Fréttablaðið


Fréttablaðið - 28.06.2003, Qupperneq 24

Fréttablaðið - 28.06.2003, Qupperneq 24
24 28. júní 2003 LAUGARDAGUR Þegar George W. Bush keyrði aðHvíta húsinu til þess að láta sverja sig inn í embætti beið hans hópur mótmælenda sem hélt því fram að hann hefði stolið kosning- unum frá mótherja hans Al Gore. Eins og margir muna beið þjóðin agndofa eftir úrslitunum en úrslit Flórídafylkis skáru úr um sigur- vegarann. Mótmælendurnir, og margir aðrir, vilja þó halda því fram að ekki hafi verið staðið drengilega að þeirri framkvæmd að telja atkvæði í Flórída. Þeir vilja þannig meina að Bush hafi í raun stolið kosningunni frá mótherja sínum, þannig að þegar Bush nálgaðist Hvíta húsið þenn- an dag kölluðu mótmælendurnir að honum: „Hail to the Thief!“. Það er því ekki af ástæðulausu sem menn vilja skipa Radiohead í hóp mótmælenda og andstæðinga Bush, sérstaklega í ljósi þess að meðlimir sveitarinnar tóku snemma á ferlinum upp á því að láta skoðanir á heimsins málum í ljós og hafa verið dyggir stuðn- ingsmenn mannúðarsamtaka á við Amnesty International og fleiri. Tónlistin hefur oftast verið byggð á niðursveiflunni. Falleg depurð Radiohead er svo skreytt textum Thom Yorke og er sögu- maður þeirra í flestum tilvikum á skjön við samfélag sitt, hvort sem söngvarinn lágvaxni á þar við sjálfan sig eða ekki. Innri bardag- ar og hugarangur eru líka oft gerð að viðfangsefni. Radiohead hefur tekist svo vel til í því að skapa sinn eigin hljóm að erfitt er að giska á áhrifavalda. Gítarleikarinn Ed O’Brien hefur þó lofsungið Johnny Marr úr The Smiths og á fyrri plötum sveitar- innar má glitta í takta frá U2, My Bloody Valentine, Pink Floyd, Pix- ies og jafnvel sveitinni Ride, sem kom frá sömu borg og Radiohead, Oxford. Angurvær og tjáningarmikil söngrödd Thom Yorke hefur þó tryggt sveitinni allsérstakan stíl og olli því að það þykir ekkert til- tökumál að syngja í falsettu í rokkinu í dag. Alvöru háskólarokk Ein merkilegasta staðreyndin í sögu Radiohead er hversu sam- heldinn hópurinn hefur verið. Hljómsveitin var stofnuð árið 1988 af söngvaranum og gítarleik- aranum Thom Yorke, gítarleikar- anum Ed O’Brien, gítarleikaran- um Jonny Greenwood, bróður hans Colin Greenwood á bassa og trommaranum Phil Selway. Það hafa sem sagt aldrei orðið manna- breytingar á hópnum í öll þau fimmtán ár sem sveitin hefur starfað. Þegar félagarnir fóru að spila saman voru þeir nemar í Oxford- háskóla. Lengi vel hét sveitin því hræðilega nafni On a Friday enda var engin sérstök alvara á ferð- inni í fyrstu. Liðsmenn lögðu þá metnað sinn í námið og voru með nef sín frekar ofan í námsbókun- um en að mæta á æfingar. Í upphafi tíunda áratugarins voru liðsmenn þó byrjaðir að átta sig á eigin verðleikum. Búnir að skipta um nafn og lögðu metnað sinn í það að koma út fyrstu smá- skífu sinni, „Drill E.P.“ sem sá dagsins ljós árið 1992. Ólíkt mörg- um öðrum sveitum þurfti Radio- head ekki að bíða lengi eftir plötu- samningi og samdi við EMI/Capitol stuttu eftir fyrstu út- gáfu sína. Sveitin virðist ekki geta slegið vindhögg og fyrsta smáskífa hennar hjá stóru útgáfunni, „Creep“, rann inn á útvarpstöðvar um allan heim og varð óvæntur slagari báðum megin við Atlants- hafið. Lagið náði þó ekki vinsæld- urm fyrr en það hafði slegið í gegn í Bandaríkjunum en vin- sældir þess þar komu flestum sem tengdir voru tónlistariðnað- inum í opna skjöldu enda hafði breska tónlistarpressan sniðgeng- ið sveitina nánast frá upphafi. Þegar lagið var svo endurútgefið í Bretlandi, eftir að það var orðið alþekkt í Bandaríkjunum, fór það rakleiðis inn á topp 10 í heima- landinu. Næstu tvær smáskífur, „Any- one Can Play Guitar“ og „Pop Is Dead“, fengu þó ekki jafn blíðar viðtökur, og fyrsta breiðskífan, „Pablo Honey“, sem kom út vorið 1993, hvarf jafn skyndilega og hún birtist. Margir afskrifuðu út- varpshausanna sem „Eins slagara undur“ eða „One Hit Wonder“. Beygja tvö Aðra plötu sína vann Radio- head með upptökustjóranum John Leckie, sem hafði áður unnið með The Stone Roses, Ride, The Fall og Kula Shaker. „The Bends“ kom út um vorið 1995 og fékk strax góða dóma. Það dugði þó ekki til þess að selja plötuna og fyrsta smáskífulagið „High and Dry“ hafði ekki þá slagaraburði sem út- gáfufyrirtækið hafði ætlast til. Þetta var á þeim tíma sem R.E.M. var í tónleikaferðalagi sínu um heiminn til að kynna „Monster“-plötuna og hafði valið Radiohead sem upphitunaratriði. Sú athygli sem sveitin fékk undir verndarvæng Michael Stipe og fé- laga, betri smáskífulög og gífur- legur metnaður í myndbandagerð kom Radiohead aftur inn á kortið. Sérstaklega var myndbandið við lagið „Just“ sláandi flott. Lögin „Fake Plastic Trees“ og „Street Spirit“ bættu svo áhangendum við sveitina. Ári eftir að platan kom út náði hún loksins inn á topp 10 í Bretlandi um svipað leyti og hún náði gullsölu í Bandaríkjunum. Radiohead og Nigel Godrich Það var svo á þriðju plötu Radi- ohead sem sveitin komst í hæstu hæðir þar sem hún hefur náð að halda sér síðan. Liðsmenn eiga blómlegu samstarfi sínu við upp- tökustjórann Nigel Godrich þar mikið að þakka en þeir hafa unnið með honum síðan við gerð „OK Computer“. Godrich hafði þá áður unnið með Ride auk þess að gera plötuna „Booth and the Bad Ang- el“ sem var afar ólíklegt sam- starfsverkefni Tim Booth úr James og kvikmyndatónlistar- mannsins Angelo Badalamenti. Sá síðarnefndi er líklegast þekktast- ur fyrir að gera tónlistina við flestar kvikmyndir David Lynch. Þegar þriðja plata Radiohead, „Ok Computer“, kom út varð flest- um strax ljóst að um meistara- stykki væri að ræða. Lagasmíðar sveitarinnar voru orðnar flóknari og nær Pink Floyd en áður. Hljóð- heimur hennar var vel skapaður og djúpur enda Godrich þekktur fyrir smekklega notkun sína á delay- og reverb-effektum. Það sem skaut þeirri plötu þó helst upp til stjarnanna voru ótrú- legar lagasmíðar, tjáning liðs- manna á þeim og tilfinninga- þrunginn söngur Yorks. Platan verður líklegast á listum yfir bestu plötur síðustu aldar um ald- ur og ævi. Ekki orð um hana meir. Þær gífurlegu eftirvæntingar sem fylgdu í kjölfarið voru slíkar að það er vel skiljanlegt að Radio- head-liðar hafi dregið sig til baka inn í skel sína. Tilraunafyllerí Listrænn metnaður þeirra var slíkur að þeir neituðu sér um að skila af sér annari „OK“ plötu í gróðarskyni. Þess í stað var engu líkara en að þeir væru að reyna gera allt sem í þeirra valdi stóð til þess að storka markasvöldunum og verða eins „óútvarpsvænir“ og mögulega var. Þeir neituðu að gera myndbönd á þeim forsendum að þau væru aðeins auglýsingar sem kæmu tónlist ekkert við. Einnig gáfu þeir þá skýringu að það væri bara asnalegt fyrir tónlistarmenn að þurfa að sitja í förðun og leika svo í heilan dag. Einnig neituðu þeir að gefa út smáskífur og halda tónleika í öðru en risastóru 30 þús- und manna tjaldi sem þeir ferð- uðust með um allan heim. Þannig vildu þeir hafa fullkomna stjórn á sínum málum án afskipta risafyr- irtækja, sem oftar en ekki reyna að næla sér í bita af kökunni eða merkja sér tónleikana á einn eða annan hátt. Stjörnukraftur Radio- head var orðinn slíkur að plötuút- gáfa þeirra samþykkti allar kröfur sveitarinnar skilyrðislaust. Tónlistarlega skipti sveitin al- gerlega um gír. Í viðtölum töluðu menn um að útsetningar laga skiptu meira máli en hvort allir liðsmenn sveitarinnar léku á sitt hljóðfæri í lögunum. Bentu oft á að útsetjarar í gamla daga, á við Phil Spector og Brian Wilson, hugsuðu lítið um það hvort allir liðsmenn hljómsveita hefðu eitthvað hlut- verk í lögunum. Upptökuferlið var langt og erfitt en þó blómlegt. Menn tók- ust á, aðallega gítarleikarinn Ed O’Brien og Thom Yorke, sem virtust í fyrstu ósammála um næstu spor sveitarinnar. Thom hafði betur og hljómur sveitar- innar þróaðist meira út í rafhljóð en áður. Á þeim tíma sem „Kid A“ var í burðarliðnum var Napster-deilan í hámarki og frjáls skipti á Net- inu líklegast aldrei aðgengilegri. Platan lak og stærsti hluti tölvu- væddra aðdáenda var kominn með hana í eyrun fyrir útgáfu- dag. Liðsmenn sögðust finna mik- ið fyrir þessu, sérstaklega á tón- leikum þar sem tónleikagestir sungu hástöfum með lögum sem áttu ekki að koma út fyrr en eftir nokkra mánuði. Andi sósíalism- ans sveif yfir hljómsveitarrútu sveitarinnar og sögðust liðsmenn bara hafa gaman að þessu. Þeir hafa aldrei kvartað opinberlega yfir því að áhugasamir sæki tón- list þeirra á Netinu í jafn miklu mæli, enda löngu orðnir saddir á kökunni sem fylgir velgengni. BREIÐSKÍFUR RADIOHEAD: 1993 Pablo Honey 1995 The Bends 1997 Ok Computer 2000 Kid A 2001 Amnesiac 2003 Hail to the Thief Breska rokksveitin Radiohead gaf nýverið út sína fimmtu breiðskífu, „Hail to the Thief“. Margir héldu að eftir tilraunagleðifyllerí síðustu tveggja platna myndi sveitin róa á rólegri gítarmið. Í stað þess náði sveitin að sameina það besta úr báðum heimum. Menn velta því einnig fyrir sér hvort titillinn sé ádeila á Bush Bandaríkjaforseta. Innri bardagar, hugar- angur og tilraunafyllerí Thom Yorke: Engilraddaður konungur innhverfra Söngvari Radiohead, ThomYorke, er orðinn eins konar táknmynd þeirra sem virðast á skjön við samfélag sitt. Hann virðist eiga erfitt með að ná and- anum í hröðu samfélagi viðskipta og upplýsinga. Titlar laga og út- gáfna hafa oft verið eins konar slagorð fyrir þessa heimsmynd Yorkes. Þar má til dæmis nefna að safn myndbanda af „Ok Computer“ hét „7 Television Commercials“ sem hugsa má sem grímulausa lýsingu á mynd- böndum, eða að minnsta kosti notagildi þeirra fyrir plötufyrir- tæki. Fólk sem er á móti alheims- væðingu einkafyrirtækja hefur fundið talsvert í textum Yorkes sem helst í hendur við skoðanir þeirra. Söngrödd Yorkes hefur líka verið eftirsótt. Hann hefur sung- ið sem gestasöngvari með fjölda listamanna, þar á meðal með Björk í lagi hennar „I’ve Seen It All“ sem tilnefnt var til Ósk- arsverðlauna árið 2000. Einnig hefur hann sungið með P.J. Harvey á verðlaunaplötu hennar „Stories from the City, Stories from the Sea“, lagið „Rabbit in the Headlights“ með U.N.K.L.E. og dúettinn „El Presi- dent“ með Drugstore. THOM YORKE Ólíkt flestum öðrum liðsmönnum Radiohead er Thom Yorke ekki frá Oxford, heldur er hann fæddur í Wellingborough í Englandi.

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.