Fréttablaðið - 28.06.2003, Page 36

Fréttablaðið - 28.06.2003, Page 36
Alþjóðlegt rannsóknarsetur umsmáríki verður opnað með pompi og prakt á fimmtudaginn í næstu viku. Rannsóknarsetrið heyrir undir Alþjóðamálastofnun Háskóla Íslands. Baldur Þórhalls- son dósent er stjórnarformaður Rannsóknarseturs um smáríki og aðalhvatamaður að stofnun þess. „Ég var búinn að vera með þessa hugmynd lengi í kollinum, allt frá því að ég var að vinna að doktors- ritgerðinni um smáríki,“ segir Baldur. „Hugmyndin er að vera með þverfaglegt rannsóknarsetur í smáríkjafræðum og leggja áherslu á alþjóðasamvinnu fræði- manna milli Evrópu og Ameríku.“ Baldur segir fleiri fást við slík- ar rannsóknir í Evrópu. Hins veg- ar séu amerísku fræðimennirnir þekktari. „Við erum að nýta okkur landfræðilega stöðu, ásamt því hve vel hefur gengið hér efna- hagslega og pólitískt. Mönnum finnst mikið til þess koma og spennandi að skoða hvernig við förum að.“ Að setrinu koma um hundrað fræðimenn víðs vegar að úr heim- inum í ýmsum fræðigreinum. „Þegar maður fer af stað með svona hugmynd veit maður ekki hvernig hún endar. Það hefur því verið gaman að fylgjast með því hvað öllum þessum fræðimönnum finnst tilvalið að hittast á Íslandi. Það vilja allir vera með og fólk hefur sett sig í samband við okkur að fyrra bragði, án þess að við höfum verið að auglýsa okkur mikið.“ Aðildarríki Sameinuðu þjóð- anna eru 191. Af þeim er 41 ríki sem er með íbúafjölda undir einni milljón. Rannsóknarefnin eru því næg. Baldur segir smæð ríkja á alþjóðavettvangi birtast í smærri stjórnsýslu. „Vinnubrögð og starfshættir í smærri stjórnsýslu eru venjulega annars konar en í stærri.“ Hann segir einnig ýmis önnur sérkenni birtast í hagræn- um þáttum. „Smáríki eru venju- lega háðari inn- og útflutningi en stærri ríki.“ Í tengslum við opnun rann- sóknarsetursins koma góðir gest- ir. Dr. Peter Katzenstein, prófess- or við Cornell-háskóla, er einn af virtustu fræðimönnum á sviði smáríkjafræða. Aðrir sem munu ávarpa samkomuna eru forseti Ís- lands, Lennart Meri, fyrrverandi forseti Eistlands, og Tuiloma Ner- oni Slade, dómari við Alþjóða- glæpadómstólinn í Haag og fyrr- um stjórnarformaður Sambands smáeyjaþjóða innan Sameinuðu þjóðanna. ■ 36 28. júní 2003 LAUGARDAGUR ■ Jarðarfarir Pondus eftir Frode Øverli Rannsóknir ■ Rannsóknarsetur um smáríki byrjaði sem lítil hugmynd. Hugmynd sem heppn- aðist svo vel að smáríkjafræðingar um allan heim vilja ólmir hittast á Íslandi. Móðurást Auðbrekku 2, Kópavogi Meðganga og brjóstagjöf Mikið vöruúrval Garðyrkjumeistarinn ehf. sími 552 6824 og 896 6824. Netfang kriarn@ismennt.is Alhliða garðyrkjuhandbók Se nd um í p ós tkr öfu INDRIÐASTAÐIR SKORRADAL 2 FYRIR 1 UM HELGINA Sími 822 0055 / www.safaris.is J Ó L A H Ú S I Ð www.jolahusid.com Ath. ný aðkoma við Stjörnugróf Sími 568 8181 Byers-choice 30% afsláttur Nú leyfum við stelp- unum að...hahalda áfram að...syngja- hahaha... 13.30 Hrólfur Valdimarsson frá Vatns- fjarðarnesi verður jarðsunginn frá Ísafjarðarkirkju. 14.00 Egill Helgason, Skógargötu 17, Sauðárkróki, verður jarðsunginn frá Sauðárkrókskirkju. 14.00 Þórey Sverrisdóttir, Ásbraut 9, Kópavogi, verður jarðsungin frá Víkurkirkju, Vík í Mýrdal. 16.00 Þorbergur Einar Einarsson frá Ytri Sólheimum verður jarðsung- inn frá Víkurkirkju, Vík í Mýrdal. Palli og þið hinir! NÓG KOMIÐ! DR. BALDUR ÞÓRHALLSSON Gekk lengi með hugmynd að Rannsóknarsetri um smáríki sem nú er að verða að veruleika. Ísland í miðju smáríkjarannsókna Skóli

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.