Fréttablaðið - 07.09.2003, Page 2
2 7. september 2003 SUNNUDAGUR
Ég er búinn að æfa mig í mánuð,
frá síðasta leik.
Eggert Magnússon er formaður KSÍ. Íslenska
landsliðið á möguleika á að komast á lokamót
EM í Portúgal næsta sumar. Sem stjórnarmaður í
UEFA verður Eggert á staðnum hvernig sem fer.
Spurningdagsins
Eggert, ertu farinn að læra
portúgölsku?
Afsögn Abbas áfall fyrir
brothættar friðarviðræður
Mahmoud Abbas, forsætisráðherra palestínsku heimastjórnarinnar,
tilkynnti afsögn sína í gærmorgun. Friðarferlið er í uppnámi en
Ísraelar og Bandaríkjamenn neita að ræða við Yasser Arafat.
ÍSRAEL, AP Mahmoud Abbas, forsæt-
isráðherra palstínsku heimastjórn-
arinnar, tilkynnti afsögn sína í gær-
morgun en vinsældir hans meðal al-
mennings hafa dvínað mjög að und-
anförnu. Þá hefur hann átt í mikilli
valdabáráttu við Yasser Arafat,
leiðtoga Palestínumanna.
Abbas sendi Yasser Arafat for-
seta afsagnarbréf sitt en ekki hafði
fengist staðfest að Arafat hefði fall-
ist á afsögnina þegar blaðið fór í
prentun. Ákvörðunar Arafats er
beðið með eftirvæntingu. Afsögn
Abbas setur friðar-
ferlið fyrir botni
Miðjarðarhafs í upp-
nám. Vegvísirinn
svokallaði, friðar-
áætlun Bandaríkja-
manna, Rússa, Evr-
ópusambandsins og
Sameinuðu þjóð-
anna, gæti jafnvel
heyrt sögunni til.
Í yfirlýsingu frá Hvíta húsinu
segir að grannt sé fylgst með framvindu mála.
„Á þessum viðkvæma tíma-
punkti er mikilvægt að allir aðilar
íhugi alvarlega afleiðingar gjörða
sinna,“ segir í yfirlýsingu Hvíta
hússins.
Þá er hvatt til þess að þing
Palestínumanna og ríkisstjórn fylki
sér að baki Abbas.
„Við vonum að hægt verði að
draga ákvörðunina til baka,“ sagði
Dominique de Ville, utanríkisráð-
herra Frakklands.
Abbas tók við embætti forsætis-
ráðherra palestínsku heimastjórn-
arinar fyrir 100 dögum, eftir að
ljóst var að Ísraelsmenn og Banda-
ríkjamenn ætluðu að sniðganga
Arafat. Þá voru uppi háværar kröf-
ur um umbætur í stjórnkerfi Palest-
ínumanna. Þessar vikur hafa Abbas
og Arafat staðið í harðri valdabar-
áttu sem hefur að miklu leyti snúist
um hvort öryggissveitir eigi að
heyra undir forseta eða forsætis-
ráðherra. Abbas mun gegna emb-
ætti í nokkrar vikur meðan Arafat
finnur eftirmann hans.
Andartökum eftir að fréttist af
afsögn Abbas reyndu Ísraelsmenn
að ráða stofnanda Hamas af dögum.
Ísraelsk herflugvél varpaði
sprengju á hús í Gaza-borg þar sem
Ahmed Yassin, stofnandi Hamas-
samtakanna, var staddur ásamt öðr-
um helstu forystumönnum samtak-
anna. Yassin og að minnsta kosti 15
aðrir særðust í sprengingunni. Ísra-
elsmenn hafa staðfest að Yassin
hafi verið skotmarkið og markmiðið
hafi verið að þurrka út æðstu stjórn
Hamas-samtakanna. ■
Kennaraskortur á landsbyggðinni hefur minnkað en er enn til staðar:
Enn vantar kennara úti á landi
SKÓLAMÁL „Vandamálið er enn til
staðar en í mun minni mæli en und-
anfarin ár,“ sagði Eysteinn Krist-
insson, aðstoðarskólastjóri Nes-
skóla í Neskaupstað, um hvernig
gengið hefði að ráða kennara til
skólans þessa haustönn.
„Það sem er merkilegt hér er að
hjá okkur er mikið af ungu fólki
sem aldist upp hér og hefur snúið
aftur til að kenna hér við skólann.
Venjan hefur verið sú að unga fólk-
ið hefur ekki snúið aftur eftir nám
þannig að þetta er mjög ánægjuleg
þróun. Hjá okkur vantar ennþá
kennara en staðan er mun betri en
hún hefur verið lengi.“
Eyjólfur Guðmundsson, skóla-
stjóri Framhaldsskóla Austur-
Skaftafellssýslu, sagði ástandið hjá
þeim ekki betra en undanfarin ár.
„Það fæ ég ekki séð. Það vantar
enn nokkra kennara í raungreina-
kennslu og við erum að bjarga okk-
ur fyrir horn núna með því að
kenna nokkra áfanga í fjarkennslu.
Þó má segja að ástandið sé aðeins
að batna varðandi réttindakennara.
Ég áætla að hlutfall lærðra kenn-
ara hér sé nú um 50%, sem er
hærra en undanfarin ár.“ ■
Umdeildur Kínverji:
Kemur í dag
HEIMSÓKN Luo Gan, æðsti yfir-
maður löggæslumála í Kína,
kemur til landsins með einka-
þotu laust fyrir klukkan fimm í
dag. Gan er umdeildur vegna
framgöngu sinnar gagnvart
Falun Gong og efnir Amnesty
International til þögullar mót-
mælastöðu við Þjóðmenningar-
húsið í hádeginu á morgun með-
an Gan snæðir hádegisverð með
dómsmálaráðherra.
Luo Gan fundar á morgun
með Guðmundi Árna Stefáns-
syni, starfandi forseta Alþingis,
Birni Bjarnasyni dómsmálaráð-
herra og Davíð Oddssyni forsæt-
isráðherra. Á þriðjudag á hann
svo fund með Guðrúnu Erlends-
dóttur, forseta Hæstaréttar. ■
Donald Rumsfeld:
Frábær
árangur
ÍRAK, AP Donald Rumsfeld, varnar-
málaráðherra Bandaríkjanna, svar-
ar gagnrýni á frammistöðu innrás-
arhersins í Írak fullum hálsi og talar
um „frábæra byrjun“ uppbygging-
arstarfs í landinu.
Rumsfeld ávarpaði hermenn í
gær í lok þriggja daga heimsóknar
sinnar til Íraks. Rumsfeld viður-
kenndi að nauðsynlegt væri að end-
urbæta ýmislegt í sambandi við ör-
yggismál en byrjunin væri frábær. ■
FLOSI ARNÓRSSON
Hefur setið í fangelsi í Abu Dhabi.
Stýrimaður í fangelsi:
Gæti losnað
í dag
DÓMSMÁL Flosa Arnórssyni stýri-
manni, sem setið hefur í fangelsi í
Sameinuðu arabísku furstadæmun-
um, gæti verið sleppt úr haldi í dag
og verður honum þá vísað beint úr
landi. Jóna Arnórsdóttir, systir
Flosa, sagðist í gær hafa fengið þær
upplýsingar frá utanríkisráðuneyt-
inu.
Norski sendiráðsmaðurinn sem
fer með mál Flosa vonast til þess að
honum verði vísað úr landi í dag og
ekið beint úr fangelsinu á flugvöll-
inn. Flosi átti að losna úr haldi fyrir
viku en algengt virðist í Sameinuðu
arabísku furstadæmunum að menn
sitji áfram inni á meðan tekin er
ákvörðun um hvort vísa eigi þeim
úr landi. ■
!
"!
!#$
"
# $
%
&
'
$
!
( )
"*
"!
+,
)
'
&
'
-
.
.. Síldarvertíð hefst:
Lítið sést
SJÁVARÚTVEGUR Haustvertíð á síld er
hafin, en á föstudag hélt Steinunn
SF-10 af stað til veiða. Ægir Birgis-
son, skipstjóri á Steinunni, sagði í
gær að skipið væri statt suðaustur
af Hvalbak og væru menn að leita
að síld. „Við höfum verið að rúnta
hér um svæðið og aðeins séð eitt-
hvert lítilræði í morgun. Það er
ómögulegt að segja til um það núna
hvernig útlitið er,“ sagði Ægir. „Það
kemur betur í ljós þegar fleiri fara
af stað.“
Jóna Eðvalds SF-20 heldur til
síldveiða í dag og er líklegt að fleiri
skip fari af stað eftir helgi. ■
SKÓLASTARF HAFIÐ VÍÐAST HVAR
Enn vantar kennara til vinnu í skólum úti á
landi.
Bush flytur sjónvarps-
ávarp í kvöld:
Mun verja
Íraksstríðið
WASHINGTON, AP George W. Bush
Bandaríkjaforseti flytur í kvöld
sjónvarpsávarp til bandarísku
þjóðarinnar og hyggst þar verja
stefnu stjórnarinnar í málefnum
Íraks. Bush mun ræða árangurinn
af Íraksstríðinu og stríðinu gegn
hryðjuverkum og nauðsyn þess að
horfa fram á veginn.
Bush flutti sambærilega ræðu
þann 1. maí þegar hann lýsti yfir
stríðslokum í Írak. Síðan hafa 149
bandarískir hermenn fallið. Bush
flytur ræðu sína klukkan hálfníu í
kvöld að staðartíma, klukkan hálf-
eitt í nótt að íslenskum tíma. ■
AFSÖGN
Yasser Arafat, forseti Palestínu, og Mahmoud Abbas forsætisráðherra hafa átt í hatrömm-
um deilum allt frá því Abbas tók við embætti fyrir fjórum mánuðum. Afsögn Abbas bindur
enda á deilurnar og hugsanlega friðarferlið fyrir botni Miðjarðarhafs.
Mun meiri útgjöld Atvinnuleysistryggingasjóðs en á síðasta ári:
Þörf á aukafjárveitingu
ATVINNUMÁL Greiðslur úr At-
vinnuleysistryggingasjóði voru
um 1.200 milljónum hærri á
fyrstu átta mánuðum ársins en á
sama tíma í fyrra, að sögn Sig-
urðar P. Sigmundssonar, for-
stöðumanns rekstrarsviðs
Vinnumálastofnunar. Ástæðan
er meira atvinnuleysi, en meðal-
atvinnuleysi í fyrra var 2,5% og
stefnir í 3,3% eða 3,4% þetta
árið. „Hvert prósentustig í at-
vinnuleysi kostar um 1.100 millj-
ónir,“ segir Sigurður.
„Greiðslurnar eru töluvert
umfram fjárlög, um 1.300 millj-
ónum hærri, en fjárheimildir
voru í lægri kantinum að okkar
mati. Það þarf því aukafjárveit-
ingu til að mæta þessu. Á móti
kemur að Atvinnuleysistrygg-
ingasjóður stendur vel. Það eru
um níu milljarðar í sjóðnum og
eiginfjárstaðan er mjög góð.
Þetta er spurning um hvernig
áætlanir eru gerðar og menn
voru miklu bjartsýnni í fjárlög-
um en raunin varð. Atvinnulífið
hefur verið lengur að taka við
sér en menn vonuðust til.“
Sigurður telur að atvinnuleysi
sé að minnka og muni fara niður
fyrir 3% í september. ■
■
„Á þessum við-
kvæma tíma-
punkti er mikil-
vægt að allir
aðilar íhugi ít-
arlega afleið-
ingar gjörða
sinna.“
AHMED YASSIN
Stofnandi Hamas-samtakanna og andlegur
leiðtogi slapp með skrámur úr sprengju-
árás Ísraelsmanna, andartökum eftir að
Abbas tilkynnti afsögn sína.
ATVINNULEYSI HEFUR AUKIST
Hvert prósent í auknu atvinnuleysi kostar Atvinnuleysistryggingasjóð 1.100 milljónir
EINN MEÐ FIMM RÉTTA Einn
hafði allar tölur réttar í Lottóinu
í gærkvöldi og hlaut þrjár millj-
ónir að launum. Tölurnar voru 3,
7, 9, 17 og 19. Bónustalan var 36.
FJÖLDI Á BRÚARHLAUPI Árlegt
brúarhlaup Árborgarbúa fór
fram í gær. Fjöldi manns tók þátt
í hlaupinu, sem fór fram í ágætu
veðri. Hlaupið fer fram fyrsta
laugardag í september ár hvert
og lokast brúin á Selfossi af þeim
sökum í skamman tíma.
■ Innlent