Fréttablaðið - 28.06.2003, Qupperneq 6
6 28. júní 2003 LAUGARDAGUR
■ Dómar
■ Afríka
GENGI GJALDMIÐLA
Bandaríkjadalur 76.43 0.28%
Sterlingspund 126.49 -0.39%
Dönsk króna 11.75 -0.25%
Evra 87.28 -0.25%
Gengisvístala krónu 123,44 -0,12%
KAUPHÖLL ÍSLANDS
Fjöldi viðskipta 197
Velta 5.213 milljónir
ICEX-15 1.495 0,69%
Mestu viðskiptin
Eimskipafélag Íslands hf. 585.971.000
Íslandsbanki hf. 536.410.000
Fjárf.félagið Atorka hf. 423.526.947
Líf hf. 315.370.000
Pharmaco hf. 242.554.215
Mesta hækkun
Skýrr hf. 6,25%
Kaldbakur hf. 5,71%
Eimskipafélag Íslands hf. 3,17%
Össur hf. 1,96%
Samherji hf. 1,20%
Mesta lækkun
Flugleiðir hf. -3,30%
Pharmaco hf. -2,94%
Bakkavör Group hf. -2,04%
Kögun hf. -0,88%
Kaupþing Búnaðarbanki hf. -0,64%
ERLENDAR VÍSITÖLUR
DJ: 9073,4 -0,1%
Nasdaq: 1642,0 0,5%
FTSE: 4067,8 0,7%
Nikkei: 9104,6 2,0%
S&P: 987,6 0,2%
*Bandarískar vísitölur kl. 17.00
Veistusvarið?
1Í hvaða ríki Bandaríkjanna voru lögsem bönnuðu kynmök samkynhneigðra
afnumin fyrr í vikunni?
2Íslandsmótið í hestaíþróttum fer framum helgina. Hvar er mótið haldið?
3Hvaða vinsæli en umdeildi bandarískirappari gaf stúlku í áhorfendaskaran-
um dýra hálsfesti á tónleikum sínum?
Svörin eru á bls. 38
Verð á mann frá 19.800 kr.
Óendanlegir möguleikar!
Alltaf ód‡rast á netinu
LÚXEMBORG, AP Framleiðslutengdar
niðurgreiðslur til bænda leggjast
að mestu af á næstu tveimur árum.
Beingreiðslur sem taka mið af
stærð búa koma í þeirra stað, sam-
kvæmt samkomulagi sem landbún-
aðarráðherrar Evrópusambandsins
náðu um róttækar breytingar á
sameiginlegri landbúnaðarstefnu
sambandsins. Árlega ver Evrópu-
sambandið 43 milljörðum Evra til
landbúnaðarmála en það lætur
nærri að vera helmingur útgjalda
sambandsins.
Evrópusambandið hyggst verja
meiri fjármunum til umhverfis-
mála og byggðaþróunar. Þak verð-
ur sett á greiðslur til stærstu bú-
anna en í dag renna 80% landbún-
aðarstyrkja sambandsins til 20%
búa í aðildarlöndum Evrópusam-
bandsins. Mjög skiptar skoðanir
eru um samkomulagið en að lokum
stóðu Portúgalar einir gegn breyt-
ingunum.
Þýsku bændasamtökin gagn-
rýna breytingarnar og segja tap
sinna félaga verða allt að tvo millj-
arða Evra vegna þeirra.
Bretar, Svíar og Hollendingar
beittu sér hvað harðast fyrir breyt-
ingum og vildu raunar ganga enn
lengra en sættust á málamiðlun
gegn atkvæði Frakka. Frakkar,
sem fá allra þjóða mest af landbún-
aðarstyrkjum Evrópusambandsins,
9 milljarða Evra, sættust á breyt-
ingarnar eftir mikið samningaþóf,
enda skerðast greiðslur til fran-
skra bænda óverulega. ■
ESB:
Takmarkar
ákvarðanir
ALÞJÓÐASAMSKIPTI Dómsmálaráð-
herrar frá Norðurlöndum hittust
í gær í Saltsjöbaden við Stokk-
hólm til að ræða ýmis sameigin-
leg hagsmunamál landanna.
Rætt var um baráttuna gegn
verslun með fólk, frumvarp að
nýrri stjórnarskrá fyrir Evrópu-
sambandið og samstarf Norður-
landanna á sviði sifjaréttar.
Björn Bjarnason dómsmála-
ráðherra spurði hvort nauðsyn-
legt væri að takmarka vald ein-
stakra ríkja í eigin málum til að
tryggja gott samstarf innan
sambandsins. ■
FRÁ ÓLAFSVÖKU
Færeyingar taka við stjórn dóms- og kirkju-
mála á Ólafsvöku eftir rúmt ár.
Aukin sjálfstjórn Færeyja
2004:
Yfirtaka
dómsmál
FÆREYJAR, AP Anders Fogh
Rasmussen, forsætisráðherra
Danmerkur, og Anfinn Kallsberg,
lögmaður Færeyja, hafa undirrit-
að samkomulag sem felur í sér
aukna sjálfstjórn Færeyja. Undir-
búningur löggjafar sem gerir
Færeyingum kleift að taka yfir
löggæslu, dómsmál og kirkjumál
hefst á næstunni. Miðað er við að
lögin taki gildi á Ólafsvökunni í
júlí á næsta ári. Eftir sem áður
verða utanríkis- og varnarmál
Færeyinga í höndum Dana.
Þrátt fyrir vaxandi stuðning
við sjálfstæði Færeyja hætti An-
finn Kallsberg við þjóðarat-
kvæðagreiðslu um málið árið
2001. Danir höfðu þá hótað að
hætta fjárhagsaðstoð við Fær-
eyjar á fjórum árum í stað 15 ef
Færeyingar lýstu yfir sjálfstæði.
Fjárlög Færeyja árið 2003 hljóða
upp á 3,6 milljarða danskra
króna en þar af nemur fjárhags-
aðstoð Dana 640 milljónum, eða
tæplega 20%. Kallsberg hefur
hins vegar unnið markvisst að
því að auka fjárhagslegt sjálf-
stæði eyjanna. ■
ÞRIGGJA ÁRA SKILORÐ Rúmlega
fimmtugur maður var dæmdur í
fjörutíu og fimm daga fangelsi,
skilorðsbundið til þriggja ára. Tví-
vegis fannst á honum óverulegt
magn fíkniefna. Einnig hafði hann
stolið vörum fyrir um hundrað
þúsund krónur. Maðurinn hefur
oft komið við sögu lögreglu.
KRAFÐIST BÓTA Á FJÓRTÁNDU
MILLJÓN Kona sem slasaðist þeg-
ar hún féll af mótorhjóli um mitt
ár 1993 krafði Vátryggingafélag
Íslands um 13,5 milljónir vegna
slyssins. Í Héraðsdómi Reykja-
víkur í gær var tryggingafélagið
dæmt til að greiða henni 3,3
milljónir.
MANNRÆNINGJARNIR SOFNUÐU
Leigubílstjóri sem tekinn hafði
verið í gíslingu af þremur vopn-
uðum mönnum slapp úr haldi
þegar mannræningjarnir sofn-
uðu. Leigubíllinn bilaði á þjóð-
vegi fjarri byggð og ákváðu ræn-
ingjarnir að bíða með það til
morguns að gera við hann. Þegar
þeir sofnuðu notaði leigubílstjór-
inn tækifærið og sleit sig lausan.
Mennirnir voru handteknir
skömmu síðar.
SPRENGJA Öflug TNT-sprengju-
hleðsla úr bresku tundurdufli
fannst á brotajárnshaug í Djúpa-
vogi í síðustu viku. Bílstjóri sem
leið átti hjá haugnum bar kennsl
á sprengjuhleðsluna og lét lög-
reglu á staðnum vita. Sérfræð-
ingar Landhelgisgæslunnar
komu til Djúpavogs á þriðjudag
og eyddu sprengjuhleðslunni.
Sprengjuhleðslan er úr einu
tuga þúsunda tundurdufla sem
Bretar lögðu í sjóinn suðaustur
af landinu í seinni heimsstyrj-
öldinni. Mikinn fjölda þeirra rak
á land og er talið að fjölmörg
dufl séu grafin í sand víðs vegar
um suðurströnd landsins.
Hleðslan í Djúpavogi hafði legið
við bæinn Starmýri áratugum
saman, en við rannsókn málsins
kom í ljós að á árum áður hafði
hún verið notuð sem leiktæki
barna.
Við eyðingu hleðslunnar
hlaust hávaði sem heyrðist í allt
að 10 kílómetra fjarlægð. Mikil
mildi var að hleðslan fannst, en
fyrirhugað var að setja hana í
brotajárnspressu. Það hefði get-
að valdið alvarlegu slysi þar
sem sprengjan er nógu öflug til
að þeyta málmbrotum allt að 1,5
kílómetra vegalengd. ■
ATVINNUMÁL Um helmingur á annað
hundrað starfsmanna sem nú þegar
starfa við byggingu Kárahnjúka-
virkjunar eru útlendingar.
Ójóst er hversu hátt hlutfall út-
lendingar verða af starfsfólki þegar
framkvæmdirnar standa hæst á ár-
unum 2004 og 2005. Þá er gert ráð
fyrir að starfs-
menn verði upp
undir eitt þús-
und.
Að sögn Björn
Gunnarssonar,
bókhalds- og fjár-
málastjóra á
skrifstofu sem
verktakafyrirtækið Impregilo hefur
opnað á Egilsstöðum, er enn stefnt
að sömu skiptingu innlendra og út-
lendra starfsmanna og fyrirtækið
gaf út í apríl. Þá var rætt um að ís-
lenskir starfsmenn yrðu 400 talsins,
eða undir helmingi allra starfs-
manna. Útlendir starfsmenn kæmu
fyrst og fremst frá Ítalíu og Póllandi.
Björn annast nú mannaráðning-
ar í kjölfar þess að Impregilo
óskaði í maí eftir fólki í 200 til 300
störf. Hann segir yfir 2.000 um-
sóknir hafa borist.
„Það er ákveðið hlutfall sem
kemur frá Impregilo og afgangur-
inn verður ráðinn héðan eins og
hægt er. En það er ekki komið í ljós
hvernig skiptingin verður. Það fer
eftir því hvaða reynslu menn
hafa,“ segir Björn.
Að sögn Björns fjölgar starfs-
mönnum á virkjunarstaðnum hægt
og rólega. Hámarki verði náð undir
lok næsta árs.
„Það er komið vel á annað
hundrað manns á fjall, bæði Íslend-
ingar og útlendingar, og verða lík-
lega nokkur hundruð áður en sum-
arið er á enda. Þetta gengur eftir
því hvernig okkar miðar að reisa
búðir og ráða fólk. Borarnir koma
ekki fyrr en í haust og verða ekki
settar af stað fyrr en í kringum
áramótin,“ segir hann.
Aðalbjörn Sigurðsson, fram-
kvæmdastjóri Afls – starfsgreina-
félags Austurlands, segir félagið
fylgjast með þróuninni í starfs-
mannamálum við Kárahnjúka.
Fullsnemmt sé að segja til um
hvernig skiptingin verði milli út-
lendinga og Íslendinga. „Við höfum
því engar áhyggjur ennþá,“ segir
Aðalbjörn.
gar@frettabladid.is
SPRENGJUHLEÐSLUNNI EYTT
Sprengjan vó 136 kíló og skildi eftir sig mikil ummerki í Starmýrarfjörum þar sem henni
var eytt.
Sprengjuhleðsla fannst í Djúpavogi:
Leiktæki barna
M
YN
D
/I
N
G
Ó
VIRKJUNARFRAMKVÆMDIR
„Það er ákveðið hlutfall sem kemur frá Impregilo og afgangurinn verður ráðinn héðan
eins og hægt er. En það er ekki komið í ljós hvernig skiptingin verður. Það fer eftir því
hvaða reynslu menn hafa,“ segir Björn Gunnarsson, sem annast mannaráðningar að Kára-
hnjúkavirkjun fyrir ítalska verktakann Impregilo.
Helmingur útlendingar
Um 150 starfsmenn eru þegar við Kárahnjúkavirkjun.
Helmingur þeirra mun vera útlendingar. Nú er verið að ráða
í um 200 stöður sem fleiri en 2.000 sækjast eftir að fylla.
„Það er
komið vel á
annað
hundrað
manns á fjall.
SAMKOMULAGIÐ Í HÖFN
Franz Fischler, yfirmaður landbúnaðarmála
hjá Evrópusambandinu, skýrir fjölmiðlum
frá samkomulagi um róttækar breytingar á
styrkjakerfi sambandsins.
Landbúnaðarstefna Evrópusambandsins:
Róttækar breytingar á styrkjakerfi
AP
M
YN
D