Fréttablaðið - 14.07.2003, Síða 6
6 14. júlí 2003 MÁNUDAGURVeistusvarið?
1Hvað hétu írönsku síamstvíburarnirsem reynt var að aðskilja?
2Fyrsta íslenska konan lauk sveinsprófií flugvirkjun á dögunum, hvað heitir
hún?
3Hver er markahæsti leikmaður Land-bankadeildar karla í fótbolta?
Svörin eru á bls. 26
KEYRT Á UMFERÐARSKILTI Bíll
eyðilagðist er honum var keyrt á
skilti við Austurveg á Selfossi á
sunnudagsmorgun. Að sögn lög-
reglunnar er bíllinn nánast ónýtur
en ökumaðurinn er ómeiddur.
ERILL Á AKUREYRI Mikill erill
var á Akureyri aðfaranótt sunnu-
dags. Að sögn lögreglu var mikið
af fólki í bænum og ölvun tals-
verð. Tveir voru teknir grunaðir
um ölvun við akstur.
FJÖLMENNI Á UNGMENNAFÉ-
LAGSHÁTÍÐ Margt var um mann-
inn á Egilsstöðum um helgina en
þar var Ungmenna- og íþróttasam-
band Austurlands með sína árlegu
hátíð. Allt fór mjög vel fram.
■ Lögreglufréttir
LUNDÚNIR, AP „Stjórnin þarf að
svara einni einfaldri spurningu.
Hvernig stendur á því að sannan-
ir hennar fyrir því að samið hafi
verið um úraníumkaup sann-
færðu ekki bandarísku leyniþjón-
ustuna?“ spyr Robin Cook, fyrr-
verandi utanríkisráðherra Bret-
lands, í breska dagblaðinu
Sunday Times í gær.
Öll spjót standa eina ferðina
enn á Tony Blair, forsætisráðherra
Breta, vegna fullyrðinga í skýrslu
bresku stjórnarinnar um að Írakar
hafi ætlað sér að kaupa úran til
kjarnorkuvopnasmíði. George W.
Bush Bandaríkjaforseti tók þessa
fullyrðingu upp í stefnuræðu sinni
í janúar, en bandaríska leyniþjón-
ustan, CIA, segir Breta ekki hafa
haft nógu traustar heimildir og
því hefði Bush ekki átt að fullyrða
þetta í ræðu sinni.
„Ef þetta var ekki nógu gott til
þess að vera í stefnuræðu forset-
ans, þá var það ekki nógu gott til
þess að vera í skýrslu stjórnarinn-
ar,“ bætti Robin Cook við í opnu
bréfi til Blairs.
Þá hvetur Claire Short, fyrr-
verandi ráðherra í stjórn Blair,
hann til þess að segja af sér vegna
málsins áður en það versnar enn.
Fullyrðingar bresku stjórnar-
innar um að Írakar hafi ætlað að
kaupa úraníum í Afríku voru
óspart notaðar til þess að rétt-
læta árásina á Írak. ■
TONY BLAIR
Forsætisráðherra Breta er enn á ný gagn-
rýndur fyrir að nota vafasamar heimildir
til þess að réttlæta árásina á Írak.
Tony Blair á enn í vök að verjast vegna innrásar í Írak:
Fyrrum ráðherrar aðgangsharðir
HÚSNÆÐI „Ef áhrif Suðurlands-
skjálfta í Reykjavík eru grand-
skoðuð og sögulegar heimildir
rannsakaðar, þá virðist aldrei
hafa orðið neitt tjón á bæjum í
Reykjavík,“ segir Júlíus Sólnes
prófessor. „Þegar maður reiknar
svo áhrifin af þessum skjálftum
fyrir austan fjall, í Henglinum og
reyndar líka á Reykjanesi og í
Krýsuvík, sem eru staðirnir næst
okkur, þá virðast þeir ekki geta
valdið miklu tjóni í borginni.“
Júlíus bendir á að borgin sé
vissulega stór og að á jaðarsvæð-
unum, þar sem nýjustu byggðirn-
ar eru, gætu áhrif skjálfta orðið
umtalsverð. „En frá Elliðaám, og
að ég tali nú ekki um þegar komið
er vestur í Kvosina, er hættan á
tjóni nánast engin.“
Sem dæmi um byggingar sem
hafa verið byggðar á síðustu árum
og eru óþarflega rammgerðar
nefnir Júlíus byggingar austan
Kringlumýrarbrautar. „Þar er oft
gert ráð fyrir miklu meira jarð-
skjálftaálagi en útreikningar okk-
ar sýna að sé eðlilegt,“ segir hann.
Rafstöðvum á svæðinu segir
Júlíus stafa meiri hætta af eldgos-
um en jarðskjálftum. „Til dæmis
eru Búrfellsvirkjanir og virkjan-
irnar í Þjórsá í útjaðri jarð-
skjálftasvæðisins á Suðurlandi,
þannig að áhrifanna er farið að
gæta mjög lítið.“
Hann segir virkjanirnar hafa
verið hannaðar fyrir mjög mikið
jarðskjálftaálag, sem sé réttlæt-
anlegt í ljósi þess hversu mikil-
væg þessi mannvirki eru.
„Það er þó alltaf erfitt að meta
þessa hluti, það fer eftir því hvort
við erum að tala um skjálfta sem
geta komið á 500 ára fresti, eða
jafnvel tíu þúsund ára fresti, og
flókið að meta hvað er skynsam-
legt og eðlilegt í þjóðhagslegu og
efnahagslegu tilliti.“
Talið er að stærstu skjálftar á
Suðurlandssvæðinu geti farið yfir
sjö stig á Richter, og áður var talið
að stærstu skjálftarnir frá mið-
öldum hefðu verið jafnvel enn
stærri.
„Menn hafa kannski verið að
draga örlítið í land eftir rannsókn-
ir á seinni árum,“ segir Júlíus.
„Jarðskjálftinn sem lagði nánast
allt Suðurlandsundirlendið í rúst
árið 1794 er talinn stærsti skjálfti
sem hefur komið á Íslandi. Menn
héldu hann hafa verið 7,5 stig á
Richter, en nú er talið að hann hafi
ekki verið meira en 7,2 stig.
Skjálftarnir árið 2000 voru 6,5 og
6,6 stig og komust vissulega ná-
lægt þessum stóru skjálftum, en
þar sem þeir eiga upptök sín í
miðju Suðurlandssvæðisins draga
áhrif þeirra varla inn til Reykja-
víkur.“
edda@frettabladid.is
AUSTURVER ER EITT HINNA RAMMBYGGÐU HÚSA
Fjöldi bygginga austan Kringlumýrarbrautar er byggður með tilliti til jarðskjálfta. Þar er þó
lagt í óþarfa kostnað því áhrifa Suðurlandsskjálfta myndi lítið gæta í Reykjavík.
Of rammgerðar og
dýrar byggingar
Jarðskjálftaálag á byggingum í Reykjavík hefur verið ýkt. Byggingar á sumum svæðum eru
óþarflega dýrar og rammgerðar, því áhrif skjálftans yrðu lítil sem engin innan borgarmarkanna.
Borgartúni 21 105 Reykjavík Sími 569 6900 Fax 569 6800 www.ils.is
1. flokki 1991 – 46. útdráttur
3. flokki 1991 – 43. útdráttur
1. flokki 1992 – 42. útdráttur
2. flokki 1992 – 41. útdráttur
1. flokki 1993 – 37. útdráttur
3. flokki 1993 – 35. útdráttur
1. flokki 1994 – 34. útdráttur
1. flokki 1995 – 31. útdráttur
1. flokki 1996 – 28. útdráttur
2. flokki 1996 – 28. útdráttur
3. flokki 1996 – 28. útdráttur
Frá og með 15. júlí 2003 hefst innlausn
á útdregnum húsbréfum í eftirtöldum flokkum:
Innlausnarverðið er að finna í Morgunblaðinu
mánudaginn 14. júlí.
Innlausn húsbréfa fer fram hjá Íbúðalánasjóði, í bönkum,
sparisjóðum og verðbréfafyrirtækjum og liggja þar einnig
frammi upplýsingar um útdregin húsbréf.
Innlausn
húsbréfa
Húsbréf
AFGIRT LÓÐIN
Íbúar seldu bandaríska sendiráðinu lóðina
fyrir nokkrum árum en telja að sú sala hafi
verið ólögleg.
Lóðagjöld:
Tekin af
GJÖLD Steingrímur Ólafsson hjá
Reykjavíkurborg segir að íbúar við
Laufásveg 19 hafi ekki verið látnir
borga fasteignagjöld af lóð sem
þeir seldu bandaríska sendiráðinu.
„Þegar ég slæ þetta heimilisfang
inn sé ég að íbúar borga 0 krónur í
lóðargjald,“ segir Steingrímur og
bætir við: „Við fáum stofninn frá
Fasteignamatinu einu sinni á ári.
Við tökum lóðargjöldin af áður en
við reiknum út fasteignagjöldin.
„Það er hins vegar annað mál
hvernig framferði bandarískra
stjórnvalda er gagnvart þessu
fólki,“ segir Steingrímur. „Þetta
minnir mig á Laxdælu þar sem
Kjartan meinaði Bolla og hans fólki
að dreita.“ ■
Kaupm.höfn
London
París
Berlín
Algarve
Benidorm
Torrevieja
Krít
Kýpur
Róm
New York
Miami
21°C skýjað m. köflum
26°C Skýjað m. köflum.
27°C heiðskírt
25°C skýjað m. köflum
24°C léttskýjað
32°C heiðskírt
33°C heiðskírt
27°C heiðskírt
32°C heiðskírt
28°C Skýjað
20°C skýjað og skúrir
30°C skýjað og skúrir
SunnudagurÍ dag
Mánudagur
Veðrið úti í heimi í dag
Úrkomusvæði eru skyggð á kortinu. Minniháttar skúraleiðingar eru táknaðar með dropum. Hitatölur sýna hæstu hitagildi dagsins.
Veðrið
SKRÝTNIR
KARLAR.
Núna næstu daga
erum við að sigla inn
í nokkuð eindreginn
hlýindakafla samfara
því að sú gula brýst
fram í meira mæli en
verið hefur. Þetta ætti
að létta ferðalöngum
lífið. Í dag verður
víða gott veður og
síðdegis má búast
við besta veðrinu á
Ísafirði og á Flateyri,
svo dæmi séu tekin.
Á Höfn í Hornafirði
verður hins vegar
vætusamt síðdegis í
dag. Er það ekki
þannig sem veiði-
dellukarlar vilja hafa
sumarið? Skrýtnir
þessir
veiði-
karlar.
Kveðja,
Sigurður Þ.
Ragnarsson
veðurfræðingur
Breytileg átt Gola
Gola
Gola
Hægur
vindur
Hægur
vindur
Hægur vindur
Gola
Gola
(Nokkur óvissa í spánni)
Hægur
vindur
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/
VI
LH
EL
M