Fréttablaðið - 14.07.2003, Blaðsíða 15
101 Reykjavík 12-13
Ás 8-9
Bakki 15
Eignakaup 5
Eignamiðlun Norðurlands 15
Eignanaust 15
Eign.is 8
Fasteignamiðlun 10-11
Frón 9
Garðatorg 4
Hof ehf. 15
ÍAV 12-13
Óðal Framtíðin 5
Remax 16-19
w
w
w
.f
rj
a
ls
i.
is
Allt að 80%veðsetningarhlutfallaf verðmæti fasteignar
Stokkaðu upp fjármálin
– með hagstæðari lánum
Þú getur auðveldlega samið um hagstætt lán hjá Frjálsa fjárfest-
ingarbankanum, sem er kjörið til að skuldbreyta óhagstæðum
lánum á borð við skammtímabankalán. Þannig lækkarðu
greiðslubyrðina hjá þér og eykur fjárhagslegt svigrúm. Lánið
er veitt til allt að 30 ára gegn veði í fasteign.
Fasteigna- og framkvæmdalán Frjálsa fjárfestingarbankans eru
einnig hentug leið fyrir þá sem standa í húsbyggingum eða
fasteignakaupum.
Ráðgjafar okkar veita allar nánari upplýsingar. Þú getur litið inn í
Ármúla 13a, hringt í síma 540 5000 eða sent tölvupóst á frjalsi@frjalsi.is
Dæmi um mánaðarlega greiðslubyrði af 1.000.000 kr.*
Vextir % 6,50% 7,50% 8,50% 9,50% 10,00%
5 ár 19.600 20.000 20.500 21.000 21.200
15 ár 8.700 9.300 9.800 10.400 10.700
30 ár 6.300 7.000 7.700 8.400 8.800
*Lán með jafngreiðsluaðferð án verðbóta.
margt smátt gerir eitt stórt ● vinsælir litir
Stolt í garðinum:
▲
SÍÐUR 2-3
Sólpallur með
gosbrunni
Grafarvogur:
▲ SÍÐA 18
Parhús að
Vættaborgum
Fasteignir
fast/eignir Mánudagur 14. júlí 2003Fasteignaauglýsingar í 93.000 eintökum
Bakki auglýsir stórglæsilegt einbýli
með stórbrotið útsýni
15
ÍAV býður glæsilegar nýjar eignir í
Klapparhlíð, Mosfellsbæ
12-13
Eignakaup hefur í sölu veitinga-
rekstur í Vogunum ásamt glæsilegu
húsnæði 5
Fasteignasölur
Húsbréf
Flokkur Ávöxtunarkrafa Gengi
1. feb. 4,49% 1,2895
1. jan. 4,60% 1,2630
98/2 4,51% 1,6659
98/1 4,62% 1,6339
96/2 4,62% 1,8613
Gengi 11. júlí 2003
Hús o.fl.
steinhús ● bárujárnshús
Húsamálun:
▲
SÍÐUR 2-3
Undirbúningur
mikilvægur
Hús o.fl.
VÍSITALA ÍBÚÐAVERÐS
á m2 í fjölbýli á höfuðborgarsvæðinu.
maí ‘03 156,2
maí ‘02 139,4
Virkilega glæsilegt 311 fer-metra einbýlishús á tveim-
ur hæðum er til sölu að Dyn-
skógum 9 í Reykjavík. Húsið er
í lokuðum, kyrrlátum botn-
langa þar sem fimm hús eru
staðsett.
Húsið hefur verið endurnýj-
að að öllu leyti, bæði að innan
sem utan. Þar má nefna gólf-
efni, baðherbergi, rafmagn og
hluta vatnslagna. Auk þess eru
þar 70 halogen ljós, nýtt loft, yf-
irfarnir gluggar og gler. Garður
hefur verið tekinn í gegn að
mestu auk þess sem húsið er
nýmálað.
„Þetta er mjög flott eign.
Þetta er allt tipp topp alveg
sama hvað það er,“ segir
Ellert Bragi Sigurþórsson,
sölustjóri hjá eign.is. „Eldhús-
ið er með bestu tækjum. Það
er kokkur sem á húsið og hann
vill hafa allt það besta í
eldhúsinu hjá sér. Húsið lítur
líka mjög vel út að utan og
innan, enda tóku eigendurnir
húsið allt í gegn þegar þeir
keyptu það.“
Eldhúsið er með fallegri
sprautulakkaðri innréttingu,
stáli og granít í borðpötu, nátt-
úrusteini á gólfum, stórri elda-
vél með gasi, uppþvottavél og
tvöföldum amerískum ísskáp.
Á efri hæð hússins er út-
gengi út á svalir með góðu út-
sýni yfir Kópavog og yfir á
Bessastaði.
Húsið er til sölu hjá eign.is
og er ásett verð 34,9 milljónir. ■
DYNSKÓGAR 9
Þetta glæsilega hús er til sölu og er ásett verð 34,9 milljónir króna.
Dynskógar 9 til sölu/
Flott eign með
glæsilegu eldhúsi
vísitala 1990=100
ÞINGLÝSTIR KAUPSAMNINGAR
vikuna 27. júní til og með 3. júlí
Höfuðborgarsvæðið:
Fjölbýli 112
Sérbýli 42
Aðrar eignir 7
Samtals 161
Akureyri:
Fjölbýli 6
Sérbýli 3
Aðrar eignir 0
Samtals 9