„GÆGJUGATIГ ER SKEMMTILEGT Í GIRÐINGUNNI
Skemmtilegt samspil er milli brúarinnar og steinanna í gatinu.
Vönduð húsgögn í garðinn í i
Víðihlíð við Vatnagarða
Símar: 553 7131 og 560 2596