Fréttablaðið - 28.06.2003, Síða 20

Fréttablaðið - 28.06.2003, Síða 20
20 28. júní 2003 LAUGARDAGUR Þetta er alls ekki sama sýning-in,“ segir Gunnar Helgason, leikstjóri Grease, sem var að hefja göngu sína í Borgarleikhús- inu, og þvertekur fyrir að það sé of stutt síðan Grease var síðast sett á fjalirnar í Reykjavík. „Það er öllu breytt sem hægt er að breyta í einu leikriti, dansinum, búningunum, leikmyndinni, bíln- um, þýðingunni og landinu sem sagan gerist í sem og árinu sem leikurinn á sér stað. Það eina sem eftir stendur er grunnurinn sem var einu sinni söngleikurinn Grease en söngleiknum var breytt eftir að bíómyndin var frumsýnd. Hann var samræmdur myndinni og best heppnuðu lögin úr myndinni voru tekin inn í söngleikinn.“ Gunnar telur það því síður en svo koma að sök þótt einungis fimm ár séu liðin frá því Grease var sýndur við miklar vinsældir í Borgarleikhúsinu. Þá fóru þau Selma Björnsdóttir og Rúnar Freyr Gíslason með hlutverk Sandyar og Dannys en nú eru það Birgitta Haukdal og Jón Jósep Snæbjörnsson, betur þekktur sem Jónsi Í svörtum fötum, sem leika skötuhjúin. Gísli Rúnar Jónsson þýddi og staðfærði söngleikinn og þar sem hann gerist nú á Íslandi heitir Danny Daníel Zoega en Sandy heldur nafni sínu nánast óbreyttu og er nú Sandí. Söngleikurinn var frumsýnd- ur á fimmtudaginn. Það var uppselt á frumsýninguna og allt bendir til þess að Grease ætli að slá í gegn eina ferðina enn en nú þegar er uppselt á næstu fimm sýningar. Gunnar hefur verið á kafi í Grease-fræðunum og segist hafa legið yfir söguþræði söngleiks- ins. „Ég skoðaði auðvitað mynd- ina, las gömlu þýðinguna og fór til London og sá leikritið. Það varð svo okkar niðurstaða eftir alla þessa yfirlegu að breyta til og láta leikinn gerast á Íslandi.“ Grease-æðið sem gekk yfir landið í kjölfar bíómyndarinnar fór ekki framhjá Gunnari, sem mætti einu sinni í skólann með brillijantín í hárinu. „Ég var bara ekki með hárið í þetta og gerði mér grein fyrir því. Það klikkuðu margir á því. Ég fékk hins vegar ekki leðurjakka,“ bætir leikstjórinn við hress í bragði. ■ Grease í Borgarleikhúsið á ný: Allt önnur sýning Höfundar Grease, Jim Jacobsog Warren Casey, fengu tæki- færi til þess að setja söngleikinn, sem gerði góðlátlegt grín að klæðaburði, hegðun, gildismati og tónlist upphafsára rokk og ról tímabilsins hjá litlu áhugamanna- leikhúsi í Chicago sumarið 1971. Klókir framleiðendur frá New York sáu uppfærsluna og skynj- uðu undir eins að þarna væri eðal- efni á ferðinni. Þeir fluttu söng- leikinn til New York og þar hóf hann göngu sína í Eden-leikhúsinu á Valentínusardeginum árið 1972 og þaðan lá leiðin á Broadway. Söngleikurinn er einn sá lífseigasti sem settur hefur verið á fjalirnar á Broadway og þegar sýningarnar voru farnar að nálg- ast 2.200 var Grease orðinn vin- sælli en kúrekasápan Oklahoma! og komst í áttunda sæti yfir lang- lífustu sýningarnar frá upphafi í þessu höfuðvígi söngleikjanna. Sigurgangan heldur áfram Árið 1978 kom svo kvikmynda- útgáfan af Grease í kvikmynda- hús. Myndin halaði inn 340 millj- ónir dollara í kvikmyndahúsum úti um allan heim og er tekju- hæsta söngleikjakvikmynd allra tíma. Myndin var endurútgefin á 20 ára afmælinu árið 1998 og þá fóru ný og endurbætt eintök af henni eins og eldur í sinu um heimsbyggðina á ný. Sú staðreynd að Grease var eitt af tíu sölu- hæstu myndböndunum í Banda- ríkjunum árið 1997 virtist því síð- ur en svo koma í veg fyrir að fólk legði leið sína í kvikmyndahús til að berja myndina augum á ný. Það er ekki síst tónlistin úr myndinni sem hefur haldið henni á lífi í vitund fólks og þar sem grípandi og auðlærð lögin hafa ferðast fyrirhafnarlaust á milli kynslóða hefur ekkert staðið í vegi fyrir að myndin sjálf gerði slíkt hið sama. Tónlistin var gefin út á tvöfaldri plötu og á tuttugasta afmælisárinu hafði hún selst í yfir 20 milljónum eintaka og þar af seldust 1,2 milljónir platna á árun- Söngleikurinn Grease var frumfluttur árið 1971. Ný uppfærsla á söngleiknum var frumsýnd í Borgarleikhúsinu í vikunni en hann var síðast settur upp í Reykjavík fyr- ir 5 árum síðan. Þessar ódrepandi vinsældir má rekja til kvikmyndar frá árinu 1978. Klassískt klístur DANNY OG SANDY Eru eitt heitasta par kvik- myndasögunnar og ástarævin- týri þeirra er enn að heilla fólk á öllum aldri 32 árum eftir að söngleikurinn um þau var frumsýndur og 25 árum eftir að John Travolta og Olivia Newton-John sungu sig inn í hug og hjörtu heimsbyggðar- innar í Grease. JÓNSI Fetar í fótspor ekki minni manna en John Travolta og Rúnars Freys Gíslasonar í nýju uppfærslunni á Grease. Margt hefur þó breyst frá því Rúnar Freyr heillaði Selmu Björnsdóttur á sviði Borgarleikhússins fyrir fimm árum. FR ÉT TA B LA Ð IÐ 7V IL H EL M

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.