Fréttablaðið - 28.06.2003, Qupperneq 21
LAUGARDAGUR 28. júní 2003 21
um 1996 og 1997.
Allan Carr, sem sá um aðlögun
söngleikjarins að kvikmynda-
forminu, segir að það gleðji sig
mest hversu vel myndin hefur
elst og að hún skuli alltaf finna
hljómgrunn hjá nýjum áhorfend-
um. „Ég vildi að ég gæti sagt að ég
og félagar mínir vissum nákvæm-
lega hvað við vorum að búa til fyr-
ir tuttugu árum síðan“, sagði Carr
í tilefni afmælisútgáfunnar. „Ég
var alltaf fullviss um að okkur
myndi ganga vel en mig óraði
aldri fyrir annarri eins velgengni.
Þegar upp var staðið höfðum við
framleitt bíómynd sem hefur í
gegnum árin snert hjörtu fólks á
öllum aldri úr ólíkustu áttum.
Grís er galdur og ég er þakklátur
fyrir að hafa fengið að taka þátt í
að færa heimsbyggðinni galdur-
inn.“
Þau lifðu Grease af
Þrátt fyrir að kvikmyndaút-
gáfan af Grease sé vinsælasta
söngleikjamynd allra tíma hefur
aðeins tveimur leikurum úr
henni tekist að festa sig í sessi í
Hollywood. John Travolta hefur
ekki verið í betri málum frá því
hann lék Danny Zuko í Grease
árið 1978 og Stockard Channing,
sem gerði bryðjunni Rizzo eftir-
minnileg skil, nýtur enn mikillar
virðingar sem leikkona og á það
til að lyfta heilu bíómyndunum
upp með nærveru sinni einni
saman.
Aðrir sem komu við sögu í
Grease hafa ekki látið að sér
kveða svo heitið geti og Olivia
Newton-John lifir til dæmis enn
fyrst og fremst á fornri Grease-
frægðinni og nokkrum lögum
sem hún gerði vinsæl fyrir all-
mörgum árum. Henni tókst að
vísu að fylgja velgengi sinni í
Grease eftir árið 1980 með
söngvamyndinni Xanadu en sem
fyrr eru það frekar lögin sem hún
syngur í myndinni sem hafa stað-
ist tímans tönn frekar en leik- og
söngkonan sjálf. Árið 1983 var
reynt að græða á vinsældum
Grease með því að leiða John Tra-
volta og Oliviu saman á ný í Two
of a Kind. Þessi tilraun misheppn-
aðist hins vegar hrapallega og
myndin er flestum gleymd í dag.
Upprisa töffarans
Ferill Travolta sjálfs hefur
verið brokkgengur. Hann átti
góða spretti í hryllingsmyndinni
Carrie árið 1976, var tilnefndur
til Óskarsverðlauna árið 1977
fyrir leik sinn í Saturday Night
Fever og mætti því funheitur til
leiks í Grease árið 1978. Hann lék
í Urban Cowboy árið 1980 og í
Brian De Palma-myndinni Blow
Out ári síðar en eftir það fór að
halla undan fæti.
Endurfundir hans og Oliviu
Newton-John árið 1983 virkuðu
ekki sem skyldi og tilraun hans og
Sylvester Stallone til þess að
blása lífi í aðalpersónu Saturday
Night Fever, Tony Manero, mis-
tókst. Þá tók litlu betra við árið
1985 þegar hann reyndi við Jamie
Lee Curtis í Perfect. Síðan fór lít-
ið fyrir hinum heillum horfna Tra-
volta þar til hann skaut upp kollin-
um í Look Who’s Talking, sem
vakti aðallega athygli fyrir þær
sakir að í henni talaði töffarinn
Bruce Willis fyrir smábarn.
Það var svo árið 1994 að leik-
stjórinn Quentin Tarantino nánast
reisti Travolta upp frá dauðum
með því að láta hann leika morð-
ingjann Vincent Vega í Pulp Fict-
ion. Hann fylgdi Pulp Fiction vel
eftir með Get Shorty og hóf ábata-
samt samstarf við leikstjórann
John Woo ári síðar í Broken Ar-
row, en þeir slógu síðan heldur
betur í gegn árið 1997 með hinni
mögnuðu spennumynd Face/Off.
Þrátt fyrir velgengni síðari ára
á Travolta það enn til að velja sér
afleit hlutverk eins og Battlefield
Earth og Domestic Disturbance
sanna. Hann virðist þó hafa fest
sig það rækilega í sessi að slík
klúður skaða hann ekki að ráði og
aðalgæinn í Grease er því aftur
orðinn einn aðaltöffarinn í
Hollywood 25 árum síðar.
Alltaf kraftur í Rizzo
Leikkonan Stockard Channing
gerði foringja bleiku gellanna í
Rydell High, Betty Rizzo, að einni
eftirminnilegustu persónu Grease.
Hún hefur elst býsna vel og nær-
vera hennar í kvikmyndum er síst
áhrifaminni nú en árið 1978. Það
hefur þó ekki farið neitt sérstaklega
mikið fyrir henni en hún skýtur
reglulega upp kollinum í eðalmynd-
um og nýtur mikillar virðingar sem
sviðsleikkona. Árið 1986 lék hún í
Heartburn, ásamt þeim Jack
Nicholson og Shirley McLaine, 1992
kom hún við sögu í Polanski-mynd-
inni Bitter Moon og ári síðar fór hún
á kostum í hinni prýðilegu Six
Degrees of Separation.
Channing hristi heldur betur upp
í tilveru Söndru Bullock og Nicole
Kidman í hlutverki rammgöldróttr-
ar frænku þeirra í Practical Magic
árið 1998 og lætur fljótlega sjá sig í
bíó með Angelinu Jolie og Edward
Burns í Life or Something Like It en
aðdáendur hennar geta notið þess
þangað til að fylgjast með henni
Vesturálmunni í Sjónvarpinu þar
sem hún fer með hlutverk forseta-
frúarinnar.
thorarinn@frettabladid.is
STOCKARD CHANNING
Fór á kostum í hlutverki hinnar eitursvölu
Rizzo í Grease árið 1978. Hún og John Tra-
volta eru einu leikararnir úr þessari feiki-
vinsælu mynd sem hafa náð að festa sig í
sessi í Hollywood.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
7V
IL
H
EL
M
UNNUR ÖSP STEFÁNSDÓTTIR
Leikur Krissu, sem er hið íslenska ígildi
rosagellunnar Rizzo.
EINAR LOGI VIGNISSON
Man vel eftir fyrsta Grease-æðinu og sá myndina á Akureyri á sínum tíma. „Mér er það
ógleymanlegt að vinur minn stalst í brilljantín hjá pabba sínum og setti í hárið á sér. Þetta
var eldgömul túpa sem pabbi hans hafði geymt sem minjagrip frá því í kringum 1960.
Drengurinn ætlaði aldrei að ná þessu úr hausnum á sér þrátt fyrir marga þvotta með
grænsápu.“
Ég var temmilega bjartsýnn ágengi myndarinnar enda var
hún búin að vera fáanleg á vídeo-
leigum svo lengi,“ segir Einar Logi
Vignisson markaðsráðgjafi, sem
stjórnaði markaðssetningunni á
endursýningu Grease á Íslandi í
tilefni af 20 ára afmæli myndar-
innar árið 1998. „Það var ekkert
mikið um að ungt fólk færi að sjá
hana í Bandaríkjunum og þar var
það aðallega eldra fólk í einhverri
nostalgíu sem fór aftur á Grease í
bíó. Við bundum hins vegar nokkr-
ar vonir við algerlega nýjan áhorf-
endahóp og stefnum á sama ald-
urshóp og sá myndina tuttugu
árum áður. Þetta gekk mjög vel og
myndin endaði í eitthvað í kring-
um tíu þúsund manns, sem er mjög
gott fyrir endursýningu og það eru
ekki nema myndir á borð við af-
mælisútgáfu fyrstu Star Wars-
myndarinnar sem geta þetta.“
Það hittist þannig á að söngleik-
urinn var settur upp í Borgarleik-
húsinu á afmælisárinu og kvik-
myndin og leikritið gátu því stutt
hvort annað. „Þetta kom bara upp í
hendurnar á okkur og við unnum
mjög náið með leikhúsfólkinu og
settum myndina í bíó einhverjum
vikum fyrir frumsýningu söng-
leiksins. Þetta skilaði sér rosalega
vel fyrir báða aðila.“
Einar Logi segir að afmælissýn-
ing Grease hafi verið mjög
skemmtilegt verkefni. „Eldri
áhorfendur skiluðu sér líka mjög
vel og höfðu gaman af þessu, enda
var þetta mjög gott eintak sem
kom í bíó og bæði búið að endur-
vinna hljóð og mynd. Eintökin sem
voru fáanleg á vídeóleigunum voru
ekki nærri því svona góð og fólk
ætti að líta eftir því hvort það sé
ekki örugglega með endurbættu
útgáfuna í höndunum ef það ætlar
að leigja Grease. Það munar ótrú-
lega miklu á gæðunum.“
Einar Logi man vel eftir fyrsta
Grease-æðinu og rifjar það upp að
aðeins eitt eintak hafi komið til
landsins af myndinni og það hafi
verið sýnt fyrir fullu húsi í Há-
skólabíói í lengri tíma en svo hafi
það farið hringinn í kringum land-
ið og þegar það kom aftur í Há-
skólabíó hélt það áfram að trekkja
að. ■
Afmælisútgáfa Grease:
Nálgaðist Star
Wars í vinsældum
Traustur banki
Taktu þátt í Sumarnetleiknum okkar og þú
gætir unnið glæsilegan vinning. Þú þarft aðeins
að fara inná www.bi.is og skrá þig í þann
netklúbb sem höfðar til þín.
Dregið verður 1. júlí, 1. ágúst og 1. sept.
Þú gætir dottið í lukkupottinn!
Sumarnetleikur Búnaðarbankans
Viðskiptavinir!
www.bi.is