Fréttablaðið - 14.07.2003, Page 8
14. júlí 2003 MÁNUDAGUR
ÚTSALAN
Hefst í dag
kl. 10
Siglingadagar 2003
Ísafirði 18. til 27. júlí
Nánar á: www.isafjordur.is/siglingadagar
N
e
th
e
im
a
r
e
h
f.
IÐNAÐUR „Tilraunaverkefnið gengur
ágætlega,“ segir Tryggvi Finnsson,
framkvæmdastjóri Atvinnuþróun-
arfélags Þingeyinga, um frumskoð-
un verkefnis sem miðar að því að
byggja polyol-verksmiðju á Húsa-
vík stendur yfir. Hugmyndin snýst
um það að framleiða úr sykri
ákveðin efni til efnaiðnaðar sem
hingað til hafa verið framleidd úr
olíu og gasi. Tilraunaverksmiðja
hefur verið reist í Suður-Afríku í
samstarfi við fyrirtæki þar í landi.
„Menn sjá fyrir endann á því að
það geti verið tæknilega mögulegt
og arðbært að gera þetta.“ Að sögn
Tryggva krefst iðnaðurinn mikils
hita og gufu og eru aðstæður góðar
á Húsavík vegna nálægðar við
gufuorku á Þeistareykjum.
Tryggvi segir verkefnið nú í 18
mánaða frumskoðun, og að öllum
líkindum liggi fyrir haustið 2004
hvort af byggingu verksmiðjunnar
verður. „Það er verið að þróa
ferilinn og við þurfum að fá
endanlegar niðustöður úr því.
Síðan þarf að reikna út arðsemi
þess að gera þetta hér.“
Að sögn Tryggva snýst verkefn-
ið um að byggja verksmiðju sem
framleiðir rúm 100.000 tonn af efn-
um á ári, en 70 manns myndu starfa
við verksmiðjuna. ■
LONDON Jessica Lynch, 19 ára
óbreyttur hermaður í Bandaríkja-
her, var hvorki skotin né stungin
af íröskum hermönnum. Þá var
hún heldur ekki pyntuð meðan
hún var í haldi Íraka. Þetta kemur
meðal annars fram í skýrslu
Bandaríkjahers.
Setið var fyrir
bílalest banda-
rískra hermanna
23. mars. Þrjátíu og
þrír hermenn í 18
faratækjum urðu
fyrir árásinni.
Nú liggur fyrir
að mistök og bilanir urðu þessa
valdandi. Vandræðin hófust þegar
örþreyttur liðsforingi bandarísku
hermannanna tók ranga beygju á
vegi skammt frá borginni Nasar-
iyah. Hersveitin hafði vart fengið
hvíld í þrjá sólarhringa, eftir því
sem fram kemur í skýrslunni.
Hermennirnir villtust yfir á
svæði sem Írakar höfðu á sínu
valdi og lentu í bardaga. Staða
bandarísku hermannanna versn-
aði enn þegar tækjabúnaður
þeirra bilaði. Vopn stóðu á sér og
bílar biluðu eða urðu eldsneytis-
lausir og rafhlöður fjarskiptabún-
aðar tæmdust. Aðeins 16 þeirra 33
Bandaríkjamanna sem ráðist var
á komust undan á flótta.
Ellefu létu lífið og voru sex
teknir til fanga, þeirra á meðal
Jessica Lynch. Fullyrðingar um
að hún hafi sætt pyntingum þá tíu
daga sem hún var í haldi eru al-
rangar. Í skýrslunni segir að
Lynch hafi hlotið öll sár sín þegar
jeppi sem hún sat í varð fyrir
skotárás og ók á vöruflutningabíl.
Þá fékk hún bestu hugsanlegu
meðferð á sjúkrahúsinu sem völ
var á.
„Það voru engin skotsár, engin
sár eftir hnífstungur. Hún var
handleggsbrotin, lærbrotin og
ökkli hafði farið úr lið. Þetta eru
staðreyndirnar og ég skil ekki
hvers vegna sannleikanum var
hagrætt,“ sagði Dr. Harith a-Hou-
sonna, sem annaðist Lynch á
sjúkrahúsinu í Nasariyah.
Lynch varð þjóðþekkt um heim
allan þegar fréttir bárust af
björgun hennar úr haldi Íraka.
Hástemmdar lýsingar af áhlaupi
bandarískra sérsveitarmanna í
tengslum við ævintýralega frels-
un Lynch virðast heldur frjálsleg
túlkun á sannleikanum, þó ekki sé
beint tekið á björgun hennar í
skýrslu hersins. Sterkar grun-
semdir eru hins vegar uppi um að
áhlaupið hafi verið sviðsett, enda
segir í skýrslunni að engir vopn-
aðir verðir hafi gætt sjúkrahúss-
ins þar sem Lynch lá.
Óvíst er hver áhrif þessar upp-
lýsingar hafa á áform bandarísku
sjónvarpsstöðvarinnar NBC sem
hugðist gera kvikmynd um hina
hetjulegu björgun Lynch.
the@frettabladid.is
NAUÐGUNARMÁL „Tilkynningar um
nauðganir berast okkur oftast í
gegnum neyðarmóttökuna eða al-
mennu lögregluna,“ segir Sigur-
björn Víðir Eggertson, aðstoðar-
yfirlögregluþjónn hjá lögreglunni
í Reykjavík.
Sigurbjörn Víðir segir lögregl-
una oftast fara á neyðarmóttöku og
tala við kærendur. Um helgar sé
reynt að hafa einn úr hverri deild á
vakt til að tryggja að hægt sé að
fara strax á vettvang og tryggja að
sönnunargögn glatist ekki. Því
næst fer fram formleg skýrslutaka
af viðkomandi. Ef þolandi er undir
átján ára aldri þarf að fara í gegn-
um dómarayfirheyrslu sem gjarn-
an fer fram í barnahúsi eða í hér-
aðsdómi. Ef um eldri einstaklinga
er að ræða tekur lögregla skýrslu
að viðstöddum talsmanni eða rétt-
argæslumanni þolandans. Reynt er
að hafa aðeins eina skýrslutöku.
Stundum þarf þó að kynna þolanda
hvað meintur gerandi hefur að
segja ef misræmi er milli frásagna.
Lögregla afhendir nauðgunar-
mál til lögfræðideildar, sem síðan
sendir þau áfram til ríkissaksókn-
ara, sem tekur ákvörðun um máls-
högun. Sigurbjörn segir heilmikla
tæknivinnu fara fram í hverju
máli fyrir sig. Ef lífsýni finnast
fara þau áfram til rannsóknar-
stofu Háskóla Íslands, sem stað-
festir hvort hægt sé að kennsla-
greina þau. Með tilkomu tækninn-
ar eru meiri möguleikar á að mál
verði upplýst. „Tæknin leiðir til
sakfellingar í fleiri málum. Það
skiptir líka miklu máli að þolandi
geti sagt til um atburðarás,“ segir
Sigurbjörn. ■
LÖGREGLAN Í REYKJAVÍK
Með aukinni tækni hafa möguleikar á að
upplýsa nauðgunarmál aukist til muna.
Meðferð nauðgunarmála hjá lögreglu:
Tæknin leiðir til fleiri sakfellinga
AUÐVELD BRÁÐ
Viðgerðarsveit 507 gat litla björg sér veitt þegar íraskir hermenn réðust á hana í mars. Bil-
anir, þreyta og fleira kostaði ellefu bandaríska hermenn lífið. Sex voru handsamaðir.
Björgun eins þeirra virðist eiga meira skylt við Hollywood en hernað.
Hetjuleg björgun
hermanns sett á svið
Mistök og bilanir urðu til þess að Írakar náðu Jessicu Lynch. Fullyrð-
ingar um pyntingar Íraka voru uppspuni. Lynch hlaut öll sín sár þegar
jeppi hennar lenti í árekstri við flutningabíl.
■
Vopn stóðu á
sér og bílar bil-
uðu eða urðu
eldsneytislausir
og rafhlöður
fjarskiptabún-
aðar tæmdust.
HÚSAVÍK
Ef af byggingu polyol-verksmiðja yrði á
Húsavík skapaði það atvinnu fyrir 70
manns.
Bygging polyol-verksmiðju skoðuð á Húsavík:
Efni til efna-
iðnaðar úr sykri