Fréttablaðið - 28.06.2003, Qupperneq 27
■ ■ SAMKOMUR
Byggingadagur í Árbæjarsafni í
samstarfi við Menntafélag byggingariðn-
aðarins. Þar munu iðnaðarmenn meðal
annars fræða gesti um viðhald og end-
urbætur gamalla húsa. Byggingardagur-
inn er haldinn í tengslum við sýninguna
Saga byggingartækninnar, en þar má sjá
gömul verkfæri, handverk og byggingar-
hluta húsa. Sýningin er í Kjöthúsinu.
■ ■ KVIKMYNDIR
18.00 Kvikmyndaklúbbur Alliance
Française-Filmundur sýnir „L’enfer“/ de
Claude Chabrol með Emanuelle Béart,
François Cluzet og André Wilms. Hún er
sýnd í Háskólabíói.
■ ■ LEIKLIST
20.00 Grease sýnt í Borgarleikhús-
inu á Stóra sviðinu.
■ ■ TÓNLIST
22.00 Páll Óskar og Monika
leika í Café Flóru í Grasagarði Reykja-
víkur í Laugardal. Sérstakur gestur
verður Diddú.
■ ■ SÝNINGARLOK
Sýningarlok hjá Þóru Sigþórsdóttur í
vinnustofu hennar að Hvirfli í Mosfells-
dal. Sýningin er haldin utandyra og ber
heitið Leir frá hvirfli til ilja.
Síðasta sýningarhelgi í gallerí i8 á
verkum Eggerts Péturssonar.
Síðasta sýningarhelgi á sýningunni
„Aftur í Heimahagana“ í Listasetrinu
Kjirkuhvoli, Akranesi. Á sýningunni sýna
Áslaug Woustra Finsen og Rebekka
Gunnarsdóttir.
■ ■ SÝNINGAR
Sýning í Þjóðarbókhlöðunni. Sýn-
ingin hefur þann tilgang að sýna sögu-
lega þróun barnabóka og draga fram
samspil texta og myndskreytinga í
barnabókum.
Sýning á kínverskri samtímagrafík
og myndböndum um kínverska menn-
ingu. Að sýningunni standa kínverska
sendiráðið á Íslandi, Kínversk-íslenska
menningarfélagið og Félag Kínverja á Ís-
landi. Sýningin er í Ráðhúsi Reykjavíkur.
Sýning í húsgögnum sem vöktu
athygli á húsgagnasýingu í Kaup-
mannahöfn í maí siðastliðnum. Sýn-
ingin er í Kringlunni.
María Svandís er með sýningu á
Energia Bar í Smáralind. Sýningin stend-
ur til 1. ágúst.
Silla (Sigríður S. Pálsdóttir) heldur
sýningu í Þrastarlundi dagana 23. júní
til 7. júlí. Á sýningunni eru olíumálverk.
Sýning á verkum myndlistarkonunn-
ar Óskar Vilhjálmsdóttur í Þjóðarbók-
hlöðunni. Ósk hefur í verkum sínum
gjarnan teflt saman og kannað eigin-
leika einkarýmis og almannarýmis. Hún
hefur m.a. rannskað þá leyndardóma
einkalífsins sem birtast okkur í fjöl-
skylduljósmyndum.
Sýning í anddyri Norræna hússins
sem nefnist Vestan við sól og norðan
við mána. Á sýningunni eru ljósmyndir
eftir Ragnar Th. Sigurðsson með texta
eftir Ara Trausta Guðmundsson. Sýning-
unni lýkur 31. ágúst.
Í Hafnarborg, Hafnarfirði, stendur
nú yfir samsýningin “Rambelta“. Þar
sýna myndlistarmennirnir Erling T.V.
Klingenberg, Elva Dögg Kristinsdóttir,
Guðný Rósa Ingimarsdóttir, Gunnar Þór
Víglundsson, Högni Sigurþórsson, Ólafur
Árni Ólafsson, Libia Pérez de Siles de
Castro, Úlfur Grönvold og Þóra Þóris-
dóttir. Sýningin stendur til 7. júlí (alla
daga nema þriðjudaga).
Samsýning listamanna úr Gallery
VERU í Veitingahúsinu Ránni í Kefla-
vík. Sýningin stendur til 14. júlí. Sýndar
eru landslags- og blómamyndir.
Sýningin “Fame. I Wanna Live
Forever“ í Gallerí Hlemmi. Sýningin
er samsýning fimm núverandi og ný-
útskrifaðra nemenda Listaháskólans.
Tveir nemendur Listaháskólans, Auð-
ur Jörundsdóttir og Þorbjörg Jóns-
dóttir, völdu verkin á sýninguna.
Sýnendurnir eru Hildigunnur Birgis-
dóttir, Hörn Harðardóttir, Lóa Hlín
Hjálmarsdóttir, Ragnar Jónasson og
Tómas Lemarquis.
Silla (Sigríður S. Pálsdóttir) heldur
sýningu í Nauthól dagana 23. júní til 7.
júlí. Á sýningunni eru olíumálverk.
Lovísa Lóa Sigurðardóttir myndlist-
armaður sýnir í Rauða húsinu á Eyrar-
bakka 11 myndverk unnin í olíu og
blandaðri tækni á striga. Sýningin stend-
ur fram í ágúst.
Sýningin „Í nótt sefur dagurinn“ hef-
ur verið opnuð í versluninni 12 tónum.
Þetta er þriðja einkasýning Marý. Flest
eru verkin á sýningunni olíumálverk frá
þessu ári, þar sem leikið er með hin
ýmsu form.
Sýning á verkum Matthew Barney í
Nýlistasafninu. Sýningin stendur til 1.
ágúst.
Þrjár sýningar í Listasafni Reykjar-
víkur - Hafnarhúsinu. Sýningarnar
Humar eða frægð - Smekkleysa í 16 ár,
Innsýn í alþjóðlega samtímalist á Ís-
landi og Erró Stríð.
Ormarnir sýna í fyrsta sinn saman
listir sínar í húsnæði sem þeir fengu lán-
að Hafnarhvoli Tryggvagötu 11 í
Reykjavík. Ormarnir eða The Worms er
nýr hópur myndlistarfólks sem ögra og
gleðja augað, þeir láta ljós sitt skína þó
að nú sé sá tími ársins sem birtuskilyrð-
in eru sem best. Sýningin nefnist Haf-
sýnir og stendur til 29. júní.
Díana Hrafnsdóttir og Elva Hreið-
arsdóttir með sýningu á grafíkverkum í
Óðinshúsi á Eyrarbakka. Sýningin nefn-
ist Hafsýnir og verður opin föstudaga,
laugardaga og sunnudaga frá kl. 12-18.
Sýningin stendur til 29. júní.
LAUGARDAGUR 28. júní 2003
■ MYNDLIST
Það er mjöghollt fyrir alla
að fara inn í
þennan heim þar
sem orðin hafa
ekki lengur neina
þýðingu,“ segir
Eva María Jónsdóttir um sýningu
listamannsins Matthew Barney í
Nýlistasafninu. „Það er mjög
sjaldgæft að verða vitni að hug-
myndaflugi eins og Matthew
Barney hefur og það er líka
óvenjulegt að fá hingað listamann
sem tekur starf sitt jafn alvarlega
og vísindamaður.“
Mittmat
A›alvinningar:
10 Eimskipsboltar, árita›ir af
landsli›shetjum Íslands
Gá›u hva›a númer er á bolnum flínum*,
flví hér eru ni›urstö›urnar úr fyrsta útdrætti
sumarsins í happdrættinu:
*Allir leikmenn í 4. flokki kvenna og 5. flokki karla í knattspyrnu eru
sjálfkrafa flátttakendur í Eimskipsmótinu og hafa fengi› bol a› gjöf me›
happdrættisnúmeri áritu›u ne›st.
Nánari uppl‡singar er a› finna á heimasí›u Eimskips, www.eimskip.is.
Ertu flátttakandi í Eimskipsmótinu?
40 Eimskipsboltar
Aukavinningar:
Vinningshafar hafi samband vi› Hörpu fiorláksdóttur hjá Marka›sdeild
Eimskips í síma 525 7225. Vinningshafar utan höfu›borgarsvæ›isins
geta haft samband vi› næstu svæ›isskrifstofu Eimskips.
Næsti útdráttur ver›ur 25. júlí.
Númer hva›
er bolurinn flinn?
1160
1225
1512
2290
807
990
181
551
2449
2592
20
58
238
282
301
328
442
458
538
555
656
795
825
906
923
994
1009
1060
1098
1343
1709
1794
1878
2000
2012
2096
2228
2282
2301
2414
2484
2494
2497
2499
2552
2567
2603
2612
2785
2786
Þetta er flottasta sýning semhefur komið til Akureyrar, al-
veg yfirgengileg,“ segir Hannes
Sigurðsson, forstöðumaður Lista-
safns Akureyrar.
Í dag verður opnuð sýningin
„Meistarar formsins“ í Listasafn-
inu á Akureyri. Sýningin, sem er
verulega stór í sniðum, er unnin í
samstarfi við Ríkislistasafnið í
Berlín og að sögn Hannesar var
flutningur hennar til Íslands ekk-
ert smámál. „Það komu hingað til
Íslands tveir tuttugu feta gámar
frá Berlín. Einnig þurfum við að
sérsmíða 22 stöpla undir verkin
og sérstaka sýningarskápa, eitt-
hvað sem við erum ekki vön að
nota á Íslandi.“
Sýningin telur verk eftir 43
listamenn. „Við splæstum við
verk þýsku listamannanna fram-
varðarsveit okkar Íslendinga. Á
sýningunni er Dögun eftir Einar
Jónsson frá 1910 alveg til þess
sem er að gerast í dag í íslenskri
list. Við ákváðum einnig að velja
ekki endilega nýjasta verk hvers
listamanns heldur verk sem skír-
skota til ákveðins tímabils.“
Hannes hefur unnið í tvö ár að
undirbúningi sýningarinnar og
spurður um hvatann að vinnunni
segir hann hvatann einfaldlega
vera klikkun. „Listin er ótrúlega
falleg en hún er klikkun og feg-
urðin uppmáluð. Orkuna fæ ég
síðan líklegast frá himnaríki eða
helvíti.“
Eftir að hafa valið verkin frá
Ríkislistasafninu í Berlín ákvað
Hannes að bæta einu verki við.
„Ég fékk einnig „ferðatöskuna“
eftir Alex Lischke. Hún er gerð úr
polyester og inniheldur hand-
sprengjur, dínamít, skotvopn og
drápshnífa, öll grunnáhöld
hryðjuverkamannsins nú á dög-
um. Verkið gerði hann rétt fyrir
11. september en drápstólin
keypti hann í Austur-Þýskalandi
og verkið hefur aldrei áður haldið
út fyrir landsteinana.“
Sýningin stendur til 20. ágúst í
Listasafni Akureyrar. ■
FERÐATASKAN
Eitt þeirra verka sem sjá má á sýningunni.
Hún vegur 160 kílógrömm og inniheldur
öll grunnáhöld hryðjuverkamannsins nú á
dögum. Sýningin opnar í dag og stendur
til loka ágúst í Listasafninu á Akureyri.
Listin er klikkun
JÓN ODDUR GUÐMUNDSSON
Hressó
Minn byrjar að djamma í mennta-
skóla árið 1988 og þá var þetta
aðalstaðurinn. Maður beitti ýms-
um brögðum til að komast þangað
inn, því ekki var maður með ald-
ur. Bókaplast og ökuskírteinið
hans Tomma frænda.
Kaffi Strætó
Þar var maður svoldið mikið.
Einkum í verkfalli kennara, sem
maður þóttist vera í öngum sínum
út af – en hafði náttúrlega himin
höndum tekið.
Blúsbarinn
Á þessum tíma var einhver vakn-
ing í lifandi tónlist og hana mátti
meðal annars finna þarna. Þetta
er um 1990. Var í hópi menntskæl-
inga sem flæktist svona um.
Bíóbarinn
Hann tekur við af Blúsbarnum.
Þessi staður reyndist lífseigur og
ágætur til síns brúks. Hægt að
fara niður að dansa og/eða hanga
uppi við barborðið hjá Gausa.
Kaffibarinn
Þar var ég mikið og lengi. Sér-
staklega eftir að ég byrjaði á mín-
um vinnustað, Mættinum og dýrð-
inni, en hafði reyndar vanið kom-
ur mínar þangað áður.
Ölstofan
Svo verður það að bjórinn lækkar
niður í 450 og þá leitaði ég svoldið
þangað. Þeim skakkaföllum
mætti Kaffibarinn með því að
bjóða sama prís á virkum dögum
og ég hef sveiflast svoldið þar á
milli síðan. Og svo ef maður er
einstaklega vel upp lagður er það
náttúrlega 22.
Stiklur
úr skemmtireisu
✓
✓
✓