Fréttablaðið - 28.06.2003, Qupperneq 1
VIÐSKIPTI Samningur Símans við
Odda um gerð símaskráarinnar er
brot á lögum og reglum um útboð,
að mati Krist-
þórs Gunnars-
sonar, fram-
kvæmdastjóra
Ísafoldarprent-
smiðju. „Ég tel
að Oddi fái um
80-100 milljónir
fyrir verkið ár
hvert og sam-
kvæmt lögum um útboð á verkum
fyrirtækja í ríkiseigu á að bjóða
verk út sem kosta meira en þrjár
milljónir.“
Heiðrún Jónsdóttir, upplýs-
ingafulltrúi Símans, segir Sím-
ann í fullum rétti að semja við
Odda. „Áður en við sömdum við
Símann vorum við búin að fá
óformleg tilboð, meðal annars
frá erlendum aðila, en það var
okkar mat að samningur við
Odda væri hagkvæmastur.“
Kristþór segist hafa gert tvær
tilraunir til þess að fá að bjóða í
verkið, þá fyrri haustið 1999. Þá
fékk hann þau svör að það væri
einsýnt að Síminn myndi bjóða út
verkið árið 2000.
Í júní í fyrra hafi hann gert
aðra tilraun. Þá hafi hann fengið
þau svör að búið væri að semja
við Odda um símaskrána 2003 en
Anton Örn Kærnested, fram-
kvæmdastjóri símaskráarinnar,
hafi sagt honum að góðar líkur
væru á því að verkið yrði boðið
út í júní 2003. „Mig fór að lengja
eftir gögnum og hafði samband
við Símann 20. júní. Þá komst ég
að því að 10. júní hefði verið
samið við Odda til þriggja ára, og
þann samning er hægt að fram-
lengja um tvö ár. Það er augljóst
að Síminn ætlaði sér aldrei í út-
boð.“
Kristþór segir samningana við
Odda skekkja mjög samkeppnis-
stöðu á prentmarkaðnum. Oddi
hafi lagt út í fjárfestingu á 400
milljón króna prentvél fyrir
nokkrum árum og samhengið á
milli þeirrar fjárfestingar og
prentunar símaskráarinnar ár
hvert sé augljóst.
„Við höfum fengið þau svör
frá Símanum að verkið sé flókið
og mistök dýr, en að okkar mati
er verkið með einfaldari verk-
efnum,“ segir Kristþór og segir
Ísafoldarprentsmiðju fullfæra
um að prenta verkið hratt og vel.
sigridur@frettabladid.is
MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI Suðurgötu 10, 101 Reykjavík — sími 515 7500
Tónlist 26
Leikhús 26
Myndlist 26
Bíó 28
Íþróttir 10
Sjónvarp 30
KVÖLDIÐ Í KVÖLD
LAUGARDAGUR
28. júní 2003 – 144. tölublað – 3. árgangur
bls. 24
STARFIÐ
Víkingar
ljúfir
bls. 19
SJÓMANNAHEIMILI
Athvarf fyrir
sæfarendur
bls. 16
STA Ð R EY N D UM
MEST
LESNA DAGBLAÐIÐ
Samkvæmt fjölmiðlakönnun Gallup í mars/apríl 2003
22,1%
52,3%
61,7%
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
M
O
R
G
U
N
B
LA
Ð
IÐ
D
V
Sumar í Skálholti
TÓNLEIKAR Fyrstu sumartónleikarnir
í Skálholti fara fram í dag klukkan
þrjú og fimm. Fyrri tónleikarnir
eru helgaðir verkum eftir staðar-
tónskáldið, Gunnar Reyni Sveins-
son. Á seinni tónleikunum verður
leikin nútímatónlinst og tónlist frá
endurreisnartímanum í flutningi
kammerhópsins Contrasti.
Meistarar formsins
MYNDLIST Sýningin Meistarar
formsins opnar í Listasafninu á Ak-
ureyri í dag. Á henni sýna 43 lista-
menn, þar af 11 Íslendingar. Sýn-
ingin er haldin í samvinnu við Rík-
islistasafnið í Berlín.
Sungið og gengið
GÖNGUFERÐ Ungmennafélag Íslands
stendur fyrir gönguferð um skálda-
slóð í Mosfellsdal. Hljómsveitin Á
móti sól mætir og tekur nokkur lög
fyrir gönguna. Gangan hefst klukk-
an 11.
Teflt á Grænlandi
SKÁK Alþjóðlegt atskákmót hefst á
Grænlandi í dag. Meðal þátttak-
enda eru Friðrik Ólafsson og Jó-
hann Hjartarson.
SIGLT Á SUNDUNUM Skúturnar sigldu seglum þöndum við Reykjavíkurhöfn í dag og fylgdust margir áhugasamir með.
GOTT VEÐUR
Frábær helgi fram undan.
Spáð er hita og logni:
Besta helgi
sumarsins
VEÐUR „Það stefnir í algert hæg-
viðri og hita,“ segir Sigurður Þ.
Ragnarsson veðurfræðingur um
helgarveðrið. „Það verður frá-
bært veður um land allt og ekki
síst í Reykjavík. Ég hvet lands-
menn til að hverfa á vit náttúr-
unnar og njóta þess sem Ísland
hefur upp á að bjóða. Nú verður
veðrið til þess,“ segir veðurfræð-
ingurinn.
Sigurður gerir ráð fyrir rúm-
lega tuttugu stiga hita víða inn til
landsins þar sem hlýjast verður. Í
Reykjavík verður hitinn að líkind-
um 15-17 stig: „Þetta gæti orðið
besta helgi sumarsins og góður
endir á mánuði þar sem hitinn
hefur verið í sögulegu hámarki í
júní,“ segir Sigurður en á mánu-
dagin þykknar upp þó áfram verði
hæglætisveður – en þó ekki eins
frábært og allt útlit er fyrir um
helgina. ■
Síminn sagður
brjóta lög
Samið um prentun símaskráarinnar til næstu þriggja ára. Síminn
brýtur lög um útboð, að mati framkvæmdastjóra Ísafoldar-
prentsmiðju. Í fullum rétti, segir upplýsingafulltrúi Símans.
VIÐSKIPTI Líf hf. og Landsbankinn
hafa gert samning upp á 1,7 millj-
arða króna um endurfjármögnun
lána fyrirtækisins sem voru hjá
Búnaðarbanka Íslands. Líf hf.
starfaði áður undir merkjum
Lyfjaverslunar Íslands hf. og er
stærsti dreifingaraðili lyfja, lækn-
ingavara og annarra heil-
brigðistengdra vara á Íslandi.
Sigurjón Þ. Árnason, banka-
stjóri Landsbankans og fyrrver-
andi framkvæmdastjóri rekstrar-
sviðs Búnaðarbankans, var kampa-
kátur með samninginn. „Við erum
mjög ánægðir með að fá eitt af
hinum stóru og sterku fyrirtækj-
um landsins til okkar og hlökkum
til að vinna með þeim.“
Sturla Geirsson, forstjóri Lífs
hf., segir Landsbankann einfald-
lega hafa boðið bestu kjörin. „Við
fórum í óformlegt útboð milli
bankanna og gerðum það sem kem-
ur hluthöfunum mest til góða.“
Sigurjón Landsbankastjóri var
einn af 20 starfsmönnum Búnaðar-
bankans sem Landsbankinn réði til
sín í vor. Líf hf. hefur undanfarið
verið í mikilli útþenslu og keypt
Thorarensen lyf og A. Karlsson,
auk þess að eiga tvö dótturfyrir-
tæki í Eystrasaltslöndunum. ■
Landsbankinn og Líf gera lánasamning:
Búnaðarbankinn missir viðskipti
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/B
IL
LI
Athafnasamur þjófur:
Fjögur
innbrot
INNBROT Brotist var inn á fjórum
stöðum í Reykjavík um hádegi og
síðdegis í gær. Brotist var inn í bíl
í Breiðholti og verðmætum stolið.
Einnig var brotist inn í þrjú hús,
eitt í miðborginni þar sem stolið
var peningaskáp. Hin húsin voru
vestar í bænum. Lögreglan hefur
mann í haldi sem grunaður er um
þjófnaðinn. Allt þýfið var meira
og minna fundið en eftir átti að
yfirheyra manninn. ■
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/B
IL
LI
TÓNLIST
Hugarangur og
tilraunafyllerí
„Það er
augljóst að
Síminn ætlaði
sér aldrei í
útboð.
REYKJAVÍK Suðaustan hæg-
viðri og yfirleitt bjart veður.
Hiti 13 til 20 stig.
VEÐRIÐ Í DAG
+
+
VINDUR ÚRKOMA HITI
Ísafjörður 5-8 Bjart 15
Akureyri 3-8 Léttskýjað 18
Egilsstaðir 5-5 Léttskýjað 18
Vestmannaeyjar 5-10 Bjart 17
➜
➜
➜
➜
+
+