Fréttablaðið - 28.06.2003, Blaðsíða 10

Fréttablaðið - 28.06.2003, Blaðsíða 10
10 28. júní 2003 LAUGARDAGUR ENN EIN VERÐLAUNIN Ronaldo tekur við Grand Prix-verðlaunum franska íþróttasambandsins fyrir bestan ár- angur í íþróttum á árinu 2002. Fótbolti hvað?hvar?hvenær? 25 26 27 28 29 30 1 JÚNÍ Laugardagur Landsbankadeildir karla og kvenna: Þriðjungur marka karla á lokakaflanum FÓTBOLTI Það er stígandi í marka- skorun í leikjum Landsbankadeild- ar karla. Níu af 99 mörkum fyrstu sjö umferða keppninnar voru skor- uð á fyrsta korterinu en þrjátíu á síðasta korterinu. Mörkin dreifast með öðrum hætti hjá konunum. Þær skora mest á fyrsta korterinu eftir hlé en raunar litlu minna á lokakaflanum. Fylkismenn byrja best og enda best í keppni karlanna og Eyja- stúlkur í keppni kvennanna. Fylkismenn hafa skorað þrisvar á fyrsta korterinu og fimm sinnum á lokakaflanum en Eyjastúlkur fjór- um sinnum í upphafi leiks og átta sinnum undir lokin. Mörk Eyja- manna og Þróttara dreifast mest í keppni karlanna og mörk Blika og Valsstúlkna í keppni kvennanna. KR-ingar skoruðu ellefu mörk á fyrsta korterinu í leikjum Lands- bankadeildar kvenna og Eyja- stúlkur tíu. Magri kaflinn í leikjum KR-stúlkna er síðasta korterið fyr- ir hlé. Þær hafa aðeins náð að setja eitt mark á þessum kafla. Eyja- stúlkur hafa gert jafn fá mörk um miðbik seinni hálfleiks. ■ Hræðilegur atburður í leik Kólumbíu og Kamerún: Marc-Vivien Foé látinn FÓTBOLTI Kamerúnski leikmaður- inn Marc-Vivien Foé hneig niður í leik Kamerún og Kólumbíu í Álfu- keppninni í knattspyrnu og var úrskurðaður látinn 45 mínútum seinna. „Fótboltinn hefur misst frá- bæra manneskju og frábæran leikmann í Marc-Vivien,“ sagði Sepp Blatter, forseti Alþjóða knattspyrnusambandsins. Dánarorsök er ókunn en yfir- völd segja að Foé hafi verið með lífsmarki þegar hann var fluttur á sjúkradeild Gerland-vallarins í Lyon. Krufning mun seinna leiða í ljós hvers vegna hann lést en eng- inn leikmaður var nálægt honum þegar hann hné niður á 75. mínútu leiksins, sem Kamerún vann með einu marki gegn engu. Með sigrinum komst liðið í úr- slitaleik Álfukeppninnar gegn Frakklandi en líkur eru á að það skipti leikmenn litlu máli eins og staðan er. „Ég skil vel ef þeir neita að spila leikinn,“ sagði Marcel Des- ailly, miðvörður franska lands- liðsins, um atvikið. Leikurinn á að fara fram á sunnudaginn kemur. FÓTBOLTI Guðjón Þórðarson verður útnefndur nýr knattspyrnustjóri enska annarrar deildar liðsins Barnsley eftir helgina, sam- kvæmt heimildum Fréttablaðsins. Sömu heimildir herma að til- boði sem lagt hafi verið fyrir Pet- er Doyle, eiganda liðsins, hafi ver- ið tekið, en kaupverð er ekki gefið upp að svo stöddu. Nýir eigendur liðsins, sem og framtíðarstjórn þess, verða kynntir á blaðamanna- fundi á mánudaginn. Kaupendur liðsins eru mjög ánægðir með að málinu sé lokið farsællega og telja mikla vaxtar- möguleika vera fyrir hendi hjá liðinu, sem gekk ekki sem best á liðinni leiktíð. Félagið hefur verið á barmi gjaldþrots um tíma en kaupin bjarga liðinu frá gjald- þrotameðferð. Þetta þýðir að tilboð Peter Ridsdale og hóps hans, sem einnig hafði áhuga á félaginu, er úr sög- unni. Þar með er píslargöngu Guð- jóns lokið en hann hefur verið at- vinnulaus um talsverðan tíma og sagði sjálfur að heimkoma væri líkleg eftir sumarið ef ekki rætt- ist úr hans málum. Guðjón mun hafa rúman mánuð fram að fyrsta leik liðsins, á heimavelli gegn Colchester, til að setja mark sitt á hópinn. ■ Geir Sveinsson hættur þjálfun Vals: Óviss um framhaldið HANDBOLTI Geir Sveinsson, þjálfari og leikmaður handknattleiksliðs Vals, hefur sagt starfi sínu lausu sem þjálfari liðsins af persónuleg- um ástæðum. Nýr þjálfari liðsins er Óskar Bjarni Óskarsson, sem þjálfað hef- ur yngri flokka Vals um skeið. „Ég veit ekkert hvort þetta er endanlegt en ég kem ekki til með að stýra Val né öðrum liðum næsta vet- ur. Mögulega mun ég aðstoða Óskar Bjarna eitthvað en á þessari stundu er ómögulegt að segja hvernig eða hvenær það verður.,“ sagði Geir. ■  11.50 RÚV Formúla 1. Bein útsending frá tímatöku fyrir kappaksturinn á Nürburgring.  13.00 RÚV Vélhjólasport (e).  14.30 Skjár 1 Mótor - Sumarsport (e).  15.45 Sýn Álfukeppni FIFA. Bein útsending frá leik Tyrkja og Kólumbíumanna um 3. sæt- ið.  15.00 Akureyrarvöllur Seinni leikur KA og Sloboda Tuzla í 1. umferð Inter-toto keppninnar.  16.00 RÚV Gullmót í frjálsum íþróttum (e).  18.00 Sýn Trans World Sport. Íþróttir um allan heim.  22.45 Sýn Hnefaleikar: Sýnt frá bardaga Lennox Lewis og Vitali Klitschko (e).  11.30 RÚV Formúla 1. Bein útsending frá kappakst- urinn á Nürburgring.  14.00 RÚV Bein útsending frá Íslandsmótinu í hestaíþóttum.  17.35 Sýn Toyota-mótaröðin í golfi.  18.25 Sýn Álfukeppni FIFA. Bein útsending frá úr- slitaleik Frakka og Kamerúna.  20.55 Sýn US PGA Tour 2003. Þáttur um banda- rísku mótaröðina í golfi.  21.50 RÚV Helgarsportið. Þáttur um helstu íþrótta- viðburði helgarinnar.  21.55 Sýn European PGA Tour 2003. Þáttur um evrópsku mótaröðina í golfi.  22.55 Sýn Álfukeppni FIFA. Sýnt frá úrslitaleik Frakka og Kamerúna (e). STERN ÓSKAR JAMES TIL HAMINGJU LeBron er nýjasta stjarnan í bandarískum körfubolta. 58 nýliðar valdir í NBA: Jón Arnór ekki valinn KÖRFUBOLTI Jón Arnór Stefánsson körfuknattleiksmaður var ekki valinn í NBA-nýliðavalinu sem fram fór í Bandaríkjunum. Það fór sem íþróttafréttamenn höfðu spáð að Cleveland Cavaliers, sem átti fyrsta valrétt, tók LeBron James. LeBron þessi (2,03 m/108 kg) þykir eitt mesta efni sem fram hefur komið hin síðustu ár. Jón Arnór taldi sjálfur ólíklegt að hann kæmist að í þessari til- raun og líklegt er að hann spili aftur í Evrópu á næstu leiktíð. Þjálfarar Jóns eru vissir um að hann eigi mikið inni ennþá sem leikmaður og geti aðeins orðið betri en hann er í dag. „Hann er vafalaust besti ís- lenski leikmaðurinn í dag,“ sagði Pétur Hrafn Sigurðsson, fram- kvæmdastjóri Körfuknattleiks- sambands Íslands. „Þrátt fyrir að hann komist ekki inn núna eru engin sund lokuð. Hann getur reynt aftur á næstu ári eða þarnæsta. Svo er mikill áhugi fyr- ir honum í Evrópu þannig að hann á alveg að geta náð góðum samn- ingi við sterkt lið fyrir veturinn. En kosturinn við að reyna núna er sá að hann er alla vega kominn á blað þar vestra og þeir sem fylgj- ast með að jafnaði muna eftir hon- um þegar og ef hann reynir aft- ur.“ ■ 26 27 28 29 30 1 2 Sunnudagur NBA-NÝLIÐAVALIÐ 1. LeBron James til Cleveland 2. Darko Milicic til Detroit 3. Carmelo Anthony til Denver 4. Chris Bosh til Toronto 5. Dwayne Wade til Miami MARC-VIVIEN FOÉ Lengi verið einn af máttarstólpum í liði Kamerún. FERILL FOÉ 1994 Kemst í landslið Kamerún. 1997 Til liðs við Lens í Frakklandi. 1998 Fótbrotnar, missir bæði af HM og boði frá Man. Utd. 1999 Seldur til West Ham fyrir 4 milljónir punda. 2000 Lyon kaupir hann á 6 milljónir punda. 2002 Vinnur Afríkubikarinn með Kamerún. Til Man. City sem lánsmaður. 2003 Skorar níu mörk í 35 leikjum fyrir City, þar af síðasta mark ið sem skorað var á Maine Road. ÓKUNNAR ORSAKIR Læknar stumra yfir Foé þar sem hann ligg- ur. Skömmu seinna var hann allur. FLJÓTASTIR AÐ SKORA Hjálmar Þórarinsson (Þrótti) gegn KR í 1. umferð 2. mínúta Haukur Ingi Guðnason (Fylki) gegn Fram í 1. umferð 3. mínúta Haukur Ingi Guðnason (Fylki) gegn Grindavík í 2. umferð 7. mínúta SÍÐBÚIN SIGURMÖRK Björn Viðar Ásbjörnsson (Fylki) gegn KR í 6. umferð 88. mínúta Kristján Brooks (Fram) gegn FH í 7. umferð 88. mínúta Sören Hermansen (Þrótti) gegn Fylki í 5. umferð 90. mínúta mínútur 1-15 16-30 31-45 46-60 61-75 76-90 mörk, karlar 9 12 16 14 18 30 mörk, konur 11 24 19 30 20 28 Dreifing marka í 1. til 7. umferð Landsbankadeilda karla og kvenna. FLJÓTASTAR AÐ SKORA Mhairi Gilmour (ÍBV) gegn Stjörnunni í 1. umferð 3. mínúta Margrét Lára Viðarsdóttir (ÍBV) gegn Val í 3. umferð 3. mínúta Ásthildur Helgadóttir (KR) gegn Þór/KA/KS í 4. umferð 3. mínúta SÍÐBÚIÐ SIGURMARK Laufey Ólafsdóttir (Val) gegn ÍBV í 3. umferð 87. mínúta STAÐREYNDIR UM BARNSLEY Mesti áhorfendafjöldi: 40.255 í leik Barnsley gegn Stoke í 5. umferð bikar- keppninnar 1935 Stærsti sigur: 9 - 0 gegn Loughborough Town 1899 Stærsta tap: 0 - 9 gegn Notts County 1927 Landsleikjahæstur: Gerry Taggart, 35 leikir fyrir N-Írland Flestir leikir: Barry Murphy, 514 leikir fyrir Barnsley Flest mörk: Ernest Hine, 123 mörk Dýrasta sala: Ashley Ward, seldur til Blackburn 1998 fyrir 4,5 milljónir punda Dýrustu kaup: G. Hristov og M. Sheron keyptir fyrir 1,5 milljónir punda hvor Heimavöllur: Oakwell, tekur 23.186 áhorfendur Áhorfendafjöldi 2002/3: 9.636 að jafnaði Barnsley og Stoke hafa mæst 54 sinnum alls Barnsley hefur sigrað 21 sinni Stoke hefur sigrað 20 sinnum Þrettán sinnum hefur orðið jafntefli Guðjón Þórðar- son snýr aftur Fótboltafélagið Barnsley hefur skipt um eigendur. Guðjón Þórðarson verður knattspyrnustjóri. Ný stjórn verður kynnt á mánudag. Fyrsti leikurinn gegn Colchester eftir mánuð. ÁHANGENDUR BARNSLEY Nú fara hjólin kannski aftur að snúast hjá félaginu eftir langa niðursveiflu. Myndin er frá heimasíðu félagsins.

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.