Fréttablaðið - 28.06.2003, Blaðsíða 39
Fréttiraf fólki Fréttiraf fólki
39LAUGARDAGUR 28. júní 2003
Mér finnst sjálfum hundleiðin-legt að bíða í rigningunni eft-
ir brandarakallinum,“ segir Agn-
ar Jón Egilsson leikari. Ásamt fé-
lögum sínum er hann að ýta úr vör
leiklistarnámskeiði. Markmiðið er
að vinna á fullu og birtast víða um
bæinn með afraksturinn á Menn-
ingarnótt. Kjarni hópsins er fólk
átján ára og eldra sem flest hefur
unnið með Agnari. „Við viljum
fleiri og ekki bara leikara. Svona
leikhús byggir á fleiri þáttum,
þannig að við þurfum alls konar
fólk með okkur. Til dæmis mynd-
listar- og tónlistarfólk,“ segir Val-
gerður Rúnarsdóttir, dansari sem
er einn af forsprökkunum og
bendir á að mörk myndlistar og
leiklistar séu ekki alltaf skýr.
„Þetta er ekki skrúðgöngugötu-
leikhús,“ segir Agnar. „Þetta er
leiksýning sem getur sprottið upp
einhvers staðar á einhverjum
tíma,“ segir Vignir Rafn Valþórs-
son leiklistarnemi, sem er fram-
kvæmdastjóri hópsins.
Þemað í vinnu hópsins er
Reykjavíkurskáld. „Við tökum
okkur fullt leyfi til þess að
ákveða hverjir eru Reykjavíkur-
skáld. Hvort það er Tómas Guð-
mundsson eða Bubbi, Megas og
Didda.“
Aðsetur hópsins verður í
Kramhúsinu. Þar er meiningin að
vinna bæði í stærri og minni hóp-
um frá sex á kvöldin og síðdegis
um helgar.
„Hver hópur velur sér stíl sem
hann vinnur mest með. Það gefst
ekki tími til að allir vinni með
allt, en hóparnir munu miðla á
milli sín því sem þeir eru að fást
við.“ Í gegnum þessa vinnu verð-
ur spunninn efniviður í sýningar
sem birtast gestum Menningar-
nætur óforvarendis. Spuninn get-
ur verið dansspuni, draumaspuni
eða það sem kallað er leikhús-
sport. Allir þessir stílar gera
miklar kröfur til leikara um ein-
beitingu og frjótt ímyndunarafl.
Agnar segir að stefnt sé að
fjörutíu manna hópi og enn séu
laus pláss í þessa spennandi og
skemmtilegu vinnu. Þeir sem hafa
áhuga geta sent honum tölvupóst á
netfangið agnarjon@mi.is. ■
LEIKHÚS GÖTUNNAR
Agnar Jón, Valgerður og Vignir Rafn fara fyrir kraftmiklum hópi sem ætlar að lífga upp á
lífið í borginni í sumar.
Leikhús sem sprettur upp
Götuleikhús
■ Hópur ungs fólks ætlar að lífga upp á
tilveru borgarbúa. Stefnan er sett á götu-
leiksýningar á Menningarnótt. En borgar-
búar mega jafnvel búast við að verða fyrr
varir við hópinn.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/V
IL
H
EL
M
Eigendur eins vinsælastaskyndibitastaðar höfuðborg-
arinnar, Nonnabita í Hafnar-
stræti, hafa innréttað nýtt hús-
næði fyrir
starfsemi sína
í Hafnar-
stræti 11, þar
sem áður var
kaffihúsið
Café au lait.
Húsnæðið
hefur staðið
tilbúið svo
mánuðum
skiptir en ekki hefur verið hægt
að flytja vegna vinnulags starfs-
manna Reykjavíkurborgar, sem
sífellt gera athugasemdir í krafti
reglugerða um veitingastaði. Á
meðan verður Nonnabiti að selja
báta sína í gamla húsnæðinu og
greiða húsaleigu af því nýja. Sem
betur fer eru Nonnabitamenn
seinþreyttir til vandræða en
finnst á stundum að borgarstarfs-
mennirnir séu það ekki.
Rithöfundurinn Mikael Torfa-son hefur búið í Danmörku
ásamt fjölskyldu sinni um árabil
þar sem hann
hefur meðal
annars keypt
grænmetið sitt
af íröskum
presti. Mikael
hyggur nú á
heimferð og
þarf því að
finna sér nýjan
grænmetis-
kaupmann, þar sem hann gerir
ráð fyrir því að vera alkominn til
Íslands í sumar. Mikael hefur
sinnt ritstörfum í Danmörku og
sendi meðal annars frá sér skáld-
söguna Samúel þaðan fyrir síð-
ustu jól. Það fylgir ekki sögunni
hvað Mikael hyggst taka sér fyrir
hendur hér heima en það verður
væntanlega auðveldara fyrir
hann að fylgja bókum sínum eftir
þegar hann er kominn með fasta
búsetu á Klakanum.
Þetta er svipað því og ég væritekinn grunaður um ölvun við
akstur í Kaupmannahöfn og ís-
lenska lögreglan myndi kæra mig
fyrir það á Íslandi, án þess að lög-
reglan í Danmörku hafi óskað
þess,“ segir Jónas Freydal, annar
sakborninga í því sem kallað hef-
ur verið Stóra málverkafölsunar-
málið.
Kveðinn verður upp dómur í
málinu fyrir Héraðsdómi Reykja-
víkur á næstunni. Jónas segist
hafa undir höndum bréf frá Ríkis-
saksóknara Dana (Statsadvokaten)
þar sem segir að aldrei hafi verið
farið fram á, af hálfu danskra yfir-
valda, að til ákæru kæmi í tengsl-
um við sölu falsaðra verka á dan-
skri grundu. Stór hluti verkanna í
Stóra málverkafölsunarmálinu var
seldur í Danmörku hjá Gallerí Leif
Jensen og á uppboðum Bruun
Rasmussen og Kunsthallen. Jónas
segir að þessar upplýsingar hljóti
að setja málið í uppnám og í nýjan
farveg. Þetta sé ekki í samræmi
við það sem segir í ákæru saksókn-
ara. Þar segir að sameiginleg nið-
urstaða íslensku og dönska lög-
reglunnar hafi verið að ákært yrði
í málinu.
Eins og Fréttablaðið greindi
frá á sínum tíma hefur Jónas kært
rannsókn íslensku rannsóknarlög-
reglunnar til danskra yfirvalda.
Haft var eftir Jónasi við það tæki-
færi að hinir íslensku rannsóknar-
aðilar, undir forystu Arnars Jens-
sonar, hafi farið um eins og kúrek-
ar í danskri lögsögu. ■
JÓNAS FREYDAL
Samkvæmt bréfi danska saksóknarans hef-
ur Jón H. Snorrason engar forsendur til
ákæru hvað varðar um 70% verkanna.
Falsanir
■ Dómur fellur í Stóra málverkafölsunar-
málinu á mánudaginn. Annar sakborn-
inga heldur því fram að saksóknari hafi
farið langt út fyrir sitt valdsvið hvað varð-
ar um 70% verkanna.
Íslenskir kúrekar
í danskri lögsögu