Fréttablaðið - 14.07.2003, Qupperneq 11
11MÁNUDAGUR 14. júlí 2003
■ Af Netinu
Með snjóplóg til Íraks
Frændur vorir Danir eiga í
nokkrum erfiðleikum með að
þykjast eiga þátt í hernámi Íraks.
Dönsku hermennirnir eru ósáttir
við að hafa fengið sendan snjó-
plóg að heiman og salt til að strá
á frosnar brekkur. Enn fremur
vita þeir ekki hvað þeir eiga að
gera við sláttuvélarnar sem komu
að heiman. Hins vegar vantaði
bæði morfín í sjúkragögn og tjald-
hælana.
JÓNAS KRISTJÁNSSON Á VEF SÍNUM JONAS.IS
Hestinum allt
Í áratug eða lengur hefur verið
barist fyrir því að koma á emb-
ættum umboðsmanna bæði fatl-
aðra og sjúklinga að fyrirmynd
nágrannaþjóða okkar...Ríkis-
stjórnin hefur ekki haft nokkurn
áhuga né vilja til að koma á fót
slíkum talsmönnum eða veita
fjármuni til þess. Nú hefur aftur á
móti verið komið á fót embætti
umboðsmanns íslenska hestsins
og búið að ráða í þá stöðu. Þetta
var eitt helsta baráttumál Fram-
sóknarflokksins á síðasta þingi og
fór fremstur í baráttunni hvorki
meira né minna en varaformaður
flokksins. Til þessa gæluverkefnis
fengust 50 milljónir af fjárlögum
ársins.
ÁSTA RAGNHEIÐUR JÓHANNESDÓTTIR Á ALTHINGI.IS/ARJ
Upphafið vantar
Halldór Ásgrímsson hefur komist
upp með að ganga til viðræðna
við Bandaríkjamenn án þess að
ganga áður til viðræðna við Ís-
lendinga sjálfa um hvað þeir vilji
setja sér sem markmið í viðræð-
um um varnarmál þjóðarinnar.
Um það á að sjálfsögðu að fara
fram lýðræðisleg og opin um-
ræða.
ÖGMUNDUR JÓNASSON Á OGMUNDUR.IS
Arðvænlegir sjúkdómar
Það dettur engum í hug að lækn-
ar séu viljandi að veita óþarfa
þjónustu. Það er ekkert skipulagt
samsæri í gangi. Sjúkdómsvæð-
ingin er einfaldlega summan af
sjálfsbjargarviðleitni og hags-
munapoti margra ólíkra aðila.
Læknar eru án efa upp til hópa
heiðarlegir í því að vilja lina
þjáningar þeirra sem til þeirra
leita. En það verður ekki framhjá
því litið að sjúkdómsvæðingin
hefur þýtt að læknar og lyfjafyrir-
tæki hafa makað krókinn á kostn-
að almennings.
ÓLI JÓN JÓNSSON Á KREML.IS
Váleg tíðindi
Það voru að vissu leyti váleg tíð-
indi sem bárust nýlega af breyt-
ingum sem munu verða á öryggis-
gæslu við vöruhafnir landsins.
Meint aukin hætta á hryðjuverk-
um er talin kalla á viðlíka eftirlit
og tíðkast á flugvöllum sem sinna
millilandaflugi. Tíðindin eru að
vísu aðallega váleg fyrir þann
trúflokk sem ekki getur hugsað
sér tilveruna án herliðsins á
Keflavíkurflugvelli.
STEINÞÓR HEIÐARSSON Á MÚRINN.IS
Dalamenn ákváðu fyrir nokkrumárum að leggja hitaveitu í Búð-
ardal og var Hitaveita Dalabyggðar
tekin í notkun haustið 2000. Hita-
veitan var mikið framfaramál fyrir
íbúa í Búðardal, þar sem hún lækk-
aði orkureikninga heimilanna. Fjár-
hagsstaða hitaveitunnar hefur hins
vegar verið slæm vegna þess að
kostnaður við lagningu hitaveitunn-
ar fór fram úr áætlun.
Allt eða ekkert
Dalamenn leituðu leiða strax í
febrúar 2002 til þess að bregðast
við fjárhagsvanda hitaveitunnar.
Þeir óskuðu eftir því að iðnaðar-
ráðuneytið leggði fram 20 milljóna
króna styrk til hitaveitunnar og að
framlag fengist úr Jöfnunarsjóði að
upphæð 20 milljónir króna. Að auki
var lagt til að RARIK og Byggða-
stofnun leggðu fram aukið hlutafé
að upphæð 35 milljónir króna. Sam-
tals hefði fjárframlag ríkisins orðið
75 milljónir króna.
Iðnaðarráðherra féllst ekki á til-
lögu Dalamanna og lagði aðal-
áherslu á að Hitaveita Dalamanna
yrði keypt í heilu lagi af ríkisfyrir-
tækjunum RARIK eða Orkubúi
Vestfjarða. Athyglisvert er að iðn-
aðarráðherra er tilbúinn að láta
Orkubú Vestfjarða reiða fram 135
milljónir fyrir hitaveituna, auk
þess sem felldar yrðu niður skuldir
sveitarfélagsins við Orkusjóð að
upphæð 19 milljónir og afskrifað 20
milljóna hlutafé Byggðastofnunar í
Hitaveitu Dalamanna. Jafnframt
ætlar iðnaðarráðuneytið að leggja
til að 15 milljónum verði veitt til at-
vinnusköpunar í Dalabyggð. Sam-
tals verður kostnaður af kaupunum
fyrir ríkið um 189 milljónir.
Búðardalur og ríkisstjórnin
Það má öllum ljóst vera að Dala-
menn, sem nýlega hafa ráðist í
lagningu hitaveitunnar af miklum
metnaði fyrir sitt byggðarlag, vilja
ógjarnan vera nauðbeygðir til að
selja hana. Iðnaðarráðherra virðist
ekki hafa neinn skilning á þessu
sjónarmiði og er reiðubúinn að
reiða fram mjög háa upphæð til
þess eins að koma Hitaveitu Dala-
manna úr höndum heimamanna og
sameina hana Orkubúi Vestfjarða.
Þessi afstaða ráðherra byggðamála
hefur komið illu til leiðar í fámennu
sveitarfélagi.
Ekki er ríkisstjórnin að hugsa
um hag ríkissjóðs sem þarf að
reiða fram 114 milljónum króna
hærri upphæð en ef farið hefði
verið að tillögum heimamanna.
Ekki er að sjá í bréfaskriftum
að yfirvöld séu að hugsa um hag
byggðarinnar, þ.e. að lækka orku-
reikninga heimilanna. Hvers
vegna leggur ríkisstjórnin ofur-
áherslu á að ríkisvæða Hitaveitu
Dalamanna? Ríkisstjórnin skuld-
ar skattgreiðendum svör um
hvers vegna eigi að leggja til 114
milljónum krónum hærri upphæð
í Hitaveitu Dalamanna en heima-
menn hafa óskað eftir.
Nýlega birti landbúnaðarráð-
herra skýrslu þar sem lagt var til
að eitt stærsta fyrirtækið í Búðar-
dal, sláturhúsið, yrði lagt niður
með sérstöku fjárframlagi ríkis-
ins og nú hefur iðnaðarráðherra
komið mikilli úlfúð af stað í Dala-
byggð með því að ætla að ríkis-
væða hitaveituna. Fyrirhuguð
sala á hitaveitunni hefur skipt
fólki upp í fylkingar og ætla ég að
þeir íbúar séu mun fleiri sem eru
andvígir sölunni en þeir sem eru
hlynntir. Ég skora því á ríkis-
stjórnina að kanna hvort mögu-
legt sé að koma fram með nýja til-
lögu sem báðar fylkingar gætu
sætt sig við. ■
Að koma illu til leiðar Þjóðmál
SIGURJÓN
ÞÓRÐARSON
■ þingmaður Frjáls-
lynda flokksins skrifar
um Hitaveitu Dala-
byggðar.