Fréttablaðið - 14.07.2003, Qupperneq 36
heimili o.fl.
V i k u l e g u r b l a ð a u k i F r é t t a b l a ð s i n s u m h ú s o g g a r ð a
Ritstjórn: sími 515 7500 – netfang: heimili@frettabladid.is. Auglýsingar: sími 515 7500 – netfang: auglysingar@frettabladid.is. Þjónustuauglýsingar: Gula línan, sími 580 8090 – netfang: auglysingar@gulalinan.is.
þar sem tryggingar
snúast um fólk
Hringdu í síma
560 5000
og fáðu sendan
bækling um
fjölskylduvernd VÍS.
Vátryggingafélag Íslands,
Ármúla 3, 108 Reykjavík,
www.vis.is
Hvernig
röðum við sam
an
tryggingunum
okkar?
Mars 2003
Fjölskylduver
nd VÍS
Fplús – víðtæka fjölskyldutryggingin
tryggir bæði heimilinu og fjölskyldunni
þá vernd sem þú gerir kröfu um
– og veitir þér alla afslætti strax
F
í
t
o
n
/
S
Í
A
F
I
0
0
7
3
4
5
Töluvert er um að fólk kaupi yfir-breiðslur á sófann sinn til að frís-
ka upp á útlitið. Að sögn Sigurjóns
Kristensen, bólstrara hjá húsgagna-
versluninni Öndvegi, eru oft pantaðar
yf irbreiðs lur
fyrir jólin,
páskana og á
vorin. Hann hef-
ur þó ekki orðið
var við að fólk
breyti kerfis-
bundið um liti eft-
ir árstíðum.
Hann segir að
litirnir í yfir-
breiðslunum hafi
verið að lýsast mik-
ið síðasta árið.
„Núna síðast fóru
einhver hundruð
lita af nánast hvítu.
Ljóst er voða mikið
inni núna. Það er kannski
af því að efnin eru orðin
teflonvarin og annað slíkt.
Það er hægt að þrífa allt
mögulegt úr þeim,“ segir
Sigurjón. Hann bætir því við að einlit-
ar yfirbreiðslur séu mjög vinsælar
um þessar mundir. Lítið hafi verið
beðið um munstruð efni síðasta árið. ■
Gamlir hvítir kafilbollar
Hvítir gamlir kaffibollar líta ekki vel
út. Það er eins og þeir séu skítugir.
Til þess að losna við það er hægt að
hella klór í vaskinn og láta bollana
standa í vaskinum yfir nótt. Síðan er
hægt að þvo þá upp, að sjálfsögðu úr
venjulegu sápuvatni, og þeir verða
eins og nýir.
Rjóminn útrunninn
Margir hafa lent í því þegar þeir ætla
að nota restarnar af rjómanum í ís-
skápnum að hann er útrunninn. Hér
er gott ráð til að lenda ekki í þessu
næst þegar vantar rjóma í sælkera-
réttinn.
Maður tekur poka sem eru notaðir til
að búa til klaka, hellir afgangsrjóm-
anum út í og setur inn í frysti. Næst
þegar þegar maður þarf að nota
rjóma tekur maður pokann og kreist-
ir fram einn kubb af rjóma eða tvo og
þeir bráðna í súpunni. Einfaldara
gæti það ekki verið.
Kertavax
Ef kertavax lekur niður er langbest
að nota gömlu aðferðina. Takið strau-
járn og dagblað og strauið yfir. ■
Það tók tíu mánuði að breyta eldhús-inu heima hjá Kristbjörgu Sigurð-
ardóttur og Sindra Sindrasyni, fyrrum
forstjóra lyfjafyrirtækisins Pharma-
co. „Við umturnuðum öllu, máluðum
allt og lökkuðum og létum sérsmíða
innréttingu,“ segir Kristbjörg. Þau
hjónin eru búsett í Þingholtunum.
Hönnuður innréttingarinnar er
Fanney Hauksdóttir arkitekt en hún
teiknaði eftir hugmyndum Kristbjarg-
ar. „Þetta var alveg fyrir fram mótuð
hugmynd um hvernig þetta ætti að líta
út,“ segir Kristbjörg en móðurbróðir
hennar, Geir Oddsson smiður, smíðaði
innréttinguna: „Hann er eðalsmiður,
þykir sá besti.“
Nýja innréttingin er með svokall-
aðri eyju en það felur í sér mikla
vinnuhagræðingu. „Við getum unnið
saman, það var illa hægt í hinu,“
segir Kristbjörg um samstarf hjón-
anna í eldhúsinu. „Það er mjög gott
skápapláss í eyjunni, diskar og glös
eru geymd þeim megin sem borð-
krókurinn er, sem og hnífapör og
diskamottur. Pottar, pönnur og annað
sem þarf að hafa við hendina í elda-
mennskunni er hins vegar geymt þar
sem eldavélin er. „Það er nóg pláss,“
segir hún.
Kristbjörg hefur oftar en ekki set-
ið ein við kvöldverðarborðið þegar
maðurinn hennar hefur verið að
vinna, þá hefur stundum farið lítið
fyrir eldamennskunni. ,,En við notum
eldhúsið engu að síður mjög mikið.
Það er rosalega gaman að elda góðan
mat og ég er með fín ítölsk tæki til
þess sem eru frá Fönix,“ segir hún og
bætir við: „Ég segi nú gjarnan að þeg-
ar maður býr hérna í hundrað og ein-
um er svo mikið af góðum eldhúsum
hérna allt um kring að maður freistast
svolítið í þau líka.“
Eldhús þeirra Kristbjargar og
Sindra er prýtt fallegum málverkum,
meðal annars eftir Karólínu, Sossu,
Pétur Gaut og Egil Eðvarðsson. Mikið
er um forvitnilega muni og skemmti-
lega hönnun. ,,Ég hef keypt svolítið
mikið í Danmörku af því að mér finnst
norræn hönnun mjög skemmtileg og
ítölsk náttúrlega líka,“ segir Krist-
björg og segist vera sátt við hvernig
hefur tekist til með nýja eldhúsið: „Ég
er rosalega ánægð.“ ■
■ Góð húsráð
SÓFI
Að sögn Sigurjóns eru ein-
litir og teflon-varðir sófar
mjög vinsælir núna.
Yfirbreiðslur á sófa:
Ljósar og einlitar
Fallegt eldhús í Þingholtunum:
Eldhúsinu
umturnað
Í ELDHÚSINU
Allt var málað og lakkað og innréttingin sérsmíðuð.