Fréttablaðið - 14.07.2003, Qupperneq 2
2 14. júlí 2003 MÁNUDAGUR
Finnst mér rétt að verðlauna Tyrki
fyrir grikkinn sem þeir gerðu okkur
forðum? Er ekki nær að halda
íslenska daga í Vestmannaeyjum?
Undanfarið hafa sveitarfélög boðið upp á írska
daga, grænlenska daga og þar fram eftir
götunum. Lúðvík Bergvinsson er oddviti
Vestmannaeyjalistann sem er í meirihlutasam-
starfi í bæjarstjórn.
Spurningdagsins
Lúðvík, fer ekki að koma að
tyrkneskum dögum?
■ Innlent
■ Lögreglufréttir
FERÐALÖG Grænlenskir dagar á
Flateyri um helgina stóðu full-
komlega undir væntingum, að
sögn aðstandenda. „Það hefur
allt gengið upp,“ segir Guðmund-
ur Sigurðsson. Boðið var upp á
tónlist á heimsvísu, grænlenska
sjö manna trumbusveit, kór frá
Tasilaaq og heilt inúítaþorp þar
sem 18 Grænlendingar léku
þorpsbúa til forna.
Guðmundur sagði það örlítið
hafa skyggt á hátíðina að gámur
með búnaði Grænlendinganna 18
hafi misfarist, en því var reddað í
snarhasti. „Við reistum bara nýtt
inúítaþorp með heftibyssu og nú-
tímagræjum,“ segir Guðmundur.
Meðal dagskráratriða var
kajakkepnni sjö þjóða þar sem
Vestfirðingar höfnuðu í tveimur
efstu sætunum. Þá voru tónleikar
um allt, sölutjöld með varningi
gesta og heimamanna, varðeldur
og fjöldasöngur, dúndrandi dans-
leikir á kvöldin og Jonathan Motz-
feldt predikaði við messu í gær.
„Þá verður að nefna að Össur
Skarphéðinsson troðfyllti Vagn-
inn þegar hann hélt þar fyrirlest-
ur um samskipti Íslendinga og
Grænlendinga til forna. Þar sló
dr. Össur út skærustu popp-
stjörnur, því Vagninn hefur
aldrei verið eins troðinn og menn
aldrei jafn hugfangnir,“ segir
Guðmundur. „Svo hélt Guðni
Ágústsson tölu í íþróttahúsinu
sem verður í minnum höfð
hvenær sem tveir Flateyringar
koma saman.“ ■
Björgunarsveitin
á Hvolsvelli:
Barna og
kvenna leitað
LEIT Björgunarsveitin á Hvolsvelli
hóf leit að tveimur konum og
tveimur börnum um miðjan dag í
gær. Konurnar höfðu samband við
lögreglu þar sem jepplingur
þeirra sat fastur. Einu upplýsing-
ar um staðsetningu sem þær gátu
gefið lögreglu voru að um tveir
tímar voru frá því að þær tóku
bensín í Hrauneyjum.
Á fimmta tímanum fann björg-
unarsveitin þau og fylgdi þeim til
byggða. Hafði vegfarandi hjálpað
þeim að losa bílinn í millitíðinni. ■
MÁLAÐ YFIR JIHAD
Palestínskir öryggisverðir fylgjast með
þegar borgarstarfsmaður málar yfir slagorð
herskárra múslima.
Hamas og Jihad:
Hóta nýjum
árásum
BEIRUT, AP Tvenn samtök her-
skárra Palestínumanna, Hamas
og Jihad, hóta því að hefja aftur
árásir á ísraelska borgara ef ísra-
elsk stjórnvöld halda áfram að
brjóta gegn vopnahlésskilmálum
og palestínsk stjórnvöld halda
áfram að handtaka og afvopna
herskáa Palestínumenn.
Hamas og Jihad lýstu því ein-
hliða yfir í lok júní að þau myndu
hætta árásum á Ísraelsmenn um
þriggja mánaða skeið, en settu
ísraelskum stjórnvöldum jafn-
framt ákveðna vopnahésskil-
mála. ■
BAGDAD, AP Nýstofnað fram-
kvæmdaráð Íraks lét það verða
sitt fyrsta verk að lýsa 9. apríl al-
mennan frídag í landinu. Þann dag
féll stjórn Saddams Husseins fyr-
ir innrásarsveitum Bandaríkja-
manna og Breta.
Ráðið tók til starfa í gær og er
vonast til þess að með stofnun
þess megi þoka stjórnarfari land-
ins í áttina að lýðræði.
Í ráðinu eiga sæti 25 manns,
þar af þrettán sjítar, fimm súnnít-
ar, fimm Kúrdar, einn Túrkmeni
og einn er kristinnar trúar. Meiri-
hlutann mynda sjítar, enda eru 60
prósent landsmanna sjítar og
sættu þeir margs kyns harðræði
af hálfu stjórnar Saddams
Hussein, sem er súnníti. Sjítar
hafa hins vegar aldrei farið með
stjórn Íraks.
„Stofnun þessa ráðs er í sam-
ræmi við þjóðarvilja Íraka eftir
að einræðisstjórnin féll,“ sagði
Mohammed Bahr al-Uloum, virt-
ur sjítaklerkur sem á sæti í ráð-
inu.
Framkvæmdaráðið kemur
saman í dag til þess að velja sér
leiðtoga. Í tvo mánuði hafa staðið
yfir viðræður milli bandarísku
bráðabirgðastjórnarinnar og full-
trúa helstu þjóðfélagshópa um
skipan í framkvæmdaráðið. Þær
viðræður náðu hámarki í síðustu
viku.
Ráðinu er ekki ætlað að stjórna
til frambúðar. Innan fárra vikna
verður skipað í stjórnarskrár-
nefnd og í haust verður svo komið
á fót 200-250 manna stjórnlaga-
þingi, sem fær níu mánuði til þess
að setja saman drög að stjórnar-
skrá fyrir Írak. Í framhaldi af því
fara fram almennar kosningar um
þá stjórnarskrá.
Margir Írakar lýstu í gær
ánægju sinni með stofnun nýja
stjórnarráðsins, en aðrir eru tor-
tryggnir á áform Bandaríkja-
manna.
„Við viljum ekki að þetta ráð
verði notað af Bandaríkjamönn-
um til þess að ná fram markmið-
um sínum í Írak,“ sagði Bassem
al-Duleimi, 22 ára háskólanemi í
Bagdad. ■
RIGNINGIN
Rigningin slær engin met.
Vætusamt veður:
Svo gott að
það rignir
VEÐUR „Veðrið er svo gott að það
rignir,“ sagði Björn Sævar Einars-
son, veðurfræðingur á Veðurstofu
Íslands, þegar hann var spurður
út í úrkomuna síðustu daga og vik-
ur. Margir landsmenn eru orðnir
langþreyttir á bleytunni.
Síðasti alþurri dagur í Reykja-
vík var 3. júlí, fyrir tíu dögum.
Björn sagði úrkomuna undanfarið
ekki slá nein met og svo sem ekk-
ert merkilegt við hana, nema þá
helst að hún sé regnhlífarfær. Í
dag verða skúrir með köflum og
það sama gildir um morgundag-
inn. ■
EINN MEÐ FIMM RÉTTA Einn var
með fimm rétta í Lottó um helg-
ina og fékk hann 6,6 milljónir í
sinn hlut.
INNBROT UM HÁBJARTAN DAG Þó
innbrot í bíla séu algengust að
næturlagi gerði þjófur í
Kópavogi sér lítið í gær og
braust inn í bíl um miðjan dag.
Hann komst reyndar ekki langt
áður en hann var stöðvaður af
lögreglu.
BÍLSLYS Í HLÍÐUNUM Nokkuð
harður árekstur varð á mótum
Barmahlíðar og Lönguhlíðar að-
faranótt sunnudags. Að sögn
lögreglu skemmdust bílarnir
mikið og þurfti kranabíl til að
fjarlæga þá. Ökumenn bifreið-
anna voru fluttir á slysadeild
með sjúkrabifreiðum en ekki
var talið að um alvarleg meiðsl
hafi verið að ræða.
MIKIL UMFERÐ Í umdæmi
Húsavíkurlögreglunnar er mik-
ill straumur ferðamanna. Að
sögn lögreglunnar höfðu um tíu
troðfullar rútur farið í gegnum
bæinn á aðeins einum degi.
Flestir eru á leið í Ásbyrgi, að
Mývatni eða í Vaglaskóg.
Mikið fjölmenni var á írskum dögum á Akranesi:
Gestir tvöfalt fleiri en heimamenn
FERÐALÖG Sigurður Sverrisson,
skipuleggjandi írskra daga á Akra-
nesi, lýsir mikilli ánægju með
hvernig til tókst um helgina.
„Þetta er í fjórða skipti sem
hátíðin er haldin. Í fyrra gerði fár-
viðri á laugardeginum þannig að
hátíðin fauk út í veður og vind, en
í ár var veðrið með okkur.“
Sigurður segir írska daga haldna
í tilefni þess að á Akranesi var frá
fornu fari írskt landnám. „Hér
komu írskir bræður, Þormóður og
Ketill Drésasynir, um 880, og námu
land. Þá voru hér reyndar einhverj-
ir skúrkar fyrir, en þeir bræður
ráku þá út í hafsauga og skiptu
svæðinu sunnan og norðan Akra-
fjalls á milli sín. Við erum með há-
tíðinni að reyna að endurvekja
þessar sögulegu minningar.“
Um helgina var spiluð írsk tón-
list í öllum skúmaskotum á Akra-
nesi. „Við vorum með risastóran
markað í vöruskemmu hér í bænum
og eina mjög skemmtilega nýjung
sem var götugrill á föstudagskvöld-
ið. Fólk var hvatt til að koma út á
göturnar með grillin sín og hér
voru í gangi að minnsta kosti 20
risastórar grillveislur. Markmiðið
er auðvitað að virkja heimafólk, en
hér voru í kringum 14.000 manns
þegar mest var.“ ■
GRILLAÐ Á GÖTUM ÚTI
Heimamenn komu út á stræti og torg
með grillin sín og slógu upp allsherjar
grillveislu.
SANDKASTALAKEPPNI
Veðrið lék við Skagamenn, sem héldu sand-
kastalakeppni á hátíðinni um helgina
MANNFJÖLDINN Á FLATEYRI FIMMFALDAÐIST UM HELGINA
Tilgangur hátíðarinnar var að kynna Íslendingum grænlenska menningu og koma á sam-
skiptum fólks.
Fjölmenni á grænlenskum dögum á Flateyri:
Reistu grænlenskt þorp
Skref í áttina
að lýðræði
Nýtt framkvæmdaráð hefur tekið til starfa í Írak. Brotthvarfs Saddams
Husseins verður minnst með almennum frídegi. Tortryggni gætir enn í
garð Bandaríkjamanna.
AP
/M
AR
W
AN
N
A
AM
AN
I
FRÁ FYRSTA FUNDI FRAMKVÆMDARÁÐSINS
Massoud Barzani, leiðtogi Kúrda, og Mohammed Bahr al-Uloum, virtur sjítaklerkur frá
Najaf, eiga báðir sæti í nýja framkvæmdaráðinu í Írak.
AP/EFR
EM
LU
K
ATSKY