Fréttablaðið - 28.06.2003, Síða 4
4 28. júní 2003 LAUGARDAGUR
Þarf að auka fjárveitingar til
Landspítala – háskólasjúkrahúss?
Spurning dagsins í dag:
Ætlar þú til útlanda í sumar?
Niðurstöður gærdagsins
á www.frett.is
15,5%
80,5%
Nei
Já
Kjörkassinn
Farðu inn á frett.is og segðu þína skoðun
frétt.is
Óvissa um forstjóra Lýðheilsustofnunar:
Tekur samt til starfa
HEILBRIGÐISMÁL „Lýðheilsustofnun
mun taka til starfa 1. júlí sam-
kvæmt nýjum lögum,“ segir Jón
Kristjánsson heilbrigðisráðherra.
„Við munum tryggja það að hún
taki til starfa og að þau ráð sem
heyra undir stofnunina geti starf-
að áfram.“
Jón segir að fyrir liggi um
helgina með hvaða hætti Guðjón
Magnússon kemur að Lýðheilsu-
stofnun. Guðjón hefur verið ráð-
inn forstjóri stofnunarinnar en
hann er nú við önnur störf í Kaup-
mannahöfn. „Það kemur í ljós um
helgina hver framtíð Guðjóns við
stofnunina verður,“ segir Jón.
„Það mun þó ekki hafa áhrif á að
starfsemin fari af stað undir nýju
lögunum.“
Að sögn Jóns er hlutverk Lýð-
heilsustofnunar að samræma það
starf sem fram fer að forvörnum í
landinu og mun stofnunin sam-
ræma störf þeirra ráða sem vinna
að forvörnum með það fyrir aug-
um að efla forvarnirnar. Að sögn
Jóns verður þó ekki mikil breyting
á starfsemi stofnananna fyrst um
sinn. „Starfsemin verður með svip-
uðu sniði og hún er nú, en meining-
in er að fá forstjóra til að halda
utan um starfið og móta næstu að-
gerðir í samræmi við okkur.“ ■
Frjálslyndir
eyddu minnst
Frjálslyndi flokkurinn hefur kynnt bráðabirgðauppgjör eftir kosninga-
baráttuna. Margrét Sverrisdóttir, framkvæmdastjóri flokksins, skorar á
aðra flokka að opna bókhald sitt, enda lokað bókhald ólýðræðislegt.
KOSNINGAR Frjálslyndi flokkurinn
eyddi 13 milljónum króna í
kosningabaráttunni fyrir alþing-
iskosningarnar í vor, en hann
sendi frá sér bráðabirgðauppgjör
í gær. Frjálslyndir eyddu því
minnst af þingflokkunum, eftir
því sem næst verður komist, en
þeir og Vinstri grænir eru einu
stjórnmálaflokkarnir sem hafa
gefið upp kostnað kosningabar-
áttu sinnar.
Framlög frá fyrirtækjum og
einstaklingum til
frjálslyndra námu
tæpum þremur
miljónum. Enginn
gaf meira en hálfa
milljón til flokks-
ins, en það er sú
upphæð sem miðað
er við þegar upplýst er hverjir
gefa. Að sögn Margrétar Sverris-
dóttur, framkvæmdastjóra
flokksins, er mikilvægt að stjórn-
málaflokkur gefi upp stóra
styrktaraðila. „Það er ekki leng-
ur þekkt í löndunum í kringum
okkar að halda bókhaldinu lok-
uðu, enda er það ólýðræðislegt og
móðgun við kjósendur. Við mið-
um við 500 þúsund, vegna þess að
enginn getur keypt stjórnmála-
flokk fyrir hálfa milljón.“
Margrét segir uppreisnar-
flokka jafnan eiga erfitt upp-
dráttar hvað varðar fjárframlög.
„Við fengum ekkert frá Sam-
herja. Ég var steinhissa. Það
væri gaman að sjá ef hinir opn-
uðu bókhaldið, hvort þar séu ekki
hagsmunaaðilar að gefa háar
upphæðir.“
Aðspurð segir Margrét Frjáls-
lynda flokkinn hafa fengið styrki
víða að. „Almennt voru þetta
bankastofnanir og stórfyrirtæki
sem styrkja alla flokka. Við fáum
ekki að vita hvort þeir styrki alla
jafnt. Einnig hafa fyrirtæki í
fiskvinnslu sem vilja breyta fisk-
veiðistjórnunarkerfinu styrkt
okkur. Langalgengast er að við
séum að fá um 30 til 50 þúsund
krónur.“
Frumvarp Samfylkingarinnar
um opnun bókhalds stjórnmála-
flokkanna var fellt á síðasta þingi
og hefur flokkurinn ekki viljað
opna sitt eigið bókhald á þeim
forsendum að sum fyrirtæki
myndu kjósa leyndina hjá lokuðu
flokkunum.
jtr@frettabladid.is
Hættuleg fitubrennsluhylki:
Innihalda eiturefni
NEYTENDUR Hættuleg fitubrennslu-
hylki eru nú seld á Netinu. Hylkin
eru einkum ætluð þeim sem
stunda líkamsrækt til þess að
auka fitubrennslu, og innihalda
hættulegt efni, DNP. DNP er á
lista yfir eiturefni og hættuleg
efni.
Finnskur einstaklingur var
lagður á gjörgæsludeild eftir að
hafa tekið inn hylki með DNP, sem
höfðu verið pöntuð á Netinu.
Lyfjastofnun og Matvælasvið
Umhverfisstofnunar hvetja neyt-
endur til að vera á verði gagnvart
vörum sem seldar eru á Netinu
eða í gegnum póstverslun, einkum
ef innihaldslýsingar eða notenda-
fyrirmæli eru villandi. ■
Sauðárkrókur:
Lífleg
prestastefna
PRESTASTEFNA Rætt var um stefnu-
mótunina og undirbúnar frekari
viðræður um prestakallaskipan,“
segir Adda Steina Björnsdóttir,
verkefnisstjóri Prestastefnunnar
sem var á Hólum í Hjaltadal.
Adda Steina segir að rætt hafi
verið um grunnþjónustu kirkj-
unnar og hvað eigi að einkenna
hana. Hvaða samstarfsmöguleik-
ar séu, hverjir geti sinnt starfinu
og hver þjónustuþörfin sé. Það sé
grundvöllur þess að ræða nánar
um prestakallaskipunina. Gera
eigi erindisbréf yfir allar stöður
innan kirkjunnar. „Prestastefnan
var lífleg og mikill vinnufundur,“
segir Adda Steina. ■
JÁRNFRÚ BOSNÍU
Biljana Plavsic er komin til Svíþjóðar þar
sem hún mun afplána dóm fyrir grimmd-
arverk í Bosníustríðinu.
Járnfrú Bosníu:
Situr af sér
dóm
STOKKHÓLMUR, AP Biljana Plavsic,
fyrrum forseti Serbneska lýð-
veldisins í Bosníu, mun sitja af
sér dóm í Svíþjóð. Plavsic, „járn-
frú Bosníu“, var dæmd í ellefu ára
fangelsi fyrir hlutdeild sína í of-
sóknum á hendur Króötum og
múslímum í Bosníustríðinu á ár-
unum 1992-1995.
Yfirvöld í Svíþjóð buðust til
þess að taka við Plavsic og mun
hún að líkindum sitja af sér dóm-
inn í Hinseberg-kvennafangelsinu
skammt frá Örebro. Plavsic, sem
nú er 72 ára að aldri, gekkst við
hluta af þeim ákærum sem á hana
voru bornar gegn því að hinar
yrðu felldar niður. ■
LANDEYÐING Á HORNAFIRÐI
Bæjarráð Hornafjarðar tekur
undir varnaðarorð landgræðslu-
stjóra varðandi brýnar aðgerðir í
fyrirhleðslumálum í sýslunni,
einkum við Jökulsá í Lóni, þar
sem velti á dögum eða vikum um
framkvæmdir.
MEINTUR HRYÐJUVERKAMAÐUR
Al-Ghamdi dvaldi um hríð í Afganistan
á slóðum Osama bin Laden og hefur
verið bendlaður við ýmsa þekkta
hryðjuverkamenn.
Sjálfsmorðsárásirnar
í Ryiadh:
Höfuðpaur
handtekinn
SÁDI-ARABÍA Lögreglan í Sádi-Arab-
íu hefur handtekið mann sem
grunaður er um að hafa lagt á ráð-
in um sjálfsmorðsárásirnar í
Ryiadh í Sádi-Arabíu 12. maí síð-
astliðinn. Ali Abd al-Rahman al-
Faqasi al-Ghamdi gaf sig sjálfur
fram við lögreglu.
Talið er að al-Ghamdi sé ná-
tengdur hryðjuverkasamtökunum
al Kaída. Hann hefur verið eftir-
lýstur síðan í maí í tengslum við
fund stórrar vopnageymslu í
Ryiadh sem talin er hafa tilheyrt
samtökunum.
Hátt í 50 menn hafa verið
handteknir í kjölfar árásanna í
Ryiadh, að sögn yfirvalda. ■
ALFREÐ FORMAÐUR BORGAR-
RÁÐS Alfreð Þorsteinsson var
kjörinn formaður borgarráðs til
eins árs á fundi borgarráðs.
Varaformaður var kosinn Árni
Þór Sigurðsson. Tillaga um kjör
beggja var samþykkt með fjór-
um samhljóma atkvæðum.
Mannát í Indónesíu:
Át áttræða
nágranna-
konu
INDÓNESÍA, AP Dómari í Indónesíu
dæmdi þrítugan karlmann í fimm
ára fangelsi fyrir mannát. Maður-
inn gróf upp lík áttræðrar ná-
grannakonu sinnar daginn eftir að
hún var jarðsett og lagði sér til
munns. Þegar maðurinn var hand-
tekinn fundust líkamspartar kon-
unnar grafnir í bakgarði og í eld-
húsi mannsins. Hann kvaðst hafa
trúað því að með mannátinu gæti
hann öðlast yfirnáttúrlegan kraft.
Lögfræðingar mannætunnar
hyggjast áfrýja dómnum. ■
■ Landið
■ Reykjavík
JÓN KRISTJÁNSSON
Heilbrigðisráðherra segir að tryggt verði að
Lýðheilsustofnun taki til starfa á þriðjudag-
inn þrátt fyrir óvissu um forstjóra stofnun-
arinnar.
LÍKAMSRÆKT
Hættuleg fitubrennsluhylki, einkum
ætluð til að auka fitubrennslu
þeirra sem stunda líkamsrækt, eru
nú seld á Netinu.
VILJA OPIÐ BÓKHALD
Frjálslyndir vilja að allir flokkar verði gerðir skyldugir til að opna bókhald sitt, en frumvarp
þess efnis var fellt á síðasta þingi.
■
„Einnig hafa
fyrirtæki í fisk-
vinnslu sem
vilja breyta
fiskveiðistjórn-
unarkerfinu
styrkt okkur.“
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/R
Ó
B
ER
T