Fréttablaðið - 28.06.2003, Side 35
Ralf Schumacher á ekki sjödagana sæla í herbúðum
Williams-liðsins samkvæmt
heimildum. Menn innan liðsins
hafa gagnrýnt harðlega hversu
lítið hann hefur ógnað bróður
sínum, Michael Schumacher frá
Ferrari-liðinu, í keppnum sem
fram hafa farið, sérstaklega eft-
ir síðasta kappakstur í Kanada,
þar sem Ralf gaf eftir á loka-
sprettinum og endaði í fjórða
sæti. Félagi Ralf, Juan Pablo
Montoya, þykir einnig vera sek-
ur um slakan akstur í nokkrum
keppnum en hann hefur í það
minnsta einn sigur á bakinu fyr-
ir liðið í Mónakó. ■
35LAUGARDAGUR 28. júní 2003
RALF SCHUMACHER
Hefur ekki staðið undir væntingum Willi-
ams-liðsins. Fisichella eða Villeneuve eru
líklegir eftirmenn hans.
Metnaðar-
leysi Schu-
macher
Hinn eftirminnilegi upplýsinga-málaráðherra Íraks hefur
skotið upp kollinum að nýju eftir að
hafa farið huldu höfði síðan í apríl,
þegar stjórn Saddams Husseins var
hrakin frá völdum. Viðtöl við Mo-
hammed Saedd al-Sahhaf voru sýnd
á arabísku sjónvarpsstöðvunum Al-
Arabiya og Abu Dhabi TV.
Þegar framganga Bandaríkja-
manna og Breta í Bagdad stóð sem
hæst hélt Al-Sahhaf, eða „kómíski-
Ali“ eins og hann er gjarnan nefnd-
ur, því þráfaldlega fram að innrás-
arherinn væri að kikna undan of-
urafli íraskra hersveita. Raunin var
aftur á móti sú að andspyrna Íraka
var lítil sem engin.
Í viðtölunum segist al-Sahhaf
hafa gefið sig fram við bandaríska
herinn en verið sleppt að loknum
yfirheyrslum. Talsmaður banda-
ríska hersins fullyrðir að þetta eigi
ekki við rök að styðjast en bendir á
að vissulega sé al-Sahhaf áhuga-
verður sögumaður.
Al-Sahhaf segist ekki hafa til-
heyrt innsta hring Saddams
Husseins heldur verið fagmaður að
vinna vinnu sína. Hann neitaði að
draga til baka yfirlýsingar sínar
um að íraskar hersveitir væru „að
brenna Bandaríkjamenn í skrið-
drekum sínum“.
Upplýsingamálaráðherrann er
ekki á lista Bandaríkjamanna yfir
eftirlýsta ráðamenn í Írak. ■
KOMÍSKI-ALI
Í viðtali við arabíska sjónvarpsmenn sagðist Mohammed Saedd al-Sahhaf, fyrrum upplýs-
ingamálaráðherra, vera að vinna að bók.
Almannatengsl
■ Upplýsingaráðherra Íraka varð
heimsþekktur við innrásina á Írak
fyrir stórkarlalegar fullyrðingar um
árangur Íraska hersins.
Fagmaður að
vinna vinnu sína
Auglýsendur hafa ekki kveikt áþessari stöð og þess vegna
verðum við að grípa til þessara
ráðstafana,“ segir Kristján Þór
Jónsson, yfirmaður útvarpssviðs
Norðurljósa, en ákveðið hefur ver-
ið að hætta rekstri útvarpsstöðvar-
innar Sögu í þeirri mynd sem lagt
var upp með fyrir hálfu öðru ári.
Útvarp Saga verður ekki lengur
hrein talmálsstöð heldur verður ís-
lenskri tónlist bætt inn í dag-
skrána. „Útvarp Saga var tilrauna-
verkefni til eins árs. Við fram-
lengdum þann tíma en tekjurnar
hafa ekki skilað sér. Við höldum
samt áfram í breyttri mynd og
starfsmennirnir geta haldið áfram
útvegi þeir sér laun sjálfir,“ segir
Kristján Þór og á þá við að starfs-
mennirnir verði sér sjálfir úti um
kostunaraðila, hafi þeir þá ekki nú
þegar. Hrafnaþing Ingva Hrafns
Jónssonar er með kostunaraðila,
svo og þáttur Arnþrúðar Karls-
dóttur, en þættir Hallgríms Thor-
steinsonar og Sigurðar G. Tómas-
sonar ekki. Óvíst er því um fram-
tíð þeirra síðarnefndu á stöðinni.
„Við erum búnir að borga með
þessari stöð lengi og hefðum svo
innilega viljað að þetta gengi betur.
Við grípum ekki til þessara aðgerða
ógrátandi,“ segir Kristján Þór.
„Ég tek hattinn ofan fyrir
stjórnendum Norðurljósa, sem
hafa haldið stöðinni úti í sam-
keppni við aðila sem hafa efni á
því að tapa milljón á dag og senda
skattgreiðendum reikninginn,“
segir Ingvi Hrafn Jónsson, sem
stjórnað hefur Hrafnaþingi á út-
varpi Sögu frá upphafi. Hann ætl-
ar að halda áfram.
„Miðað við viðtökurnar sem ég
fékk þegar ég tilkynnti að ég væri
að hætta býst ég eins við að fram-
hald verði á,“ segir Sigurður G.
Tómasson, sem stjórnað hefur
morgunútvarpi Sögu um langt
skeið. Fyrirsjáanlegt er að íþrótta-
þættir Valtýs Björns verði áfram á
dagskrá Sögu, svo og viðskipta-
þátturinn. Þeir eru þegar kostaðir
af fyrirtækjum eða stofnunum.
„Við höldum áfram með Sögu
sem dægurmálaútvarp en hún
verður ekki lengur hreinræktuð
talmálsstöð,“ segir yfirmaður út-
varpssviðsins hjá Norðurljósum.
„Þeir dagskrárgerðarmenn sem
þar starfa, vinna að því að halda
sínum þáttum gangandi og leita
eftir kostun. Félagið vonast til að
það takist og að við þurfum ekki að
horfa upp á frekari uppsagnir okk-
ar félagsmanna,“ segir Róbert
Marshall formaður Blaðamannafé-
lags Íslands.
eir@frettabladid.is
ÚTVARP SAGA
Óvíst um framtíð ýmissa starfsmanna og þeim sjálfum gert að útvega sér kostunaraðila vilji þeir halda áfram.
Útvarp
■ Fullreynt þykir að unnt sé að reka
Útvarp Sögu með óbreyttu sniði. Til-
raunin með fyrstu talmálsstöðina í
íslenskri útvarpssögu mistókst og nú
verður íslenskri tónlist skeytt inn í
dagskrána.
Útvarp Saga gefst upp
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/I
N
G
Ó
LF
U
R