Fréttablaðið - 28.06.2003, Side 8

Fréttablaðið - 28.06.2003, Side 8
8 28. júní 2003 LAUGARDAGUR Útgáfufélag: Frétt ehf. Ritstjóri: Gunnar Smári Egilsson Fréttastjóri: Sigurjón M. Egilsson Ritstjórnarfulltrúar: Reynir Traustason og Steinunn Stefánsdóttir Auglýsingastjóri: Þórmundur Bergsson Ritstjórn, auglýsingar og dreifing: Suðurgötu 10, 101 Reykjavík Aðalsími: 515 75 00 Símbréf á fréttadeild: 515 75 06 Rafpóstur: ritstjorn@frettabladid.is Símbréf á auglýsingadeild: 515 75 16 Rafpóstur: auglysingar@frettabladid.is Setning og umbrot: Frétt ehf. Prentvinnsla: Ísafoldarprentsmiðja ehf. Fréttablaðinu er dreift ókeypis á heimili á höfuð- borgarsvæðinu, Suðurnesjum og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslunum á lands- byggðinni. Fyrirtæki geta fengið blaðið gegn greiðslu sendingarkostnaðar; kr. 1.100 á mánuði. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. ISSN 1670-3871 Þegar ég var að fletta Frétta-blaðinu einn daginn kringum 17. júní rak mig allt í einu í roga- stans. Þarna var lítil frétt um fán- ana á strætó. Af hverju þeir væru ekki lengur brúkaðir á hátíðisdög- um. Og ég áttaði mig á því – og dauðskammaðist mín fyrir það – að ég hafði ekki einu sinni tekið eftir að fánarnir væru hættir að vera á strætó! Allir sem komnir eru af mesta barnsaldrinum muna auðvitað eft- ir fánunum á strætó. Þeir voru settir upp á helstu hátíðisdögum, kirkjuhátíðum, sumardeginum fyrsta, 1. maí, og svo framvegis. Og svo var flaggað með þjóðfán- um hinna Norðurlandanna á þjóð- hátíðardögum þeirra. Þetta var afskaplega skemmti- legur siður. Þótt ég sé orðinn mik- ið til minnislaus maður með aldr- inum og muni alveg sérstaklega fátt úr bernskunni, þá man ég samt furðulega vel eftir því að hafa margoft komið út úr húsi á Lindarbraut 10 og séð strætó keyra framhjá, annaðhvort með íslenska fánann eða einhvern Norðurlandafánann, og ég man eftir því hvað mér fannst þetta skemmtilegt. Heimur versnandi fer Að sumu leyti var þetta eins og spennandi þraut. Barnið sem stóð á tröppunum með skólatöskuna sína fékk það verkefni að finna út og rifja upp hvaða hátíðisdagur væri í dag. Hvaða Norðurlanda- fáni það væri sem strætó skartaði í þetta sinn. Og maður fór að ímynda sér hátíðahöldin sem nú væru greinilega að hefjast í Nor- egi eða Danmörku eða Svíþjóð eða Finnlandi. Þetta var afar lítil skemmtun. Það þurfti ekki mikið til í þá daga. En þetta var skemmtun samt og hún var saklaus og hæfði manni vel. Og ég ímynda mér að enn í dag myndi börnum þykja gaman að sjá strætó allt í einu keyra fram- hjá með litrík flögg. En því mun víst hafa verið hætt fyrir mörgum árum. Og ég ekki einu sinni tekið eftir því! Svona fer nú heimur versnandi – og ég með! Kannski hallærislegt Einhver sagði þarna í Frétta- blaðinu að þessu hefði verið hætt vegna kostnaðar. Það kostaði alltof mikið að hafa fánastatíf á strætó og þyrfti mannskap í að koma fánunum fyrir á morgn- anna. Ojá, það er nú eins og það er. Ég man nefnilega ekki betur en ég hafi alist upp á viðreisnarárun- um. Þá hafði þjóðin það takk fyrir alveg sæmilegt en var þó hvergi nærri jafn rík og núna. Einkum og sér í lagi ekki á harðindaárunum 1967-1969. Þá var þjóðin satt að segja skítfátæk. Samt höfðum við þá efni á að flagga á strætó. Skrýtið. Fánarnir á strætó, það mætti segja mér að kostnaður við uppá- tækið væri ekki meginástæðan fyrir því að þeir voru aflagðir. Það mætti segja mér að forráðamenn strætó hafi bara ekki nennt þessu lengur. Og hafi jafnvel fundist þetta hallærislegt. Eins og arfur frá gamalli og bjánalegri tíð. „Ji, þetta er víst hvergi gert annars staðar. Það hvarflar víst ekki að þeim á Norðurlöndum að flagga með íslenska fánanum á sínum strætóum þann 17. júní. Gerum við okkur ekki bara að fífli með þessu?!“ Arfur frá gamalli tíð? Já, frá þeirri tíð þegar fólk fór ennþá í skrúðgöngur á 17. júní og krakkar fengu negrablöðrurnar góðkunnu. Og börn fóru í spariföt. Saklaus skemmtun Má ég hér með mælast til þess að fánarnir verði aftur settir á strætó? Hvað sem líður öllum kostnaði, ég trúi því ekki að hann sé óyfirstíganlegur. Væri þá ekki hægt að fá aukafjárveitingu frá ríkisstjórninni (eða kannski Og Vodafone)? Þetta var skemmtileg- ur og kannski skrýtinn siður sem er hreinasta synd að skuli hafa verið aflagður „af því bara“. Ég mundi segja að þetta gerði lífið skemmtilegra ef tiltekið blað hér í höfuðborginni væri ekki búið að eigna sér það orðtak. Núna, þegar ég á sjálfur börn, þætti mér að minnsta kosti gaman að þegar við færum út á morgn- ana keyrði framhjá strætó undir blaktandi fánum og við gætum skemmt okkur við að giska á hvaða dagur væri í dag, hvar væri haldið upp á þjóðhátíðardaginn í dag. Þetta væri saklaus skemmtun og kannski hallærisleg. Það myndi enginn græða neitt á því. (Sem kannski er kjarni málsins?) En við mundum hafa svo ósköp gaman af því. ■ Þrautaganga fjölskyldu Eiginkona og móðir skrifar: Maðurinn minn varð fyrir slysií vinnunni fyrir einu og hálfu ári síðan og þurfti að hætta. Síðan þá höfum við hjónin verið í enda- lausri þrautagöngu. Af því maður- inn minn varð fyrir bakmeiðslum í vinnunni var okkur tjáð að hann ætti rétt á launum í eitt ár. Mánuð- irnir urðu einungis sjö. Af því þurftum við að sækja það sem upp á vantaði til VÍS. Fyrir vikið urðum við á eftir með afborganir. Ástand- ið versnaði úr slæmu í ómögulegt og húsnæðið var selt. Aftur var klippt á launin og nú var það Reykjavíkurborg sem hætti að greiða laun í október. Þá þurfti að sækja um uppfyllingargreiðslur til VÍS á móti smásmugulegum dag- peningum frá Tryggingastofnun. Það sem við fengum ekki að vita var að VÍS borgar ekki svona mis- mun lengur en sem nemur einu ári. Næsta skrefið í baráttunni var að sækja um greiðslur úr sjúkrasjóði Eflingar. Þar var okkur sagt að við fengjum einungis eina greiðslu. Ástæðan var mikil fátækt félags- ins. Þar sem okkar hlutur var mjög alvarlegur var ákveðið að við myndum fá tvær greiðslur í við- bót. Í dag klórum við í bakkann. Hvernig geta vátryggingafélög ákveðið að mál slasaðra sé ekki tekið fyrr en einu ári eftir að slys, þegar í mörgum tilfellum liggur fyrir að skaðinn verður ekki lækn- aður? Hvar er réttur okkar? Hvers eigum við að gjalda sem einungis vinnum fyrir lifibrauðinu? ■ Um daginnog veginn ILLUGI JÖKULSSON ■ vill fá fána aftur á strætó á hátíðis- dögum. Fánana aftur á strætó ■ Bréf til blaðsins Bætiflákar Launahækkun afþökkuð til þessa „Árið 1998 voru samþykktar ákveðnar reglur um laun sveitarstjórnarmanna sem voru ákveðið hlutfall af þing- fararkaupi. Síðan höfum við afþakkað launahækkanir þannig að við erum ennþá að fá það sama og var ákveðið 1998. Núna ákváðum við, þar sem launin voru orðin svo lág, að tryggja bara aftur gömlu reglurnar sem voru í gildi frá 1998. Það má því segja að við höfum ekki þegið launahækk- un í á fimmta ár en erum nú að taka þá launahækkun, eftir reglum sem voru samþykktar 1998,“ segir Gísli Gunnarsson, forseti sveitarstjórnar Skaga- fjarðar. Minnihluti Samfylkingar og Framsóknar- flokks í sveitarstjórn Skagafjarðar hefur gagnrýnt meirihluta Sjálfstæðisflokks og Vinstri grænna fyrir ákvörðun um 91% launahækkun sem tekin var í sveitar- stjórn. ■ Af Netinu Árni Finnsson formaður Náttúruverndarsamtaka Íslands Áformin standast ekki lög Laxárdalur er einhver fegursti dalur á Íslandi og þar er ein besta urriðaá landsins. Hluti dals- ins fer undir vatn nái áform Landsvirkjunar fram að ganga. Þessi áform sem Landsvirkjun hefur standast ekki lög frá árinu 1974 um verndun Mývatns og Laxár. Þar segir skýrt að hvers konar jarðrask og mannvirkja- gerð sé óheimil og einnig að breytingar á hæð vatns- borðs stöðuvatns og rennsli straumvatna séu óheimilar nema til verndunar og ræktunar þeirra, enda komi til sérstakt leyfi Umhverfisstofnunar. Vel kann að vera að hækkun stíflunnar dragi úr sandburði og það hafi já- kvæð áhrif á lífríki árinnar neðan við stíflu en það gildir ekki fyrir ofan hana. Það eru aðrar aðferðir mögulegar til að koma í veg fyrir þennan sandburð. Hugrún Gunnarsdóttir verkefnisstjóri Landsvirkjunar Stangast ekki á við lög Tilgangur þessarar framkvæmdar er fyrst og fremst að minnka sandburð í ánni og draga úr óeðlilegu sliti á vatnsvélum. Um leið að draga úr þessum mikla sandburði sem hefur líklega neikvæð áhrif á lífríki fyrir neðan stífluna. Það eru sérstök lög um verndun Mývatns og Laxár. Við teljum að með þess- ari aðgerð sé tekið tillit til þeirra. Tilgangurinn með þessari framkvæmd er auk þess að losna við sandburð- inn að koma í veg fyrir krapastíflur á veturna sem gera það að verkun að raforkuframleiðslan dettur niður og veldur þannig rafmagnstruflunum í nágrannabyggðun- um. Með þessari framkvæmd er verið að tryggja orku og öryggi. Við teljum að fyrirhuguð framkvæmd stang- ist ekki á við ákvæði laganna. Hækkun stíflu í Laxárgljúfri Skiptar skoðanir Landsvirkjun hyggst hækka stíflu í Laxá í Aðaldal um allt að tólf metra og búa til lítið vatnsmiðlunarlón. Sætindi eða morgunmatur Sá tími mun senn koma, að bannað verði að selja sætindi undir því yfir- skini, að þau séu morgunmatur. Sama er að segja um ýmis sætindi, sem Mjólkursamsalan selur undir því yfirskini, að þau séu mjólkur- vörur. Einnig mun sá tími koma, að framleiðendur og höndlarar slíkra sætinda verði að þola sams konar málshöfðanir af hálfu fórnardýra og tóbaksfyrirtækin hafa sætt í Banda- ríkjunum á undanförnum árum. JÓNAS KRISTJÁNSSON Á VEFNUM JONAS.IS Orð Guðs Það er ekkert að boðun kirkjunnar. Orð kristninnar er einfalt og skýrt. Það þarf ekki að poppa það upp. Það er hreinn óþarfi að breyta kirkjunum í tónlistarsali. Það er nóg af þeim á Íslandi. INGÓLFUR MARGEIRSSON Á VEFNUM KREML.IS FR ÉT TA B LA Ð IÐ /V IL H EL M Leitin að Saddam – eftirmál í Írak „Bandarískar hersveitir í Írak hafa í þrígang, hið minnsta, drep- ið Saddam Hussein, nema ef vera skyldi að hann hafi gengið þeim úr greipum og sé enn sprelllif- andi. Svo virðist vera eftir árásir bandamanna á bílalest nærri landamærum Sýrlands í liðinni viku. Sem fyrr er atburðarásin óljós.“ Leiðarahöfundur Guardian segir Pentagon ekki vilja upplýsa hvort árásin á bílalest Írakanna hafi verið byggð á upplýsingum leyniþjónustunnar eða hvort hún hafi einfaldlega verið byggð á hugboði stríðsherranna. „Ekki er staðfest hvort sýr- lenskir landamæraverðir féllu eða særðust í árásinni. Þá kann að vera að í bílalestinni sem skotið var á hafi leynst smyglarar. Eitt er þó ljóst. Bandaríkjamenn telja sig hafa rétt til að beita öllum tiltæk- um vopnum á öll torkennileg farartæki á leið til Sýrlands. Öllum er hollara að vera á varðbergi, að öðrum kosti týna óbreyttir borgar- ar lífinu fyrir það eitt að vera á röngum stað á röngum tíma.“ Leiðarahöfndur Aftonbladet í Svíþjóð fjallar um vilja Evrópu- sambandsins og Bandaríkjanna til að berjast gegn notkun gereyðing- arvopna og útbreiðslu kjarnorku- vopna. „Evrópusambandið og Banda- ríkin eru sammála um að nauð- synlegt geti verið að beita valdi gegn þeim sem ekki fallast á út- rýmingu gereyðingarvopna. Hins vegar greinir ríkin á um hvenær og hvernig slíku valdi skuli beitt. Evrópusambandið vill ólíkt Bandaríkjunum að slíkar ákvarð- anir séu ætíð teknar af Sameinuðu þjóðunum og byggist á alþjóðalög- um. Í þágu heimsfriðar og lýðræð- is má Evrópusambandið aldrei víkja frá þeim grundvallaratrið- um.“ Höfundur leiðara Independent víkur að fjaðrafokinu sem verið hefur undanfarna daga og vikur í Bretlandi. „Ásakanir þær sem beinast að bresku ríkisstjórninni snúast ekki um lygar, heldur að þeir sögðu ekki allan sannleikann,“ segir Independent. Leiðarahöfundur fullyrðir að því lengur sem herir bandamanna dvelja í Írak, því meir aukist ringulreiðin í landinu. Um leið veikist mannréttindarök- in sem beitt var fyrir stríðsrekstri gegn Írak. „Það er tímabært að Tony Blair, maðurinn sem ber hvað mesta ábyrgð, mæti fyrir rann- sóknarnefnd breska þingsins, líkt og Jack Straw og Alastair Camp- bell, og standi fyrir máli sínu.“ ■ Úr leiðurum ■ Leiðarahöfundar evrópskra dagblaða gera að umtalsefni eftirmála Írakssstríðsins og ákafa leit bandarískra hersveita að Saddam Hussein. Ekki er laust við að örfínn þráður hæðni leynist í skrifum leiðarahöfunda.

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.