Fréttablaðið - 28.06.2003, Blaðsíða 23

Fréttablaðið - 28.06.2003, Blaðsíða 23
LAUGARDAGUR 28. júní 2003 23 Fræðibækurnar eru mestáberandi í bókahillunni minni og þá helst bækur um jafnréttismál,“ segir Katrín Anna Guðmundsóttir, markaðs- og viðskiptafræðingur og tals- kona Femínstafélagsins. „Bókin sem ég er að lesa í augnablikinu er Veröld sem ég vil en í henni er farið yfir sögu Kvenréttindafélagsins allt frá árinu 1907 og inn í hana fléttast auðvitað saga jafnréttisbarátt- unnar. Það má segja að ég lesi allt sem ég get um jafnréttis- málin og les því ávallt tímaritið Veru. Það er eina tímaritið sem fjallar um jafnrétti kynjanna og er gott mótvægi við öll hin blöð- in á markaðnum.“ Aðspurð segir Katrín að lítill tími gefist fyrir skáldsögurnar. „Ég las meira af skáldsögum þegar ég var yngri en ef ég les þær nú er það helst Laxness og bækur eins og Blinda sem ég las um daginn. Hún er eftir Portú- galann José Saramago og er virkilega áhugaverð, mikil þjóð- félagsádeila. Síðan er léttmetið alltaf við höndin og þá er það helst Garfield sem verður fyrir valinu.“ En hvaða bókum mælir hún með fyrir femínista sem eru að taka sín fyrstu skref? „Ég hugsa að ég myndi byrja á bók- inni Veröld sem ég vil og kynna mér þannig sögu baráttunnar, síðan er Beauty Myth mjög góð og loks Píkutorfan sem er kjörin fyrir ungt fólk.“ ■ ■ BÓKAHILLAN MÍN■ PLÖTUKASSINN MINN KATRÍN ANNA Segir að fræðibækurnar verði oftast fyrir valinu og þær séu ráðandi í bókahillunni hennar. Fræðibækur um femínisma ELÍSABET DAVÍÐSDÓTTIR Hefur síðasta árið frekar valið að kaupa sér vínylplötur en geisladiska. „Eitthvað rómantískt við vínylinn“ Elísabet Davíðsdóttir, fyrir-sæta í New York, komst á bragðið með að kaupa vínylplöt- ur fyrir rúmu ári síðan. Hún var þó alltaf dugleg að kaupa geisla- diska hér áður fyrr. Vegna starfsins ferðast hún mikið á milli landa, sem er afar óhent- ugt fyrir tónlistarunnendur sem vilja helst hafa þá tónlist sem stendur þeim næst nálægt sér allar stundir. Þar kemur tölvu- tæknin sér vel. Hún á ipod, lítið tæki á stærð við kassettu sem tengja má við tölvur og hlaða allt að 7.000 lögum inn á. Þannig ferðast hún með 6.000 af sínum uppáhaldslögum. Í dag segist hún þó nánast hætt að kaupa geisladiska. Enda gefi margir starfandi tónlistar- menn líka út plötur sínar á vín- yl. „Frá því að ég byrjaði að kaupa vínyl er ég komin upp í 239 stykki,“ segir Elísabet og þykir greinilega vænt um safn- ið. „Það er ekki hægt að bera saman diska og plötur. Hljómur- inn er öðruvísi og það er eitt- hvað persónulegra við vínylinn. Það er hálfgerð athöfn að leita að plötum í búðum. Koma svo heim og setja nálina á plötuna. Svo er „artworkið“ yfirleitt miklu skemmtilegra á stórum plötum. Það er einfaldlega eitt- hvað mjög rómantískt við vínyl- plötuna.“ Elísabet kaupir nýjar sem notaðar plötur. Spurð um dæmi hvað hafi endað í safni hennar upp á síðkastið svarar hún „allt frá Ozzy Osbourne til Square- pusher“. Stúlkan leitar víða í tónlistar- rannsóknum sínum. Hlustar á kántrí, raftónlist, trip-hop, rokk, popp og allt þar á milli. Nokkrir tónlistarmenn hafa náð alla leið inn og má þar nefna Lambchop, Aphex Twin, Sonic Youth, Johnny Cash, Mazzy Star, Tort- oise, Tom Waits, Cat Power, Beck, Can, Flanger, Led Zeppel- in, Massive Attack og Nick Cave, sem er í sérstöku dálæti. Á síðasta þriðjudag hélt Cave tónleika í Roseland Ballroom í New York. Elísabet lét sig ekki vanta þangað. Aðspurð að því hvað sé svona heillandi við Ís- landsvininn drungalega svarar hún einfaldlega: „He’s the Devil“. ■ SVAMLAÐ Í SÓLINNI Krakkarnir í Sundlaug Kópavogs skemmtu sér vel í barnalauginni þegar ljósmyndari Frétta- blaðsins átti þar leið hjá. Allur er þó varinn góður og gott að vera með kork og kút til að halda sér á floti. Þeir sem lengra eru komnir geta þó sleppt öllum auka- búnaði, synt og kafað eins og fiskar í söltum sjó. Mikil aðsókn hefur verið í sundlaugar höfuðborgarsvæðisins enda heitasti tími ársins og sólin hátt á himni.

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.