Fréttablaðið - 28.06.2003, Side 40
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 515 75 00, fax: 515 75 16 Ritstjórn: 515 75 05, fax: 515 75 06, ritstjorn@frettabladid.is
Auglýsinga- og markaðsdeild: 515 75 15 - fax 515 75 16, auglysingar@frettabladid.is Dreifing: 515 75 00, dreifing@frettabladid.is
VI Ð S EG J U M F R É T T I R SM Á A U G L Ý S I N G AS Í M I N N E R 515 7500
Bakþankar
EIRÍKS JÓNSSONAR
Tedrykkja
www.IKEA.is
Mánud. - föstud. kl. 10:00 - 18:30, Laugard. kl. 10:00 - 18:00, Sunnud. kl. 12:00 - 18:00.
Rýmum fyrir nýjum vörum 26.6 - 20.7
Útsala
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
I
KE
06
/2
00
3
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
I
KE
06
/2
00
3
Fékk mér te eitt kvöldið til til-breytingar. Var að horfa á
Lone Star í sjónvarpinu og vildi
hafa eitthvað fyrir stafni á meðan.
Konan sagði mér að prófa teið
sem hún fékk í afmælisgjöf í ofur-
litlum pakkningum. Það var svo
dýrt. Dýrasta te í heimi, sagði
hún. Hellti í teketil og blandaði
sterkt. Drakk fram eftir kvöldi.
Vissi næst af mér klukkan
6:45 um morguninn við stofu-
gluggann; glaðvakandi að horfa á
fuglana marsera eins og herfor-
ingja í garðinum. Hafði ekki kom-
ið blundur á brá. Helvítis teið. Það
var örvandi. Líklega smyglað.
Minnir að það heiti Tjing-tjong.
Verst var að ég hafði mælt mér
mót við ferðafélaga til að ríða
hrossum til Þingvalla klukkan átta
um morguninn.
Mætti ósofinn og reið af stað.
Þyngsli næturinnar lágu á mér
sem mara þó sól skini í heiði. Fag-
ur fuglasöngur umbreyttist í
skræki. Lóan var ekki sjálfri sér
lík. Skjaldbreiður eins og ofbökuð
pizza, Ármannsfellið ógeðfellt og
Hlöðufellið ógeð. Fann helst fró í
mýbiti sem fyllti vit og suðaði
stíft um höfuð. Skildi nú betur en
áður elstu pyntingaraðferð heims,
sem felst í því að halda mönnum
vakandi þar til þeir viðurkenna
hvað sem er. Fátt brýtur niður af
viðlíka krafti og svefnleysi.
Skimaði eftir hentugum steini
sem ég gæti fallið á ef ég léti mig
detta af baki. Vildi ekki njóta, sjá,
heyra né lifa. Lífsneistinn var all-
ur. Sá hvergi nógu egghvasst grjót
sem örugglega myndi stytta mér
aldur. Reið því áfram þögull og
fár og komst á leiðarenda. Með
tárin í augunum. Gat loks sofnað
því Tjing-tjong var hætt að virka.
Svaf eins og Þyrnirós í heila
öld og vaknaði sjálfum mér líkur
við kvak fuglanna sem sungu nú
eins og Sibelius. Sólin breiddi
faðm sinn mót öllu sem lífsanda
dregur og sumargolan líktist silki
er hún kyssti kinn. Lífið brosti við
mér og ég sá möguleika í hverju
horni. Nú veit ég sem er að hvíld
er nauðsyn. Og tedrykkja getur
verið dýrkeypt.