Fréttablaðið - 14.07.2003, Qupperneq 4
4 14. júlí 2003 MÁNUDAGUR
Var innrásin í Írak réttlát aðgerð?
Spurning dagsins í dag:
Telur þú að hnífstungumaðurinn í
Hafnarstræti fengi þyngri dóm færi
hann fyrir herrétt?
Niðurstöður gærdagsins
á www.frett.is
57,2%
42,8%
Nei
Já
Kjörkassinn
Farðu inn á frett.is og segðu þína skoðun
frétt.is
BRUSSEL, AP Guy Verhofstadt, for-
sætisráðherra Belgíu, greindi
frá því frá því fáeinum klukku-
stundum eftir að hann sór emb-
ættiseið sinn á laugardag að
fljótlega verði sett ný lög um
stríðsglæpi í stað umdeildra
laga frá árinu 1993.
Mannréttindahópar og fleiri
samtök hafa notað þessi
belgísku lög til þess að kæra
ráðamenn á borð við George W.
Bush Bandaríkjaforseta, Tony
Blair, forsætisráðherra Breta,
og Ariel Sharon, forsætis-
ráðherra Ísraels, fyrir stríðs-
glæpi, við litla hrifningu leiðtog-
anna og stuðningsmanna þeirra.
Lögin frá 1993 veittu belgísk-
um dómstólum heimild til þess
að taka við kærum um stríðs-
glæpi án tillits til þess hvar þeir
voru framdir né hverrar þjóðar
meintir stríðsglæpamenn eru.
Samkvæmt nýju lögunum verða
annað hvort fórnarlömb stríðs-
glæpa eða gerendur að vera
belgískir ríkisborgarar eða hafa
verið búsettir þar í þrjú ár áður
en kæra er lögð fram.
Stjórnarflokkarnir í Belgíu
hlutu þingmeirihluta í kosning-
um í maí og verða því annað
kjörtímabil í stjórn. ■
TEKNIR VIÐ STJÓRN Á NÝ
Louis Michel utanríkisráðherra, Patrick
Dewael innanríkisráðherra og Guy Verhof-
stadt forsætisráðherra. Stjórn vinstri- og
miðjuflokka hélt velli í þingkosningum í
maí.
Fyrsta verk ríkisstjórnar Belgíu:
Stríðsglæpalögum breytt
DÓMSMÁL „Ég fékk að vita af
breyttum vistunarstað eftir óform-
legum leiðum, sem er mjög óeðli-
legt,“ segir Sveinn Andri Sveins-
son, lögmaður hnífstungumanns-
ins. Hann furðar sig á því að
stjórnvöld sem hafa lagt mikla
áherslu á að farið
væri í einu og öllu
að lögum við
ákvörðun um hver
skuli fara með lög-
sögu í málinu skuli
ekki hafa gætt þess
að tryggja að
ákærði og lögmaður hans yrðu
upplýstir um flutning hans í vörslu
varnarliðsins. Þeirra réttur hafi í
raun verið sniðgenginn.
Hann segir líklegt að allir hafi
verið svo uppteknir af því að ná
samningum á milli ráðuneyta,
varnarliðsins og saksóknara að
gleymst hafi að sakborningur væri
í málinu og verjandi að vinna fyrir
hann. Þetta hafi verið afgreitt eins
og hver önnur vörusending. „Bæði
ég og hann erum ágætlega sáttir
við niðurstöðuna,“ segir Sveinn
Andri. Hins vegar finnst honum
mjög óeðlilegt að vera ekki með í
ráðum. „Hvorugur okkar hefur
hugmynd um á hvaða skilmálum
hann fór á varnarsvæðið.“
Sveinn Andri segir að spurn-
ingin um lögsöguna hafi verið
skilin eftir opin. Breyttur vistar-
staður sé fyrsta skrefið í að færa
lögsöguna nær varnarliðinu. „Ég
fæ ekki annað séð en að gæslu-
varðhald í skilningi íslenskra
laga sé lokið. Ríkissaksóknari
getur ekki falið öðru ríki að
framkvæma gæsluvarðhald, það
á sér ekki lagastoð.“
Hann segir hluta af breyting-
unum hafa verið til að fá að yfir-
heyra varnarliðsmennina fjóra.
Nú sé hins vegar að sjá hvað
Hæstiréttur geri í dag þegar
kæra á gæsluvarðhaldsúrskurð
verður tekin fyrir. „Ég er á því að
málið verði fellt niður. Úrskurð-
urinn frá Hæstarétti sem beðið
er eftir er orðinn óþarfur. Á sín-
um tíma kröfðust Bandaríkja-
menn þess að fá lögsögu yfir hon-
um en til vara að þeir tækju að
sér gæslu hans.“
Varnarliðsmaðurinn hefur
þjálfun sem herlögreglumaður en
starfar við viðhald á öryggisbún-
aði hjá flotanum. Sveinn segir að
mögulega gæti verið freistandi
fyrir hann að vera dæmdur af ís-
lenskum dómstólum í von um létt-
ari dóm. Það sé tvennt sem reyni á,
neyðarvörnin og refsiþyngdin. „En
fyrst og fremst er hann hermaður
og vill vera áfram í hernum. Ef yf-
irboðarar hans vilja rétta í málinu
þá vill hann það líka.“
hrs@frettabladid.is
DANMÖRK Áfengisneysla í Dan-
mörku hefur aukist verulega á
síðustu þremur áratugum. Hátt í
fimm prósent landsmanna látast
fyrir aldur fram af völdum óhóf-
legrar neyslu áfengra drykkja,
samkvæmt nýrri rannsókn á veg-
um danskra heilbrigðisyfirvalda.
Sérfræðingar telja að skýring-
anna á hárri tíðni dauðsfalla sé
fyrst og fremst að leita í aukinni
neyslu. Hver Dani drekkur nú að
meðaltali 11,5 lítra af hreinum
vínanda á ári. Þetta er meira en
helmingsaukning frá því á sjö-
undaáratugnum en þá dóu aðeins
um tvö prósent þjóðarinnar af
völdum ofdrykkju.
Drykkjan hefur einkum aukist
í aldurshópnum 16 til 24 ára. ■
VARASAMAR VEIGAR
Óhófleg áfengisneysla dregur um fimm
prósent Dana til dauða.
Aukin áfengisneysla:
Danir drekka sig í hel
SVEINN ANDRI SVEINSSON, LÖGMAÐUR HNÍFSTUNGUMANNSINS
Sveinn Andri segir úrskurð Hæstaréttar um gæsluvarðhald mannsins óþarfan.
Réttur ákærða
sniðgenginn
Sveinn Andri Sveinsson, réttargæslumaður varnarliðsmannsins, furðar
sig á að ríkissaksóknari hafi ekki tryggt að ákærði og réttargæslumaður
yrðu upplýstir um breyttan vistunarstað.
■
Fyrst og fremst
er hann her-
maður og vill
vera áfram í
hernum.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/V
IL
H
EL
M
Vikingaskipið Íslending-
ur:
Skrópaði á
Írskum dög-
um
VONBRIGÐI Víkingaskipið Íslend-
ingur brást vonum Skagamanna
þegar það mætti ekki til leiks á
Írska daga sem haldnir voru há-
tíðlegir um helgina.
Koma skipsins hafði verið und-
irbúin á Akranesi og til stóð að
bjóða fólki að skoða skipið og
jafnvel láta með því úr höfn. Að-
standendur hátiðarinnar fengu
þær skýringar að skipið væri fast
í Grindavíkurhöfn. Ekki náðist í
eiganda Íslendings vegna þessa. ■
JÓHANNA SIGURÐARDÓTTIR
Átelur félagsmálaráðherra fyrir að ætla að
láta úrskurðinn standa en breyta ekki lög-
um þannig að orlof verði greitt.
Orlof ekki greitt:
Óviðunandi
mismunum
FÆÐINGARORLOF „Mér sýnist að
þetta leiði til þess að það skapist
réttaróvissa sem ekki verður eytt
nema með lagabreytingu eða fyrir
dómstólum,“ segir Jóhanna Sig-
urðardóttir, þingmaður Samfylk-
ingar, um þá niðurstöðu úrskurð-
arnefndar fæðingarorlofsmála að
foreldrar eigi ekki rétt á greiðslu
orlofs fyrir þann tíma sem þeir
eru í fæðingarorlofi.
Jóhanna segir niðurstöðuna
skapa mikla mismunun á foreldr-
um í fæðingarorlofi eftir því
hvort þeir vinni fyrir hið opinbera
eða einkaaðila. „Þessi úrskurður
þýðir, ef honum verður ekki
hnekkt, að foreldrar á almenna
markaðnum hafa þremur vikum
skemmra fæðingarorlof en þeir
sem eru á opinbera markaðnum.“
Ekki náðist í Árna Magnússon
félagsmálaráðherra í gær. ■
Flóðin í Kína:
500 látnir
PEKING, AP Flóð og aurskriður hafa
orðið rúmlega 500 manns að bana
í Kína frá því flóðatíminn hófst í
júníbyrjun.
Í gær varð
skriða í miðhluta
landsins að
minnsta kosti
fjórum að bana,
en leitað var að
tuttugu manns að
auki. Þá var leitað
að fimmtíu manns
sem óttast var að
hafi farist þegar
skriða féll í suðurhluta landsins.
Um það bil ein og hálf milljón
manna standa vaktir við fljótið
Huai í Anhui-héraði til þess að
fylgjast með hvort flóðgarðar
haldi. ■
KARLAR
L U J T Mörk Stig
Þróttur 10 6 0 4 18:13 18
KR 10 5 2 3 12:12 17
Fylkir 9 5 1 3 13:7 16
Grindavík 9 5 0 4 14:15 15
ÍBV 10 4 1 5 16:15 13
Valur 9 4 0 5 12:15 12
KA 9 3 2 4 13:12 11
FH 9 3 2 4 14:15 11
ÍA 9 2 4 3 11:12 10
Fram 8 2 2 4 10.17 8
KA-ÍBV 3:1
ALLT Á FLOTI
Starfsmenn papp-
írsverksmiðju
reyna sitt besta til
að bjarga fram-
leiðslunni.
Samtök atvinnulífsins:
Eins og lagt
var upp með
FÆÐINGARORLOF „Við teljum úr-
skurðinn vera í samræmi við fyr-
irkomulagið sem
var ákveðið þegar
lögum um fæðing-
arorlof var breytt
fyrir tveimur
árum,“ segir Ari
Edwald.
Ari segir breyt-
inguna sem gerð
var á lögunum fyrir
tveimur árum hafa
verið gríðarlega og
mikinn ávinning
fyrir foreldra. „Það
var hins vegar ekki gert ráð fyrir
því að orlof kæmi ofan á það og
það var ekki inni í neinu kostnað-
armati.“ Að sögn Ara fælist 10,7%
aukakostnaður í breytingunni.
„Starfsmönnum hins opinbera eru
á mörgum sviðum ætluð meiri og
betri réttindi en fólki á hinum al-
menna vinnumarkaði. Þetta er
auðvitað óviðunandi staða en það
er ekki hægt að setja endalausar
klyfjar á atvinnulífið.“ ■
ARI EDWALD
„Opinberir
vinnuveitendur
hljóta að þurfa
að laga sig að
raunveruleikan-
um.“
Rannsóknarnefnd flug-
slysa:
Verra ástand
flugbrautar
FLUG Rannsóknarnefnd flugslysa
hefur lokið rannsókn á atviki sem
varð á Hornafirði í desember árið
2001, þegar vél í áætlunarflugi frá
Reykjavík rann út af flugbrautinni
eftir lendingu.
Í niðurstöðum rannsóknarnefnd-
arinnar segir að ástand flugbraut-
arinnar hafi verið verra en fram
hafi komið í veðurskeyti og í
ástandslýsingu sem flugmenn
fengu í fjarskipum. Að mati nefnd-
arinnar hefði átt að koma til álita að
hætta við lendingu áður en flugvél-
in snerti flugbrautina og bíða með-
an él gengu yfir. ■