Fréttablaðið - 28.06.2003, Side 2

Fréttablaðið - 28.06.2003, Side 2
ÍRAK, AP „Aðalatriðið er að okkur voru kynntar staðreyndir sem réttlæta áttu þátttöku Breta í stríðinu í Írak. Eftir að stríðinu lauk hafa allar þessar staðreyndir reynst rangar,“ sagði Robin Cook, fyrrverandi varnarmálaráðherra í ríkisstjórn Tony Blair, í samtali við BBC. Cook gagnrýnir harðlega skýrslur sem lagðar voru til grundvallar þátttöku Breta í stríð- inu og segir þær að stórum hluta hafa verið ónákvæmar, ef ekki rangar. R í k i s s t j ó r n Blair hefur sætt mikilli gagnrýni vegna tveggja skýrslna sem birtar voru í septem- ber síðastliðnum og lagðar voru til grundvallar ákvörðun Breta um þátttöku í Íraksstríðinu. Robin Cook sagði af sér ráð- herraembætti vegna andstöðu við hernaðaraðgerðir gegn Írak án nýrrar ályktunar Sameinuðu þjóð- anna. Síðar fylgdu tveir aðrir ráð- herrar fordæmi hans. Cook nefnir sem dæmi að ekkert styðji fullyrð- ingar um að Saddam Hussein hafi getað beitt gereyðingarvopnum með 45 mínútna fyrirvara. Sama eigi við um meint kjarnorkuvopn í eigu Saddams. Þau hafi ekki fund- ist þrátt fyrir mikla leit. „Og fullyrðingar í skýrslunni þess efnis að Saddam hafi keypt úraníum frá Afríku voru rangar, enda byggðar á fölsuðum gögn- um. Sama er að segja um aðrar fullyrðingar í septemberskýrsl- unni,“ sagði Cook. Árásum á bandaríska hermenn í nágrenni Bagdad hefur fjölgað mjög síðustu daga. Þrír Írakar eru nú í haldi bandarískra hersveita en grunur leikur á að þeir tengist hvarfi tveggja bandarískra hermanna nálægt Bagdad á miðvikudag. Hvorki hefur sést tangur né tetur af hermönnunum eða bíl þeirra. Fjórir bandarískir hermenn hafa látist í Írak á síðustu tveimur dögum. Leyniskyttur skutu tvo í gærmorgun og þá var bandarísk- ur hermaður skotinn í höfuðið þegar hann var að kaupa mynd- diska í verslun í Bagdad í gær- morgun. ■ 2 28. júní 2003 LAUGARDAGUR “Málið snýst ekki um símanúmer.“ Davíð Oddsson forsætisráðherra reyndi lengi og árangurslaust að ná sambandi við Bush Banda- ríkjaforseta vegna Varnarliðsins. Illugi Gunnarsson er aðstoðarmaður Davíðs. Spurningdagsins Illugi, eruð þið ekki með símanúmer- ið hjá Bush? ■ Lögreglufréttir ■ Dómsmál ■ „Eftir að stríð- inu lauk hafa allar þessar staðreyndir reynst rangar.“ RÓBERT MARSHALL Hann segir það sárt að sjá félagsmenn og vini missa vinnuna. Norðurljós: Reiðarslag fyrir blaða- menn UPPSAGNIR „Uppsagnirnar eru reiðarslag fyrir blaðamenn. Það er alltaf sárt þegar félagsmenn missa vinnuna,“ segir Róbert Marshall, formaður Blaðamanna- félagsins og starfsmaður Norður- ljósa. Í gær var þrettán starfs- mönnum Norðurljósa sagt upp störfum, þar af sjö á fréttastofu. „Sem formanni Blaðamannafé- lagsins og vinnufélaga fólksins finnst mér þetta vera blóðtaka,“ segir Róbert. Róbert segir uppsagnirnar vera vitnisburð um þann harða slag sem er á íslenskum fjölmiðlamarkaði. Sárgrætilegt sé að ríkið standi í samkeppni við frjálsa fjölmiðla sem fari halloka. „Er það vilji stjórnvalda að fækkað verði frjáls- um fjölmiðlum í landinu?“ Ekki er útséð með hvort útvarp Saga hættir. „Þeir dagskrárgerð- armenn sem þar starfa vinna að því að halda sínum þáttum gang- andi og leita eftir kostun. Félagið vonast til að það takist og að við þurfum ekki að horfa upp á frek- ari uppsagnir okkar félags- manna,“ segir Róbert. ■ UPPSAGNIR Norðurljós hf. hafa sagt upp þrettán manns af Stöð tvö. Þar af eru sjö af fréttastofu og eru nú níu fréttamenn fastráðnir við stöðina. Að sögn Sigurðar G. Guðjóns- sonar, forstjóra Norðurljósa, leiða uppsagnirnar ekki til síðri frétta- þjónustu. „Breytt vaktakerfi og tækninýjungar gera okkur þetta kleift og fréttastofan verður jafn- vel betri fyrir vikið.“ Sigurður segir að breytt vakta- kerfi hafi hlotið samþykki þeirra fréttamanna sem eftir eru. „Við sömdum um nýjan vinnutíma fréttamanna og þetta var allt gert í samráði við þá sem eftir verða. Þeir sem eftir eru pössuðu vel í prógrammið.“ Auk starfsmanna á Stöð tvö verður rekstri Útvarps Sögu breytt með þeim hætti að hún ein- skorðast ekki lengur við talmál. Sigurður segir stöðuna á íslenska fjölmiðlamarkaðnum erfiða fyrir einkarekin fyrirtæki. „Hverjir eru möguleikar ljósvaka- og fréttamiðla á Íslandi sem þurfa að keppa við Ríkisútvarpið? Það get- ur tapað og tapað árum saman án þess að nokkur skipti sér af því. Á meðan þurfum við að horfa í hverja krónu. Þú hefur aldrei fleiri í vinnu en nauðsynlega þarf, sérstaklega í rekstri fjölmiðla sem eru í harðri samkeppni við ríkisfjölmiðlana sem hafa millj- arða króna forskot frá ríkinu.“ ■ HÉRAÐSDÓMUR REYKJAVÍKUR Konan þarf að sitja í fangelsi í þrjá mánuði fyrir að stela tæpum sextán milljónum. Héraðsdómur Reykjavíkur: Stal sextán milljónum FJÁRDRÁTTUR Rúmlega fimmtug kona var dæmd í fimmtán mánaða fangelsi, þar af tólf skilorðs- bundna, í Héraðsdómi Reykjavík- ur fyrir fjárdrátt í starfi. Konan starfaði sem þjónustu- fulltrúi og umsjónarmaður lög- fræðiinnheimtu hjá Sjóvá-Al- mennum. Á fimm ára tímabili, frá árinu 1997 til október 2001, dró hún sér tæpar 16 milljónir úr sjóð- um félagsins, í 155 hlutum. Fjár- drættinum leyndi hún með því að færa samsvarandi fjárhæðir til gjalda á innheimtusafnreikning félagsins. Hafði hún breytt skila- greinum lögmanna um innheimtu- kostnað. Konan játaði brot sitt og að- stoðaði við rannsókn málsins. Hún hefur selt sína einu fasteign, að andvirði níu milljóna króna, upp í kröfu Sjóvá-Almennra, en félagið gerði ekki bótakröfu. Í dómnum er litið til þess að konan dró að sér stóra fjárhæð á fimm ára tímabili. Því er hún talin hafa sýnt styrkan og einbeittan brotavilja. ■ LÖGMAÐUR FÁI LAUNIN Héraðs- dómur Reykjavíkur hefur dæmt lögmannsstofu eina til að greiða fyrrum starfsmanni 149 þúsund krónur. Lögmannsstofan hafði haldið því fram að lögmaðurinn hafi að hluta til starfað á eigin ábyrgð við innheimtustörf og hafi því haldið eftir áðurgreindri upphæð af launum vegna inn- heimtuþóknana sem ekki inn- heimtust. EKKI GREITT FYRIR EKKERT Reykjavíkurborg hefur verið sýknuð af kröfu verktakafyrir- tækis sem vildi fá greiddar 4,3 milljónir króna fyrir ofaníburð í stíg við Eiðisgranda, en það verk var fyrir mistök inni í stærra út- boði. Fyrirtækið hafði hvorki keypt efni né unnið verkið þegar mistökin urðu ljós en vildi engu að síður fá greiðslu samkvæmt samþykktu tilboði. RAKALAUS FORNMINJAFRÆÐ- INGUR Dómnefnd um umsækj- endur um lektorsstöðu í forn- leifafræði við Háskóla Íslands var heimilt að segja að einn um- sækjandinn hefði í tilteknu verki slegið fram „fullyrðingum sem ekki eru byggðar á neinum rök- um, en það er hreint og beint ábyrgðarleysi“. Fornleifafræð- ingurinn vildi að Héraðsdómur Reykjavíkur dæmdi orð nefndar- innar dauð og ómerk. UPPSAGNIR Íslenskir aðalverktakar sögðu í gær upp milli tíu og fimmtán manns af 270 manna starfsliði fyrirtækisins á Kefla- víkurflugvelli. „Það er minnkandi vinna á Keflavíkurflugvelli, sér- staklega fyrir járniðnaðarmenn,“ segir Árni Ingi Stefánsson starfs- mannastjóri. Að sögn Árna tengjast upp- sagnirnar ekki stöðu varnarliðs- ins á Keflavíkurflugvelli. „Þegar langur uppsagnarfrestur er verð- um við að grípa til aðgerða í tæka tíð,“ segir Árni. Hann bendir á að starfsmenn fyrirtækisins hafi þriggja til sex mánaða uppsagnar- frest. „Þeir sem verða hér lengst verða alveg fram í desember,“ segir hann. „Þetta fólk er ekki búið að missa vinnuna fyrr en þá og við vitum ekkert hvað gerist í millitíðinni.“ Þá sagði Íslensk erfðagreining í gær upp fjórtán starfsmönnum. ■ FRÁ KEFLAVÍKURFLUGVELLI Íslenskir aðalverktakar sögðu í gær upp milli tíu og fimmtán manns úr starfsliði fyr- irtækisins á Keflavíkurflugvelli. Uppsagnir: Aðalverktakar og Erfðagreining SIGURÐUR G. GUÐJÓNSSON Kvartar undan samkeppninni við ríkisfjöl- miðlana. Forstjóri Norðurljósa um ríkisfjölmiðla: Með milljarða forskot VIÐ ÖLLU BÚNIR Árásir á bandaríska og breska hermenn í Írak hafa verið daglegt brauð að undanförnu. Fjórir bandarískir hermenn hafa verið drepnir á síðustu tveimur dögum. Falskar forsendur fyrir Íraksstríði Helstu röksemdir fyrir þátttöku Breta í Íraksstríði voru rangar, segir Robin Cook, fyrrum varnarmálaráðherra. Árásum á hermenn banda- manna í nágrenni Bagdad hefur fjölgað síðustu daga. M YN D /A P SMALAMENNSKA Lögreglan á Hornafirði þurfti að smala hross- um inn í girðingu. Koma þurfti hópnum af þjóðveginum. ÞRJÁR RÚTUR FASTAR UPPI Á HÁ- LENDI Björgunarsveitin Víkverji lagði af stað upp í Jökuldal á Fjallabaksleið nyrðri til að að- stoða þrjár rútur sem þar sátu fastar. Enginn var í hættu vegna þessa, en hjálp vantaði við að losa rúturnar svo ferðin gæti haldið áfram. ELDUR Í GÖNGUNUM Eldur kviknaði í flutningabíl í norður- enda Hvalfjarðarganganna um fjögur í gær. Göngunum var lok- að í nokkrar mínútur á meðan slökkvilið Akraness slökkti eld- inn og reykræsti.

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.