Fréttablaðið - 07.05.2003, Page 48
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 515 75 00, fax: 515 75 16 Ritstjórn: 515 75 05, fax: 515 75 06, ritstjorn@frettabladid.is
Auglýsinga- og markaðsdeild: 515 75 15 - fax 515 75 16, auglysingar@frettabladid.is Dreifing: 515 75 00, dreifing@frettabladid.is
VI Ð S EG J U M F R É T T I R SM Á A U G L Ý S I N G AS Í M I N N E R 515 7500
Bakþankar
ÞRÁINS BERTELSSONAR
Nýjustu skoðanakannanir sýna aðallt útlit er fyrir að úrslit kosn-
inganna um næstu helgi verði
nokkurn veginn alveg eins og úrslit-
in voru fyrir 4 árum, nema hvað
Frjálslyndi flokkurinn virðist ætla
að hala inn heldur fleiri þorskígildi
en síðast.
LENGI VEL hélt maður að þetta
yrði spennandi kosningabarátta, en
svo kom annað á daginn: Stærsti
stjórnarandstöðuflokkurinn varð við-
skila við þjóðina og hélt að þessar
kosningar ættu að snúast um stjörn-
ur og stórkostlega leiðtoga og hvort
þjóðina dreymdi ekki um að gera
borgarstjórann í Reykjavík að for-
sætisráðherra – aftur! Það var álíka
skynsamlegt og það hefði verið ef
Sjálfstæðisflokkurinn hefði talið sig
þurfa sterkari leiðtoga en Davíð og
boðið fram kraftajötuninn Magnús
Ver.
MEÐ ALLRI VIRÐINGU fyrir
sterkum leiðtogum og kraftajötnum
þá er íslenska þjóðin ekki áttavillt og
fáfróð hjörð í foringjaleit. Venjulegt
fólk forðast mikla leiðtoga eins og
heitan eldinn. Venjulegt fólk vill fá
að vera í friði fyrir foringjum, stór-
mennskubrölti og tilskipunum og er
reiðubúið að sætta sig við ótrúlega
dyntótta og sérlundaða verkstjóra ef
vinnufriður er til að vinna þau verk
sem þarf að leysa af hendi.
ÞAÐ VAR mikið dómgreindarleysi
að bjóða upp á pólitískan dúkkulísu-
leik þegar þjóðin var að vonast til að
einhver hefði hlustað eftir andvarpi
í þjóðardjúpinu og vildi bjóðast til að
leiðrétta það sem aflaga hefur farið
á heimilinu í þeim tryllta dansi sem
stiginn hefur verið kringum gull-
kálfinn á undanförnum árum. Það
var mikill feill hjá stærsta stjórnar-
andstöðuflokknum að bjóða ekki upp
á samstöðu og samfylkingu sam-
hents fólk, heldur veðja á einstak-
lingsframtak og sterkan og stífan
leiðtoga – sem er akkúrat það sem
þjóðin hefur meira en nóg af fyrir.
Þess vegna mun þjóðin á kjördegi
hegða sér eins og maður (eða kona)
sem setið hefur lengi yfir glasi og
veit innst inni að skynsamlegast
væri að hætta leiknum, en segir við
barþjóninn: Sama aftur, takk!
Sama aftur,
takk!
Traust
forysta
Samfylkingin hefur það mjög sér til ágætis að vera
fyrsti raunverulegi möguleikinn í áratugi til að verða
verulegt afl, verulegt mótvægi við Sjálfstæðisflokkinn
og ofurvald hans í íslenskri pólitík.
Samfylkingin hefur það líka sér til ágætis að hafa upp
á að bjóða forystumann sem enginn getur efast um að
myndi vel valda því hlutverki að leiða ríkisstjórn á
Íslandi – en Sjálfstæðisflokkurinn vill telja okkur trú
um að erfiðara starf sé ekki til í heiminum og engum
treystandi fyrir því nema Davíð. Ef hans nyti ekki við
tæki bara við kollsteypa, gott ef ekki plágurnar tólf.
Það má að vísu vera að Samfylkingin hafi verið full
værukær í kosningabaráttunni og því tapað nokkru
frumkvæði – en þetta eru nú samt þeir kostir sem hún
hefur upp á að bjóða.
Og væri vissulega í sjálfu sér mikið fagnaðarefni í
íslenskri pólitík ef hér myndaðist slíkt afl til mótvægis
við Sjálfstæðisflokkinn.
Illugi Jökulsson
Ísland í bítið, 6. maí 2003
Tækifærið er núna!