Fréttablaðið - 14.07.2003, Síða 17
fast/eignirMÁNUDAGUR 14. júlí 2003 3
Topp gæði, Lágt verð
Hvað viltu hafa það betra?
Samkvæmt verðkönnun Fréttablaðsins 16.06.03
Nýtt afl á málningarmarkaði
ÍSLANDS MÁLNING
Sími 517 1500 • Sætún 4 • 105 Reykjavík • www.islandsmalning.is
Allar Teknos vörur skv. ISO 9001 gæðastaðli.
L
IT
L
A
P
R
E
N
T
Að mörgu þarf að hyggja þegarmála þarf hús að utan. Öll
undirbúningsvinna og fram-
kvæmd þurfa að vera rétt til þess
að allt gangi að óskum og húsið líti
sem best út á eftir.
Vigfús Gíslason, sölustjóri
Hörpu Sjafnar, leiðir lesendur í
gegnum muninn á því að mála
steinhús og bárujárnshús: „Þegar
þú ert að mála steinhús þarftu að
skoða húsið mjög vel og athuga
hvers vegna þú ert að mála. Er eitt-
hvað að húsinu sem þarf að laga
eða ertu bara að reyna að hressa
upp á útlitið?“ segir Vigfús.
„Ef það er eitthvað sem þarf
að laga er gott að leita til sér-
fræðings og fá mat á því hvað sé
á ferðinni og hvað þurfi að gera.
Ef ekki þá ráðleggur maður fólki
að sjá til þess að yfirborð hússins
sé hreint og fínt, t.d að það sé
ekki mosi í því. Jafnvel getur
þurft að háþrýstiþvo húsið að
utan. Ef það eru flagnaðir eða
leiðinlegir fletir málar maður
gjarnan með undirmálningu. Þeg-
ar undirbúningnum er lokið eru
vanalega málaðar tvær umferðir
með hefðbundinni utanhússmáln-
ingu í fallegum litum.“
Að sögn Vigfúsar er einnig
mikilvægt að yfirborðið sé hreint
þegar mála þarf bárujárnshús.
„Yfirborðið þarf að vera laust við
flagnaða málningu og ryð. Þar
getur verið mjög gott að háþrýsti-
þvo. Síðan þarf að grunna þau
svæði sem eru ber og þar sem er
ryð. Að því loknu eru málaðar
tvær umferðir með viðeigandi
þakmálningu.“
Vigfús segir að margir vanmeti
og leggi jafnvel ekki næga rækt
við þá undirbúningsvinnu sem
þarf að inna af hendi áður en haf-
ist er handa við húsamálun. „Fólk
kemur hingað, kaupir málningu
og segir: „Nú ætla ég að mála hús-
ið mitt um helgina.“ Svo er farið
heim, hellt í bakka og svo rúlla all-
ir hver í kapp við annan,“ segir
Vigfús. „Viðgerðir og lagfæringar
eru yfirleitt það dýrasta, tíma-
frekasta og það sem er algengast
að fólk feili á.“ ■
GLUGGAKARMUR
Að mörgu þarf að hyggja áður en glugga-
karmar eru málaðir.
Málun gluggakarma/
Skrapa og
grunna
fyrst
Nauðsynlegt er að frágangurgluggakarma sé réttur áður
en hafist er handa við málun
þeirra utanhúss.
Byrja þarf á að skrapa upp allt
sem er laust á körmunum, t.d.
flagnaða málningu. Til að tryggja
að engin væta komist inn um
gluggann getur einnig verið nauð-
synlegt að kítta upp í rifuna á
milli trés og steins. Á eldri glugg-
um getur einnig verið gott að
kítta á milli trés og glers.
Því næst skal grunna bera
bletti á karminum. Mikilvægt er
að viðurinn sé þurr áður en
grunnurinn er borinn á.
Loks eru bornar tvær umferðir
af viðarvarnarefni á karminn eins
fljótt og kostur er. ■
LITIR
Drappaðir, mosalitaðir og gráleitir litir hafa
verið vinsælir undanfarið.
Vinsælustu litirnir/
Ljósir og
mjúkir
Samkvæmt áliti sérfræðingsFréttablaðsins eru ljósir litir
að komast aftur í tísku í utanhúss-
málun.
„Þetta eru jarðlitir sem eru
eins og skinn á litinn, dýraskinn
eða hörund. Þetta er ekki í þess-
um sterku og ekki alveg í þessum
hvítu litum heldur. Litirnir eru
drappaðir, grádrappaðir, gráleitir
eða mosalitaðir. Það má segja að
þetta séu ljósir og mjúkir jarðlit-
ir,“ sagði sérfræðingurinn. ■
HÚS MÁLAÐ
Að ýmsu er að huga við húsamálun.
AÐ ÝMSU ÞARF AÐ HUGA
ÞEGAR HÚSIÐ ER MÁLAÐ:
Steinhús:
Hvers vegna ætla ég að mála húsið?
Hreint yfirborð er nauðsynlegt.
Undirmálning á leiðinlega fleti.
Tvær umferðir með utanhússmálningu.
Bárujárnshús:
Hreint yfirborð.
Oft gott að háþrýstiþvo.
Grunna ber svæði og ryðbletti.
Tvær umferðir með þakmálningu.
Góð ráð við húsamálun/
Undirbúningsvinnu má ekki vanmeta
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/R
Ó
B
ER
T