Fréttablaðið - 14.07.2003, Blaðsíða 14
bílar o.fl.
Vikulegur blaðauki Fréttablaðsins um al l t sem viðkemur bí lum
Ritstjórn: sími 515 7500 – netfang: bilar@frettabladid.is. Auglýsingar: sími 515 7500 – netfang: auglysingar@frettabladid.is. Þjónustuauglýsingar: Gula línan, sími 580 8090 – netfang: auglysingar@gulalinan.is.
Arthur Pétursson matreiðslumeist-ari ekur um á Isuzu Trooper,
breyttum fyrir 38 tommur. Hann seg-
ist ferðast töluvert mikið á jeppanum.
„Þetta gefur mikla möguleika upp á að
skoða landið frá annarri vídd. Ég er
búinn að fara í Landmannalaugar og í
Þórsmörk í sumar. Svo hef ég farið
upp í Veiðivötn og á Höfn í Horna-
firði.“
Arthur flutti heim til Íslands fyrir
tveimur og hálfu ári eftir sjö ára bú-
setu í Bandaríkjunum. Áður en hann
fékk sér Isuzu-jeppann í haust átti
hann Pajero sem var breyttur fyrir 35
tommur. Hann átti einnig jeppa áður
en hann flutti út og má því segja að
hann hafi fyrir löngu tekið ástfóstri
við þessa bílategund.
Aðspurður segir Arthur að munur-
inn á jeppa og fólksbíl sé sá að jeppinn
bjóði upp á meiri ferðamöguleika. „Þú
getur séð mikið meira af landinu sem
þú sérð ekki í fólksbílum því þá ertu
eiginlega negldur niður við hringveg-
inn. Á jeppa geturðu til dæmis farið í
Jökulheima og upp á Vatnajökul.“
Arthur ekur um á jeppanum innan-
bæjar og segir engin vandkvæði
fylgja því. „Ég held að ökumenn á
breyttum jeppum séu varkárari í um-
ferðinni en ökumenn annarra bíla.
Þegar maður er að keyra hefur maður
meiri yfirsýn og er með augun opin.
Þeir sem fara utan vegar eru búnir að
læra að þú horfir ekkert af veginum
því það geta verið hættur alls staðar.“
Arthur, sem er 36 ára, hefur ekki
farið varhluta af hættunum. „Maður
hefur lent í ýmsum ævintýrum, popp-
að í gegnum ísilagða á og hitt og þetta.
Þetta er bara aukin ánægja fyrir
mann á veturna og minningin verður
bara sterkari fyrir vikið.“
Hann segir að á næstunni séu fyrir-
hugaðar ferðir til Landmannalauga og
upp í Veiðivötn. „Maður er bara að
reyna að skoða þetta fallega land okk-
ar. Ég held að við gerum aðeins of lít-
ið af því.“
freyr@frettabladid.is
HJÁ JEPPANUM
Að sögn Arthurs kostar um 4-500.000 krónur að breyta jeppa fyrir 35-38 tommur. „Þegar þú ert
kominn með jeppa áttu aldrei peninga því þú ert alltaf að bæta einhverju á þetta, loftdælu, drullu-
tjakki, GPS og öllum græjum.“
Arthur Pétursson ekur um á breyttum jeppa:
Skoðar landið
frá annarri vídd
Sparnaður sem fæst með því aðdæla bensíni sjálfur á bílinn getur
verið umtalsverður á ársgrundvelli.
Fyrir fjölskyldu sem ekur „venjuleg-
um“ fólksbíl er kostnaðurinn tæplega
10.000 krónum minni í sjálfsaf-
greiðslu en í fullri þjónustu.
Ef um jeppa er að ræða er munur-
inn tæplega 15.000 krónur.
Bensínkostnaður á ári við fólksbíl
sem eyðir 9 lítrum á hverja 100 km og
ekur 20.000 km er 166.140 kr. í sjálfs-
afgreiðslu. Þarna er miðað við verðið
hjá Orkunni, sem býður upp á ódýr-
asta bensínið í sjálfsafgreiðslu. Það
bensín er um 5 krónum ódýrara ef
miðað er við fulla þjónustu hjá olíufé-
lögunum. Í fullri þjónustu er kostnað-
urinn aftur á móti 175.680 krónur.
Kostnaður við jeppa sem eyðir 14
lítrum á hverja 100 km og ekur 20.000
km á ári er 258.440 krónur í sjálfsaf-
greiðslu. Í fullri þjónustu hækkar
kostnaðurinn hins vegar upp í 273.280
krónur. Verðmunurinn er því um
15.000 krónur. ■
SJÁLFSAFGREIÐSLA
Hægt er að spara um 10-15.000 krónur á ári
hverju með því að dæla sjálfur á bílinn.BENSÍNKOSTNAÐUR Á ÁRI
Fólksbíll sem eyðir 9 l/100 km og ekur
20.000 km á ári:
Full þjónusta: 175.680 kr.
Sjálfsafgreiðsla: 166.140 kr.
Verðmunur: 9.540 kr.
Jeppi sem eyðir 14 l/100 km og ekur
20.000 km á ári:
Full þjónusta: 273.280 kr.
Sjálfsafgreiðsla: 258.440 kr.
Verðmunur: 14.840 kr
* MIÐAÐ ER VIÐ ÓDÝRASTA LÍTRAVERÐIÐ Á 95 OKTANA
BENSÍNI Í SJÁLFSAFGREIÐSLU, 92,30 KR., OG VERÐ Í FULLRI
ÞJÓNUSTU HJÁ OLÍUFÉLÖGUNUM, 97,60 KRÓNUR.
Sjálfsafgreiðsla á bensíni:
10-15.000 krónur sparast EPLATRÉ TAFÐI UMFERÐ10 tíma umferðartöf varð í San
Antonio í Bandaríkjunum þegar
Charles Butt brá á
það ráð að flytja
sex metra hátt epla-
tré eftir þjóðvegin-
um. Lyfta þurfti
rafmagnslínum til
að tréð kæmist leiðar sinnar auk
þess sem bíllinn tók tvær akreinar
við flutninginn. Vakti uppátækið
litla kátínu vegfarenda. „Það á ör-
ugglega einhver eftir að höggva
tréð niður í hefndarskyni,“ sagði
ökumaður sem var fastur í um-
ferðinni í fimm klukkustundir.
ÓVENJULEGUR PRUFUAKSTUR
Bandaríkjamaðurinn Jermaine
Graham var handtekinn fyrir að
reyna að verða sér úti um lengri
prufuakstur en gengur og gerist.
Hann hóf aksturinn í Goshen og
var kominn langleiðina til
Newburg sem er 27 kílómetra í
burtu þegar bílasalinn hringdi í
lögregluna. Graham ákvað að
prufukeyra bílnum til að spara sér
leigubílakostnað.
■ Bílar