Fréttablaðið - 28.06.2003, Page 25

Fréttablaðið - 28.06.2003, Page 25
LAUGARDAGUR 28. júní 2003 25 Gagn og gaman! Small World barnahúsgögnin breyta litlum herbergjum í heilan heim! H R IN G D U EÐ A KOM D U S E M F Y R S T Opi› laugardaga kl.13 -16. Loka› á sunnudögum í júní og júlí. Netskiptin gerðu lítið annað en að dreifa þeim orðrómi að Radi- ohead hefði tekist að gera annað meistaraverk. Platan seldist því strax vel þegar hún kom út um haustið 2000. Íslendingum fannst svo þeir vera enn nánari piltunum í þetta skiptið þar sem Thom og félagar völdu gulldrengina í Sigur Rós til þess að hita upp fyrir sig á stuttri Evrópureisu. Ekki skemmdi fyrir að nægur lagaafgangur var úr upptökuferl- inu og var leifunum safnað saman á fjórðu breiðskífu Radiohead, „Amnesiac“, sem kom út akkúrat ári eftir „Kid A“. Lof sé þjófinum Titill nýju Radioheadplötunn- ar hefur tvær merkingar. Fyrst er skotið á Bush Bandaríkjafor- seta og svo má skilja hann sem óð til netsamfélagsins þar sem þegnarnir sækja þá tóna frítt sem þeim girnist. Platan var unnin á mettíma í Los Angeles síðasta haust og er enn eitt þrekvirki Radiohead. Í stað þess að stiga skref til baka úr tilraunaheimum nær sveitin jafnvægi á milli gítarrokksins og tilraunapoppsins. Lagasmíð- um svipar meira til „Ok Computer“ en á síðustu tveimur plötum, en útsetningar fara sumar vel inn á sömu deild og á „Kid A“. Radiohead er í dag hel- sta sveit Breta, dáð af pressunni og tónlistaráhugafólki. og er ein fárra hljómsveita sem geta leyft sér nánast hvað sem er. Það sýn- ir sig best á þeim smáskífum sem sveitin hefur sent frá sér upp á síðkastið. Það ætti að þykja nokkuð víst að ef sömu lög kæmu frá óþekktri sveit myndu þau ekki ná upp á megin- strauminn, þrátt fyrir stórfeng- leika þeirra. Þannig er Radi- ohead að setja sitt mark á þróun tónlistar í dag og er hraðbraut fyrir framúrskarandi hugmynd- ir undirdjúpanna beint upp á yf- irborðið. biggi@frettabladid.is RADIOHEAD Ef Radiohead heldur áfram að vinna jafn glæsilega tónlistar- sigra og síðustu fjórar plötur hafa verið verður hennar án efa minnst sem merkustu rokksveit- ar Breta á tíunda áratug tuttug- ustu aldar og fyrsta áratug tutt- ugustu og fyrstu aldar. Í höfuðið á pabba Ég er skírð í höfuðið á pabbamínum. Hann var búinn að eignast tvær stelpur og var að vonast til að það kæmi loks strákur. Ég átti reyndar upphaf- lega að heita Sunneva en pabbi kom því í gegn að skíra mig Birgittu,“ segir Birgitta Birgis- dóttir leiklistarnemi. „Ég er mjög ánægð með nafn- ið og hef aldrei orðið fyrir stríðni nema kannski núna und- anfarið. Fólki finnst mjög skemmtilegt að bæta Haukdal við nafnið mitt og það er auðvit- að ekki leiðum að líkjast.“ Um merkingu nafnsins segist Birgitta hafa heyrt að það merki gömul sál og er hún ekki frá því að það eigi vel við hana. ■ BIRGITTA BIRGISDÓTTIR Segir að faðir sinn hafi fengið það í gegn að hún héti Birgitta í höfðið á sér. ■ NAFNIÐ MITT M YN D /M AR ÍA KR IS TÍ N

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.