Fréttablaðið - 14.07.2003, Blaðsíða 38
14. júlí 2003 MÁNUDAGUR18
FAST AND T... 5.50, 8, 10.10 b.i 12
THE MATRIX R.. kl. 10 b.i 12
BRINGING DOWN THE H... kl. 4 og 6kl. 6, 8, og 10 bi 14 Sýnd kl. 5.45, 8 og 10.15 b.i. 12 ára
kl. 6NÓI ALBINÓI
kl. 6 og 8 RESPIRO
kl. 8 og 10 b.i. 12THE MATRIX REL...
kl. 4,JOHNNY ENGLISH
kl. 5, 8 og 10
Sýnd í lúxus kl. 5 og 8 VIP
TÖFRABÚÐ. m/ísl.
ANGER MANAGEMENT 5.45, 8, 10.30
Sýnd kl. 4, 7 og 10 b.i. 12 ára
Sýnd kl. 4, 6 og 8
sýnd kl. 5.40, 8, og 10.20
Sýnd í lúxus kl. 3.40, 6, 8.30 og 10.50
kl. 5.40, 8 og 10.20 b.i. 14DARK BLUE
DUMB AND DUMB... 4, 6, 8 og 10
AGENT CODY BANKS kl. 3.40
SKÓGARLÍF 2 m/ísl. kl. 4
KANGAROO JACK kl. 4, 6 og 8
DARK BLUE kl. 8 og 10 b.i 16
Umfjölluntónlist
Fyrir
ferðina
GILOFA 2000
Upplagðir fyrir flugið
Fást í flestum
apótekum,
t.d. í
Lyf og heilsu,
Lyfju og
Ilskinn,
Háaleitisbraut.
kl. 4 Tilb. 500 kr.
hvað?hvar?hvenær?
11 12 13 14 15 16 17
JÚLÍ
Mánudagur
Viðtöl vegna vegabréfsáritana til
Bandaríkjanna
Frá og með 1. ágúst n.k. þurfa umsækjendur vegabréfsáritana til
Bandaríkjanna að koma til viðtals í sendiráðið. Tekið verður á
móti umsækjendum á mánudögum, þriðjudögum, fimmtudög-
um og föstudögum milli klukkan átta og tíu. Ekki er þörf á að
panta tíma fyrirfram. Umsækjendur geta búist við að það taki
u.þ.b. eina klukkustund að fylla út umsóknina, borga áritunar-
gjaldið (sem er $100) og tala við ræðismanninn. Umsækjendur,
að undanskildum börnum undir 16 ára aldri, þurfa að mæta í
eigin persónu. Áritunin er tilbúin til afhendingar innan fimm
virkra daga. Einnig er hægt að skilja eftir merkt umslag með
greiddu póstburðargjaldi til að fá áritunina senda í pósti.
Þeir sem hafa vegabréf með tölvulesanlegri rönd þurfa ekki árit-
un vegna ferða til Bandaríkjanna sem vara skemur en 90 daga.
Allar nánari upplýsingar má finna á
www.usa.is
Sendiráð Bandaríkjanna
Interviews for U.S. Visas
Effective August 1, applicants for U.S. visitors’ (including stu-
dent, exchange, business, work, and tourism) visas must come
to the Embassy to be interviewed. Visa services will be availa-
ble on a walk-in basis to applicants arriving at the Embassy
between 8 and 10 a.m. on Mondays, Tuesdays, Thursdays, and
Fridays. Applicants should be prepared to spend at least an
hour at the Embassy to complete their applications, pay the
$100 processing fee, and be interviewed by the consul. App-
licants, with the exception of children under age 16, must app-
ear in person. Visas will be available for pick-up within five
business days or sent by mail to applicants who provide a self-
addressed envelope with the correct postage. Holders of
machine-readable Icelandic passports continue to be visa-ex-
empt for most U.S. travel of less than 90 days. See www.usa.is
for further information.
Embassy of the United States
TÓNLIST Eins og allir vita var söngv-
ari og lagasmiður Foo Fighters,
Dave Grohl, trommari í Nirvana.
Þar fékk hann aðeins að berja húðir
og fékk aldrei að ota sínum tota í
lagasmíðum, sem voru alfarið í
höndunum á andhetjunni Kurt
Cobain. Meðan sveitin starfaði var
Grohl duglegur við að hljóðrita eig-
in lög í kjallaranum heima hjá sér.
Hann gaf nokkur þeirra út á kassett-
um en ætlaði sér aldrei neitt meira.
Tveimur mánuðum áður en Kurt
Cobain framdi sjálfsmorð átti Nir-
vana bókaðan tíma í hljóðveri. Þar
hafði sveitin ætlað sér að gera
nokkrar prufuupptökur fyrir það
sem átti að verða fjórða breiðskífa
hljómsveitarinnar. Hljóðverið var
bókað í þrjá daga. Þegar Kurt lét
ekki sjá sig plataði Dave bassaleik-
arann Krist Novoselic til þess að
þrykkja inn nokkrum grunnum að
lögum sem hann hafði samið. Cobain
skreið inn í hljóðverið á þriðja degi
og það var þá sem sveitin hljóðritaði
lagið vinsæla „You Know You´re
Right“. Öll lögin sem Grohl og
Novoselic höfðu leikið sér að end-
uðu á fyrstu plötu Foo Fighters.
Grohl lét lítið fyrir sér fara
fyrstu fjóra mánuðina eftir sjálfs-
morð Cobains. Eftir það fékk hann
Barrett Jones með sér í hljóðver og
saman hljóðrituðu þeir fyrstu plötu
Foo Fighters. Grohl hafði lítinn
áhuga á því að hefja sólóferil og hlóð
því utan um sig góðum mönnum.
Bassaleikarinn og trommarinn
komu úr hljómsveitinni Sunny Day
Real Estate, sem splundraðist eftir
að söngvarinn frelsaðist og sneri
baki við rokkinu. Gítarleikarinn Pat
Smear, fjórði liðsmaður Nirvana á
tímabili, var fljótlega ráðinn.
Sveitin tók nafn sitt eftir deild
innan bandaríska hersins sem rann-
sakaði fljúgandi furðuhluti.
Frá því að Foo Fighters varð
formlega hljómsveit árið 1995 hafa
þó orðið nokkrar mannabreytingar.
Í dag trommar Taylor Hawkins auk
þess sem gítarleikarinn Chris
Shiflett leikur á gítar eftir fráhvarf
Smear.
biggi@frettabladid.is
Það er vel við hæfi að Grandaddygefi út að sumri til enda engu lík-
ara en sólargeislarnir í Kaliforníu
rati inn á upptökur þeirra. Ég hef
beðið eftir þessari plötu með tölu-
verðri eftirvæntingu alveg frá því að
sveitin gaf út meistarastykki sitt
„The Sophtware Slump“ árið 2000.
Sveitin hefur í gegnum árin náð
að þróa allsérstæðan hljóðheim
byggðan á gömlum hljómborðs-
skemmturum, engilmjúkri röddu
söngvarans, effektum og hefðbund-
inni hljóðfæraskipan. Lög sveitar-
innar byggjast svo oft á sterkum
kaflasveiflum, þannig að stundum
virðist eins og skipt sé um lag, en það
fer minnkandi með þessari plötu.
Annars er Sumday alveg
prýðisplata og engin vonbrigði.
Fallegur fylgifiskur síðustu plötu
þrátt fyrir að hún nái henni ekki í
gæðum. Þessi á án efa eftir að end-
ast lengi í tækinu þar sem hún
vinnur á við hverja hlustun. Tón-
arnir eru enn mjúkir, jafnvel
mýkri en áður, en sveitin gerir
engar tilraunir til þess að þróa stíl
sinn áfram.
Nokkur lög komast í hóp bestu
laga sveitarinnar, svo sem „I’m On
Standby“ og hið magnaða „Saddest
Vacant Lot in the World“ þar sem
heyra má greinilega áhrif frá seinni
tíma plötum The Beach Boys.
Sem sagt, plata langt yfir meðal-
lagi frá frábærri sveit sem kærir
sig kollótta um glaum og glys.
Þetta er líklegast ein vinalegasta
hljómsveit rokksins í dag.
Birgir Örn Steinarsson
Mjúkur og vina-
legur fylgifiskur
GRANDADDY:
Sumday
FOO FIGHTERS
Foo Fighters er nú búin að gera fleiri plötur og eiga fleiri smelli en Nirvana. Lög á borð
við „Walking After You“, „Monkey Wrench“, „Learn to Fly“, „I’ll Stick Around“ og „All My
Life“ eiga bókað eftir að hljóma í Höllinni.
Syngjandi
trommuleikarinn
Á föstudaginn hefst miðasala á tónleika Foo Fighters í Laugardalshöll 26. ágúst
næstkomandi. Það ætti ekki að koma neinum á óvart ef miðar seljast upp.
14.00 Félagsvist verður í Félags-
miðstöðinni Aflagranda.
Jóhann Örn Ólafsson, danskennari í
Danssmiðjunni, ætlar að kenna línudans
í Vík í Mýrdal, sem er fyrsti áfangastaður
hans á hringferð um landið í tilefni af
10 ára afmæli Danssmiðjunnar.
Tónleikar með Möggu Stínu á
Gauknum.
Haldið verður upp á Bastilludaginn
á Kránni, Laugavegi 73, með léttvíni,
ostum og lifandi tónlist.
Gamli refurinn Jack Nicholsonstóð við bakið á frönskum koll-
egum sínum þeir trufluðu tökur á
nýjustu mynd
hans sem fara
fram í París.
Leikararnir
eru í verkfalli
vegna lágra
launa. Jack
var við tökur
á brú einni í
borginni þeg-
ar hópurinn
mætti á svæðið og neitaði að færa
sig. Jack reif gjallarhornið af leik-
stjóranum og kynnti sér málið.
Eftir að hafa hlustað á kollega sína
tók hann upp hanskann fyrir þá í
stað þess að reyna að losna við þá.
Leikkonan Melanie Griffith hefurtekið að sér hlutverk Roxie
Hart í söngleiknum Chicago á
Broadway.
Hún segist
áður hafa
sótt um stöð-
una en þá
verið hafnað.
Hún segist
einnig mjög
glöð yfir því
að fá hlut-
verk í söngleik sem nú þegar hef-
ur slegið í gegn.
Fréttiraf fólki