Fréttablaðið - 28.06.2003, Blaðsíða 15

Fréttablaðið - 28.06.2003, Blaðsíða 15
að nýju öllum þessum árum síðar vera þá að eigendur verslunarinn- ar Sautján hafi haft samband og falast eftir því að fá hjá honum galla. „Ég held að ég muni það rétt að hún Sigga frænka saumaði fyrsta gallann á sínum tíma og síðan tók saumakonan mín í Eikju- voginum við. Ég veit ekki hvernig í ósköpunum stóð á því að ég fékk Siggu frænku í þetta en alltént byrjaði framleiðslan með því,“ rifjar Halldór upp og minnist þess að fyrsta peysan hafi verið vín- rauð. Hann segir að það sem kom- ið hafi þessu öllu af stað nú sé að poppstjörnur eins og Madonna og Robbie Williams hafi allt í einu farið að spóka sig í gömlum gerð- um af íþróttagöllum. „Málið var að tískan sagði að þetta yrði að vera gamalt, eins og Adidas eða Hummel. Það þýddi ekki að tala um Nike eða Fila í þessu sam- bandi. Þá fóru þeir í Sautján að velta fyrir sér hvað þeir gætu gert til að ná í eitthvað sem virk- aði og höfðu samband við mig.“ Halldór segir að um leið og merkið fari að sjást aftur kveiki það í svo mörgum. Þannig verði til viðskipti sem annars hefðu ekki orðið. Bæði félög og fyrirtæki snúi sér til hans í auknum mæli. „Við erum að vinna mjög mikið fyrir íþróttafélög um allt land. Við leggjum dag við nótt þessa dag- ana við að framleiða upp í pantan- ir og það er feikilega skemmtilegt að standa í þessu,“ segir hann. Halldór lætur hugann reika áfram aftur til byrjunaráranna og eftir að framleiðslan var komin ágætlega af stað í Lækjargötunni flutti hann sig um set á Sólvalla- götuna. Þar var fyrirtækið í mörg ár og gekk vel. Hann rifjar upp þá daga þegar auglýsingarnar komu fyrst inn í íþróttirnar og merking- ar á búninga. „Það var mikill has- ar í því. Helsta vandamálið í byrj- un var að Íslendingar bjuggu ekki yfir þeirri tækni að geta silki- prentað nema með dökku á ljóst en ekki öfugt. Ef prenta átti ljósan lit á dökkt efni þá einfaldlega seig hann inn í efnið. Það þýddi að ég varð að búa til auglýsingar og aðr- ar merkingar úr hvítu eða ljósu efni. Gert var mót, svokallað flísi- lín límt á efnið, teiknað, klippt og síðan var nælt eða límt á flíkina. Að lokum var merkingin saumuð á og í mörg ár var þetta mikið föndur,“ segir hann og hlær að minningunni. Föndrað fram á nótt Halldór segir að það sé honum til efs að nokkur maður, hvorki lífs né liðinn, hafi föndrað annað eins við merkingar og hann. „Þetta var geggjuð vinna. Ég man að Egill Skallagrímsson var fyrsta fyrirtækið sem íþróttafélag samdi við um auglýsingar á íþróttabúninga. Valsmenn voru þar að verki og ég man að hringt var í mig að kvöldi en kvöldið eft- ir þurftu auglýsingarnar að vera komnar á búninga meistaraflokks karla. Ég brasaði við að klippa út, líma og sauma alla nóttina,“ segir hann og hristir hausinn þegar hann rifjar upp þessa tíma. Hall- dóri er ekki síður minnisstætt hve mikil vinna var að setja merki Einars Guðfinnssonar á Bolungar- vík aftan á föt. „Það var EG og mynd af togara. Hugsaðu þér, heill togari! Það var svakaleg vinna að klippa þá alla til í hönd- unum. Nú er þetta ekkert mál, gert í tölvu og pressað aftan á með hita og tekur fáeinar mínút- ur.“ Fast við hlið Halldórs hafa Esther kona hans og börn þeirra Bergþóra og Einar staðið eins og klettar. Hann er ekki í vafa um að það sé þeirra verk að framleiðsla Henson hefur ekki stöðvast svo mikið sem einn dag frá upphafi. „Á meðan útrás mín í önnur lönd stóð sem hæst, en hún er á köflum mikið ævintýri en ekki að sama skapi árangursrík, hafa þau hald- ið utan um þetta,“ segir hann og hlær. Bætir svo við í fullri alvöru að hann hafi gert örlagarík mistök sem næstum hafi orðið fyrirtæk- inu að falli. „Við urðum gjaldþrota 1991 og það var eins og hvert ann- að lán að okkur gafst færi á að kaupa fyrirtækið af þrotabúinu og halda áfram. Á meðan því stóð héldu Esther og krakkarnir fram- leiðslunni gangandi þannig að hún stöðvaðist aldrei.“ „Stöngin út“ Í kringum það er löng saga sem ekki verður rakin hér en Halldór segir að hann hafi lagt sig allan fram um að greiða sínum skuldu- nautum þannig að hann gæti geng- ið uppréttur um göturnar. „Ég var strax ákveðinn í að ég skyldi ekki þurfa að taka á mig króka ef ég mætti mönnum. Við misstum fjór- ar húseignir í þessu gjaldþroti,“ segir hann og bætir við að útrás hans í önnur lönd og þau mistök að setja upp verksmiðju í Úkraínu hafi haft þau áhrif. „Jóhannes í Bónus hefur fundið góðan titil á sögu mína þegar hún verður skrif- uð: „Hrakfallasaga Halldór Einars- sonar,“ segir hann að sé titill við hæfi en vinir mínir margir hverjir vilja nefna hana: „Stöngin út,“ og vísa þar í öll dauðafærin sem ég átti í viðskiptum en hittu ekki í mark,“ segir hann og skellihlær að tilhugsuninni. Halldór iðrast einskis og segir að þessi ævintýraár hans hafi ver- ið skemmtileg. Hann kynntist mörgum sem hann hefði aldrei kynnst ef ekki hefði verið fyrir þessa útrás. „Margir eru ævivinir sem ég held góðu sambandi við,“ segir hann. Henson er að gera góða hluti þessa dagana og nóg er að gera. Síminn þagnar ekki allan daginn. Yfirbygging fyrirtækisins er að- eins hann, Esther og krakkarnir sem vinna þetta í sameiningu. Hall- dór vinnur jöfnum höndum á skrif- stofunni og við pressuvélarnar og ef á þarf að halda grípur hann í að sníða eða sauma. „Það líður vart sá dagur að ég geri það ekki einhvern tíma yfir daginn að grípa í vélarn- ar ef á þarf að halda. Oft er beðið á meðan síðasti saumurinn er tekinn og þá þýðir ekki annað en að kunna til verka. Við erum með frábærar saumakonur sem hafa fylgt okkur lengi og það er ekki síst starfsfólk- inu að þakka hve vel hefur gengið.“ bergljot@frettabladid.is LAUGARDAGUR 28. júní 2003 15 HALLDÓR EINARSSON OG ESTHER MAGNÚSDÓTTIR KONA HANS „Hún ásamt börnum okkar hefur verið drif- fjöðurin í gangi fyrirtækisins.“

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.