Fréttablaðið - 28.06.2003, Síða 29

Fréttablaðið - 28.06.2003, Síða 29
LAUGARDAGUR 28. júní 2003 29 SÍMI 553 2075 Sýnd kl. 2, 4, 6, 8 og 10 FRUMSÝNINGBRINGING DOWN THE H... 8, 10.10KANGAROO JACK kl. 4 og 6 Sýnd kl. 4, 6, 8 og 10 Sýnd kl. 3.45, 5.50, 8 og 10.10 b.i. 12 Sýnd kl. 4, 6, 8 og 10 b.i. 14 kl. 8 og 10 ANGER MANAGEMENTkl. 2, 4 og 6AGENT CODY BANKS THEY kl. 4, 6, 8 og 10 b.i. 16 IDENTITY kl. 4, 6, 8 og 10 b.i. 16 Sýnd kl. 2, 4, 6, 8 og 10 Sýnd kl. 5.30, 8 og 10.30 Söngvari Depeche Mode hefur vístgengið í mörg ár með þann draum í maganum að gera sólóplötu. Loks- ins nýtti hann tækifærið í fríi DM og kýldi á það. Eitthvað hefur pilturinn svo heillast af Sigur Rós því hann réð til sín Ken Thomas, upptökustjóra á tveimur síðustu plötum sveitarinnar. Það er kannski ekkert sanngjarnt en ég kemst ekki hjá því að bera lög- in á frumraun Gahan við lög Depeche Mode. Í hljómsveitinni hef- ur hann nánast aðeins verið í hlut- verki söngvara og lítið sem ekkert komið nálægt laga- og textasmíðum. Því hlutverki hefur Martin Gore sinnt, með blómlegum árangri. Það fyrsta sem maður verður var við er að lagasmíðar Gahan eru hvergi eins sterkar og þekkist hjá DM og plöt- una sárvantar útvarpsslagara. Einnig verður það að teljast frekar óskynsamleg ákvörðun hjá honum að tileinka sér hljóm sem svipar nokkuð til DM. Betur hefði verið að færa sig alveg frá forritunum og blúsgítarn- um. En ekki misskilja mig. Þetta er alls ekki slæm plata og vel skiljan- legt að Gahan sé nú fullur metnaðar og tali jafnvel um að slíta samstarfi sínu við Gore fái hann ekki að taka þátt í lagasmíðum. Á köflum rís plat- an jafnvel hátt, t.d. í laginu „Stay“. Gahan sannar það vel að hann getur svo sem haldið áfram að gera tónlist án Gore. En eftir að hafa heyrt plöt- una bið ég eiginlega til Guðs að hann láti ekki verða af hótunum sínum. Birgir Örn Steinarsson Umfjölluntónlist „Allt í lagi“- byrjun DAVID GAHAN: Paper Monsters TÖLVULEIKIR Tomb Raider-leikirnir vinsælu, með Löru Croft í farar- broddi, hafa aldrei verið þekktir fyrir góða stjórnun. Sá hluti leikj- anna var meira það sem menn sættu sig við til að fá að upplifa allt það góða sem leikirnir höfðu upp á að bjóða. Nú er stutt í út- gáfu nýjasta leiksins í bálknum, Tomb Raider: Angel of Darkness, og hin virta leikjavefsíða gamespot.com hefur þegar tekið hann til skoðunar. Þar á bæ eru menn ekki alls kostar ánægðir með leikinn, en hann á að marka nýtt og ferskt upphaf Tomb Raider á nýrri gerð leikjatölva. Þeir segja að vissu- lega séu umhverfin glæsileg og stórbrotin, þrautirnar vandaðar, spilunin fjölbreytt og sagan gríp- andi. En þeir segja að Lara láti jafn vel að stjórn og steypubíll, jafnvel verr en í gömlu leikjun- um. Þetta álíta þeir skemma leik- inn heilmikið þar sem spilandi deyr í sífellu við það að detta fram af öllum sköpuðum hlutum. Svo er grafíkin gölluð á köflum, myndavélin óþjál, óvinir sitja illa á umhverfinu og í raun augljóst að að leikurinn kom út áður en hugað hafði verið að öllu. ■ LARA CROFT Í HASAR Hér væri erfitt að koma steypubíl í gegn vandkvæðalaust. Nýr Tomb Raider-tölvuleikur fær slæma dóma: Illa hannaður leikurHinn fagurlega skapaði oghæfileikaríki Justin Timb- erlake komst enn einu sinni í fréttirnar, og nú vegna ástamála sinna. Komið hefur í ljós að hann og íðilfagra tág- granna lokka- fljóðið Cameron Diaz hafa hist á laun í 2 mánuði og ætla að koma fram í fyrsta skipti op- inberlega í Ástarskrúðgöngunni víðfrægu í Berlín. Þetta er fyrsta alvarlega samband Justins síðan hann hætti með barnalegu kyn- bombunni Britney Spears. Diaz hætti nýlega með leikaranum Jarred Leto, sem þekktur er úr „Requiem for a Dream“, eftir 4 ára samband. Hin breska Glastonbury-tónlist-arhátíð er nú hafin en þeir 112.000 aðgöngumiðar sem voru til sölu seldust upp á 18 klukkutímum og hátíðin er yfirtroðin. Fólk var byrjað að mæta nokkrum dögum áður en tónlist fór að hljóma og heilum degi fyrir opnunartónleika hljómsveitarinnar R.E.M. voru 50.000 manns mætt á svæðið og lögreglan búin að handtaka 17, flesta vegna fíkniefnabrota, en yf- irvöld á svæðinu hafa staðið að sé- stökum aðgerðum til að sporna gegn slíku. Stærstu nöfnin eru R.E.M., Radiohead og Moby, ásamt fjöldanum öllum af minni spá- mönnum. Framleiðendur framhalds Brid-get Jones Diary standa í við- ræðum við diskóboll- una John Travolta um að taka við hlutverki Colin Firth sem stóru ástar Bridget í myndinni. Í fyrstu vildu þeir fá George Clooney, en Renee Zellweger, sem leikur Bridget sjálfa, þvertók fyrir það vegna fyrri ástamála þeirra á milli. Því hafa þeir hafið viðræður við Pulp Fiction-goðið, án þess að neitt sé þó öruggt í þeim efnum. Handritshöfundar í Hollywoodáttu góða daga á áratugnum sem var að líða. Milli áranna 1992 til 1997 hækkuðu laun þeirra um 81%. Nú hafa þeir þó gert sér grein fyrir stöðnun á þessu sviði; á bilinu 1996-2001 hækkuðu laun þeirra um aðeins 0,6%, sem er gríðarleg rénun. Viðskiptafræð- ingar kenna því um að laun frægra leikstjóra og leikara halda áfram að hækka upp úr öllu valdi og því þurfi kvikmyndaverin að skera niður laun annarra. RIAA (Recording IndustryAssociation of America) hefur lengi átt í hatrönmu stríði við dreifingu tónlistar á Netinu. Nú ætla þeir virkilega í hart, en þeir segjast ætla að stefna mörgum hundruðum netnotenda sem deila stórum söfnum tónlistar á net- inu, í forritum á við Kazaa. For- maður nefndar þessarar segir gagnadeilingu með þessum hætti bæði ranga og ólöglega. Fyrir- tækið Sharman Networks, sem sér um og gefur út Kazaa, ásakar hins vegar RIAA um að lýsa yfir stríði við viðskiptavini sína, og að þeim þætti eðlilegra að fyrir- tæki þeirra og útgáfufyrirtæki ynnu saman að lausn á vandan- um. Fréttiraf fólki

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.