Fréttablaðið - 14.07.2003, Blaðsíða 16
hús o.fl.
V i k u l e g u r b l a ð a u k i F r é t t a b l a ð s i n s u m h ú s o g g a r ð a
Ritstjórn: sími 515 7500 – netfang: hus@frettabladid.is. Auglýsingar: sími 515 7500 – netfang: auglysingar@frettabladid.is. Þjónustuauglýsingar: Gula línan, sími 580 8090 – netfang: auglysingar@gulalinan.is.
Ég hef oft lent í því að þurfa aðskreppa eftir einhverju smálegu í
byggingavöruverslun vegna þess að
ég keypti aðeins of lítið magn af
skrúfum, nöglum eða einhverju sem
ég er að nota þá stundina. Við það tap-
ast oft dýrmætur tími og peningar,
sérstaklega ef einhverjir iðnaðar-
menn eru að bíða eftir efninu. Það er
ótrúlega pirrandi að þurfa að hætta í
miðju kafi og þess vegna kaupi ég
þessa dagana alltaf aðeins of mikið til
að koma í veg fyrir þetta vandamál.
Þar með er ekki sagt að fólk eigi síðan
að halda upp á alla afganga, þeim á
náttúrulega að halda til haga, skila
þeim svo og fá inn-
eignarnótu sem nýt-
ist alltaf til að
kaupa einhverjar
gluggakrækjur eða
annað sem vill
gleymast á síðustu
metrunum.
Þetta hljómar
kannski svolítið nísku-
lega en ég heyrði eina
sögu um verkamann á
b y g g i n g a r s v æ ð i
sem kom mér til
að hugsa aðeins
öðruvísi. Hann
spurði verkstjórann að því
hvort hann mætti ekki hirða það
sem lá hingað og þangað eða
datt niður af stillönsum. Verk-
stjórinn taldi það sjálfsagt mál
og framkvæmdin kláraðist
tveimur mánuðum seinna.
Verkamaðurinn fór með tvo
kassa af ýmiss konar festingum
og vinklum í verslunina og fékk
inneign upp á 37.000 krónur!!!
Margt smátt gerir eitt stórt og
maður á aldrei of mikið af
peningum í framkvæmd-
um.
Kveðja, Frikki
Friðrik Weisshappel gefur góð ráð/
Margt smátt gerir eitt stórt
Stolt mitt í garðinum/
Sólpallur með gosbrunni
og náttúrulegu grjóti
MARGRÉT OG JÓN
Margrét Frímannsdóttir á nýja sólpallinum ásamt eiginmanni sínum, Jóni Gunnari Ottóssyni náttúrufræðingi.
Margrét Frímannsdóttir, þingmaðurSamfylkingarinnar, flutti fyrir
einu og hálfu ári í Kópavog eftir að hafa
búið á Stokkseyri í mörg ár. Á þessum
tíma hafa hún og eiginmaður hennar,
Jón Gunnar Ottósson, eytt flestum frí-
stundum sínum við að koma upp falleg-
um garði við nýja húsið.
Aðspurð segist Margrét vera stolt af
hverri einustu plöntu í garðinum. „Ég er
líka sérstaklega stolt af því að maðurinn
minn var að enda við að byggja sólpall,
mjög skemmtilegan með gosbrunni og
náttúrulegu grjóti sem var hérna fyrir
sem var látið falla inn í pallinn. Ég er
mjög stolt af þessum verkum hans.“
Þegar þau hjónin fluttu í Kópavog-
inn var enginn garður í kringum húsið.
„Á þessu eina og hálfa ári erum við
búin að laga lóðina og koma henni að
mestu leyti í stand. Ég er bara ánægð
og finnst vel hafa tekist til,“ segir Mar-
grét. Hún bætir því við að þau noti aðal-
lega fjölærar plöntur í garðinn auk
trjáa og runna.
Garður þeirra hjóna á Stokkseyri
var stór og fallegur. Margrét segir að
nýi garðurinn sé minni og í raun allt
öðruvísi. „Það er mörgum sinnum auð-
veldara að rækta hér í Kópavogi heldur
en á Stokkseyri. Það er svona tíu sinn-
um meiri vinna að halda garð austur á
Stokkseyri. Fyrst og fremst af því að
það er svo mikið logn hérna á Hraun-
brautinni. Það er miklu meiri vindur
fyrir austan og svo er það sjávar-
seltan,“ segir Margrét. „Það eru mjög
margir fallegir garðar fyrir austan og
fólkið sem heldur garðana þar á heiður
skilinn.“
Margrét segist ekki sakna gamla
garðsins að ráði. „Hann var fallegur og
mér þótti mjög vænt um hann. Ég átti
margar góðar stundir í garðinum en ég
á þær líka hér.“ ■
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/V
IL
H
EL
M
Álklæðning
Stórhöfða 33
Sími: 577 4100til framtíðar