Fréttablaðið - 28.06.2003, Síða 26
■ ■ ÚTIVIST
11.00 Ungmennafélag Íslands
stendur fyrir gönguferð um skálda-
slóð í Mosfellsdal. Hljómsveitin Á
móti sól mætir og tekur nokkur lög
fyrir gönguna.
■ ■ SÝNINGAROPNANIR
15.00 Sýningaropnun í Listasafn-
inu á Akureyri en hún er gerð í sam-
vinnu við Ríkislistasafninu í Berlín.
Sýningin ber nafnið Meistarar formsins
en á henni sýna 43 listamenn, þar af 11
Íslendingar. Það verður gefin út 90 síðna
bók á íslensku og ensku um listamenn-
ina og verkin á sýningunni.
16.00 Niklas Ejve frá Svíþjóð opn-
ar sýningu í Listhúsi Ófeigs, Skóla-
vörðustíg 5. Hann sýnir þar skartgripi og
er sýningin opin virka daga frá 10-18 og
laugardaga frá 11-18. Sýningin stendur
til 16. júlí.
17.00 Rósa Matt opnar sýningu í
Kaffi Sólon. Rósa er þekkt fyrir sína sér-
töku mósaikspegla. Sýningin stendur til
25. júlí og er Sesselja Thorberg sýningar-
stjóri.
17.00 Pétur Már Gunnarsson
opnar einkasýningu í Kling og Bang
gallerí við Laugaveg 23. Pétur sýnir
skúlptúra og myndir sem unnin hafa
verið upp úr klisjukenndum hug-
myndum sem umbreytast í eitthvað
nýtt. Sýning stendur til 13. júlí og er
opin fimmtudaga til sunnudaga frá kl.
14-18.
■ ■ TÓNLIST
15.00 Tónleikar í Norræna hús-
inu. Þar koma fram tveir þekktir sænskir
slagverksleikarar, Anders Åstrand og
Rolf Landberg, ásamt kór skipuðum
börnum í 6. bekk við Adolf Fredriks
Musikklasser í Stokkhólmi. Kórstjórinn
heitir Eva Ekdahl, en hún er þekkt af
störfum sínum bæði sem kórstjórnandi
og gestafyrirlesari.
15.00 Fyrstu sumartónleikarni í
Skálholti. Kammerkór Suðurlands
undir stjórn Hilmars Arnars Agnarssonar
syngur verk eftir Gunnar Reyni. Tónleik-
arnir eru helgaðir trúarlegum verkum
Gunnars og eru flytjendur auk Kam-
merkórsins Kári Þormar á orgel, Hallveig
Rúnarsdóttir sópran og Hrólfur Sæ-
mundsson barítón.
16.00 Fjórðu tónleikar sumartón-
leikaraðar Jómfrúrinnar við Lækjar-
götu. Flís tríóið mun leika en það skipa
Davíð Þór Jónsson á orgel, Valdimar Kol-
beinn Sigurjónsson á kontrabassa og
Helgi Svavar Helgason á trommur. Flís
tríóið hefur starfað með krafti nokkur
undanfarin ár og hefur meðal annars
tekið þátt í keppni ungra norrænna
jazztónlistarmanna fyrir Íslands hönd.
17.00 Seinni tónleikar í Skálholti.
Þar verður leikin nútímatónlist og tónlist
frá endurreisnartímanum í flutningi
kammerhópsins Contrasti en hann
skipa Camilla Söderberg, blokkflautur,
Hildigunnur Halldórsdóttir, fiðla og ten-
órgamba, Ólöf Sesselja Óskarsdóttir,
selló og bassagamba, Sigurður Halldórs-
son, selló og sóprangamba, og Steef
van Oosterhout slagverk.
Laugardagstónleikar í Lækjargötu 4 í
Árbæjarsafni. Tónlistarmennirnir Hafdís
Vigfúsdóttir og Ingibjörg S. Gunnars-
dóttir koma fram.
■ ■ SAMKOMUR
14.00 Krabbameinsfélagið Sigur-
von mun standa fyrir fjölskyldu- og
kynningarhátíð fyrir börn og fullorðna í
Kíwanishúsinu, Skeiði á Ísafirði. Ýmsar
uppákomur verða á svæðinu eins og
leikir, hestaheimsókn, trúðaheimsókn
o.fl. Heitt kaffi og vöfflur með rjóma
ásamt góðgæti fyrir börnin.
18.00 Bjarkalundur býður upp á
brennu, hlaðborð, gamansögur og
harmonikkudansleik.
■ ■ LEIKLIST
20.00 Sýning á Grease í Borgar-
leikhúsinu.
20.00 Stúdentaleikhúsið sýnir
Sweeney Todd, morðóða rakarann.
Sýning verður í Tjarnarbíói og verða þær
aðeins tvær.
■ ■ ÚTIVIST
14.00 HSK stendur fyrir gönguferð
upp á Þríhyrning í Rangárvallasýslu.
Þetta er annað árið sem UMFÍ stendur
fyrir þessum verkefnum.
26 28. júní 2003 LAUGARDAGUR
hvað?hvar?hvenær?
25 26 27 28 29 30 1
JÚNÍ
Laugardagur
hvað?hvar?hvenær?
26 27 28 29 30 1 2
JÚNÍ
Sunnudagur
Sweeney Todd er morðóður rak-ari búsettur í London. Verkinu
má lýsa sem melódrama þar sem
mikið er um mannát og blóðsút-
hellingar,“ segir Hannes Óli
Ágústsson, sem fer með hlutverk
Sweeney Todd og situr í stjórn
Stúdentaleikhússins.
Upphaflega var leikritið frum-
sýnt í lok mars í Vesturporti en
aðeins tókst að setja upp eina sýn-
ingu. „Þegar við vorum að taka
okkur til fyrir sýningu númer tvö
fengum við símtal frá lögregl-
unni. Þeir sögðust vera á leiðinni
að innsigla Vesturport þar sem
það hefði útrunnið sýningarleyfi
en við höfðum ekki hugmynd um
það. Það var því aðeins ein sýning
en nokkrir mánuðir af æfingum.
Við reyndum þó að ströggla í tvær
vikur við að endurnýja leyfið en
það gekk ekki og þar við sat.“
Hannes segir þó að planið hafi
verið frá upphafi að hafa fleiri
sýningar og er það að takast fyrst
núna. „Við verðum aðeins með
tvær sýningar og seinni sýningin
verður í kvöld í Tjarnarbíói.“
En um hvað fjallar Sweeney
Todd, morðóði rakarinn við Hafn-
argötuna? „Verkið gerist í London
um miðja 19. öld og fjallar um
rakara sem er kominn heim úr út-
legð en hann var ákærður á fölsk-
um forsendum fyrir smáglæp.
Hann kemst að því að kona hans
hefur framið sjálfsmorð eftir að
dómari nauðgaði henni og hann
hyggur á hefndir. Hann verður í
millitíðinni manni að bana og
kemst þannig að því að honum
finnst mjög gaman að drepa.
Hann fær þá vinkonu sína í sam-
starf við sig og saman setja þau á
fót sölu á kjötbökum og salan
gengur dúndurvel.“
Aðspurður segir Hannes að
mikið sé fram undan hjá Stúd-
entaleikhúsinu. „Við erum byrjuð
að undirbúa næstu sýningu með-
fram þessu en það er blómstrandi
leikár fram undan.“ Stúdentaleik-
húsið er vant að setja upp tvær
sýningar árlega, eina á hausti og
aðra að vori. „Við stefnum á að
fara af stað með leikritasam-
keppni fyrir uppfærsluna á vor-
önn því það er markmiðið hjá okk-
ur að sýna alltaf ný og spennandi
verk.“ segir Hannes að lokum.
Sýningin er sýnd í Tjarnarbíó í
kvöld og hefst hún klukkan 20. ■
■ LEIKLIST
Morðæði og mannát
BJARGEY ÓLAFSDÓTTIR
Ég er svo fegin að vera kominaftur úr hitanum á Spáni heim
í kuldann og ætla að njóta ís-
lenska sumarsins og birtunnar
um helgina meðal annars með því
að fara í fjallgöngu,“ segir
Bjargey Ólafsdóttir myndlistar-
maður. „Ég var að prófa línu-
skauta í fyrsta skipti í fyrradag.
Það gekk mjög vel og var stór-
kostlega gaman þannig að ég ætla
að halda því áfram í dag. Ég var á
raftónlistarhátíð á Spáni og er
eiginlega búin með tónlistina í bili
og sé líka enga tónleika sem mér
líst sérstaklega á þannig að það er
því aðallega myndlistina sem
heillar núna. Ég ætla í Gallerí
Hlemm og kíkja á nýútskrifuðu
listamennina, en ég þekki aðeins
til þeirra, og svo ætla ég að skoða
klisjurnar hans Péturs í Kling og
Bang. Ég á líka eftir að sjá
Smekkleysusýninguna marg-
frægu. Svo ætla ég að skella mér í
ormagryfjuna hjá nýjum hópi
sem kallar sig Ormana og sjá sýn-
ingu Óskar Vilhjálmsdóttur í
Þjóðarbókhlöðunni.“
Val Bjargeyjar
Þetta lístmér á!
SWEENEY TODD OG VINKONA
Sýningar Stúdentaleikhússins verða aðeins tvær og er seinni sýningin í kvöld. Verkið er
sýnt í Tjarnarbíói og fjallar um morðóða rakarann við Hafnargötuna.
✓
✓