Fréttablaðið - 14.07.2003, Blaðsíða 12
SUND Sundmeistaramót Íslands
fór fram um helgina og þar stend-
ur hæst frábær árangur Kristínar
Rós Hákonardóttur en hún bætti
eigið heimsmet í 50 metra bak-
sundi.
„Árangurinn hefur kannski
ekki verið upp á marga fiska,“
sagði Magnús Tryggvason, einn af
skipuleggjendum mótsins, en það
voru Sunddeild Selfoss og íþrótta-
félagið Hamar sem stóðu fyrir
mótinu. „Hér voru 159 keppendur
og margir þeirra eru að fara sér
rólega vegna annarra verkefna
sem stutt er í eins og Heimsmeist-
aramótið í Barcelona, Evrópu-
meistaramót unglinga og fleiri
mót þannig að árangurinn á þessu
móti litaðist dálítið af því. Gallinn
er sá að það er í raun ekki um ann-
að að ræða en að halda mótið á
þessum tíma. Við eigum ekki 50
metra innilaugar og því verður að
halda þetta að sumri til og tíma-
setningin er löngu ákveðin fyrir
fram.“
Athygli vakti að Eðvarð Þór
Eðvarðsson, sem lengi var einn
helsti sundkappi landsins, tók þátt
og bar sigurorð af sér mun yngri
mönnum í 50 metra baksundi. ■
!"
#$%#!&'
(%#&)
*
+,
+
+"
-
.
+
/
012
2& 34
5
6-
6
5
-
+
7+
5
8 9
:;: 9
< =
(>2
%?&
12 14. júlí 2003 MÁNUDAGUR
HEIMSMEISTARAMÓTIÐ Í SUNDI
Mótið var sett formlega á laugardaginn var
með mikilli viðhöfn.
Sund
Bjartsýni
í Barnsley
Guðjón Þórðarson segir mikla bjartsýni ríkja í
Barnsley. Stuðningsmenn eru ánægðir með að
framtíð liðsins sé tryggð í bili.
FRÁ SUNDMEISTARAMÓTI ÍSLANDS
Kristín Rós bætti eigið heimsmet í baksundi.
Árangurinn upp og niður á Sundmeistaramótinu:
Glæsilegt heimsmet hjá Kristínu Rós
FÓTBOLTI „Það er svona ákveðin
pattstaða hjá liðinu núna,“ sagði
Guðjón Þórðarson, framkvæmda-
stjóri Barnsley á Englandi. „Hend-
ur okkar eru bundnar þangað til
við klárum öll mál við breska
knattspyrnusambandið. Þangað til
er ekkert hægt að ráða starfsfólk
né fá neina nýja leikmenn. Við átt-
um að eiga fund með þeim um dag-
inn en þeir forfölluðust. Þessi mál
eiga samt að vera komin á hreint
innan nokkurra daga.“
Guðjón segir tímann síðan
hann tók við hafa verið stanslausa
vinnu. „Það er mikið verk fyrir
höndum. Þarna eru menn í liðinu
sem eru í ágætu formi en margir
líka sem eru það ekki. Þarna eru
einnig nokkrir sem hafa góða
hæfileika en vantar annað. Deild-
in er það hörð að það er ekki nóg
KNATTSPYRNULIÐ BARNSLEY
Guðjón segir leikmenn liðsins í meðallagi og telur mikið verk fram undan áður en hann
verður sáttur.