Fréttablaðið - 07.09.2003, Síða 10
Rapparinn Tupac Shakur fæddistá austurströnd Bandaríkjanna í
upphafi áttunda áratugarins, á þeim
árum er réttindabarátta svartra í
Bandaríkjunum var í hámarki. Móð-
ir hans eyddi meðgöngunni í fang-
elsi fyrir að vera meðlimur Black
Panthers-samtakana en skömmu
áður en hann fæddist losnaði hún út
úr fangelsinu. Enginn veit hver fað-
ir Tupacs var en stjúpfaðir hans,
Shakur, var eins og móðir hans í
Black Panthers. Hann situr enn inni
fyrir vopnuð rán og morð á lög-
regluþjónum. Það var einmitt það
sem leyddi Tupac Shakur út í glæpi
og síðar rappið. Í upphafi níunda
áratugarins voru samtök eins og
Black Panthers hrunin og fyrrum
meðlimum þeirra var ómögulegt að
fá vinnu og leiddust því oft út í
fíkniefnaneyslu. Móðir Tupacs var
þar engin undantekning og hún dóp-
aði og drakk í hinum ýmsu fylkjum
Bandaríkjanna. Hún endaði í Los
Angeles þar sem Tupac steig sín
fyrstu skref sem rappari. Hann sló
fljótlega í gegn en var ávallt viðrið-
inn glæpi. Sat inni fyrir nauðgun
um tíma og fékk þá tónlistarútgef-
andan Marion „Suge“ Knight, sá
sem gaf út bæði Dr. Dre og Snoop
Dog, til að borga tryggingaféð fyrir
sig og endaði því hjá honum. Knight
þessi er þekktur glæpamaður í
Bandaríkjunum og Tupac Shakur
var einmitt að yfirgefa bardaga
Tysons og Seldons með Knight þeg-
ar Cadillac með fjórum manneskj-
um innanborðs keyrði upp að þeim
og skot heyrðust. Tupac og Knight
særðust illa. Knight lifði af, Tupac
ekki. Hann lést 6 dögum síðar. ■
Ég ætla nákvæmlega ekki aðgera neitt en ég er svo lán-
söm að yngsta dóttir mín var að
flytja inn í nýja íbúð og hún ætl-
ar að bjóða móður sinni og systk-
inum í mat á afmælisdaginn
minn,“ segir Guðrún Helgadóttir,
rithöfundur og fyrrum alþingis-
maður.
Guðrún er lítil afmæliskona
fyrir sjálfa sig eins og hún orðar
það og segist lítið gera með
þennan dag. „Eins og mér finnst
nú gaman að standa fyrir sam-
kvæmi hef ég ekki gaman af að
halda upp á þennan dag en finnst
ágætt að aðrir geri það,“ segir
hún og bætir við að það setji bók-
staflega að henni hroll að hugsa
um opið hús og menn að halda
ræður sem snúist um hana.
Guðrún verður sjötug eftir
tvö ár og innt eftir því hvað þá
verði segir hún aldrei að vita
hvað kunni að detta í hana þá.
„Ef að því kæmi að ég færi að
halda upp á þann dag yrði það
fyrir sérstaklega valinn hóp.
Nokkuð er síðan ég vann úti á al-
mennum vinnumarkaði, margir
eru fallnir frá af vinum mínum, í
pólitík eignast menn ekki vini og
aðdáendur mínir eru of litlir til
að mega vera einir úti á kvöldin.
Ef frú Guðrún færi að standa
fyrir hefðbundnu opnu húsi væri
eins víst að þangað flykktust
óvinir mínir og héldu margar og
hjartnæmar ræður afmælis-
barni til heiðurs. Hroðaleg til-
hugsun,“ segir Guðrún og hlær.
Hún verður ekki með bók á
þessu hausti en er vel á veg kom-
in með verk sem hún ætlar að
vinna betur í og skila frá sér á
næsta ári. „Svo er ég bara ð
dunda í garðinum mínum og hlúa
að afkomendum,“ segir Guðrún
Helgadóttir rithöfundur, sem er
sextíu og átta ára og lifir eins og
drottning í sínu ríki. ■
Vikan fram undan verður und-irlögð af lokafrágangi á plöt-
unni Havana, sem kemur út í
næsta mánuði,“ segir Tómas R.
Einarsson tónlistarmaður. „Ég fór
til Havana í lok júlí og tók upp
mína músík með sjö manna kúb-
verskri hljómsveit; blásurum,
miklu slagverki, kúbanska tres-
gítarnum og píanói. Þetta er gam-
all draumur sem hefur tekið mig
nokkur ár að gera að veruleika, en
það gekk allt upp þó að margt sé
flóknara þar en hér. En þótt raf-
magnið fari oft og ýmislegt skorti,
þá er eitt sem aldrei hefur klikkað
á Kúbu og það er músíkin og mús-
íkantarnir. Samstarfið við þá var
gott og hundskemmtilegt. Ég
hafði litla reynslu af að spila með
Kúbverjum, en þetta small gjör-
samlega og hafi maður haft ein-
hverjar áhyggjur, þá var orkan
hjá þeim slík og leikgleðin að
maður gleymdi þeim gjörsam-
lega. Maður bara dansaði með!
Hönnuðurinn og bongóspilarinn
Þórdís Claessen er að gera albúm
fyrir mig sem ég skoða í næstu
viku og Gunnar Smári Helgason
leggur síðustu hönd á hljóðblönd-
unina. Svo fer ég að skoða fimm
klukkutíma efni á spólum sem
Idelfonso Ramos, kúbverskur
kvikmyndaleikstjóri, tók á meðan
ég var þarna síðast; það er úr
stúdíóinu og götulífi, dansandi
fólk og fleira. Ég ætla nefnilega
að búa til músíkvídeó.
Þegar ég lít upp úr Havana
stekk ég á upplestra og uppákom-
ur á bókmenntahátíðinni. Lág-
markið er að fara á mánudag og
miðvikudag og hlusta á rithöfund-
inn Nicholas Shakespeare, sem ég
þekki vel óbeint, því ég þýddi bók
hans, Dansarinn á efri hæðinni,
sem kom út í síðustu viku. Það
verða því Havana og Shakespeare
sem einoka vikuna hjá mér.“ ■
10 7. september 2003 SUNNUDAGUR
BUDDY HOLLY
Söng sig inn í hjörtu heimsbyggðarinn-
ar og deilir afmælisdegi sínum með
Gloriu Gaynor (I Will Survive).
7. september
TUPAC SHAKUR
■ var skotinn á þessum degi fyrir 7
árum en dó að vísu ekki fyrr en 6 dögum
síðar. Enn er ekki vitað hver bar ábyrgð á
morðinu.
7. september
Vikan fram undan
TÓMAS R. EINARSSON
■ tónlistarmaður og þýðandi er að ljúka
við plötuna Havana í komandi viku en
ætlar líka að fylgjast vel með bók-
menntahátíðinni.
Afmæli
GUÐRÚN HELGADÓTTIR
■ rithöfundur hefur aldrei haldið upp á
afmæli sitt og segir um sig fara hroll þeg-
ar hún hugsi um opið hús og ræður sem
fjalli um hana.
ÓDÝRAR
GÆÐA
ÞAK-
SKRÚFUR
Ál
Ryðfríar
Galvaniseraðar
Heitgalvaniseraðar
Söðulskinnur
í úrvali
Stórhöfða 33
Sími: 577 4100
■ Afmæli
Ingólfur Hjartarson hæstaréttarlögmað-
ur er 61 árs.
Svanhildur Kaaber kennari er 59 ára.
Þorbjörn Jensson handboltamaður er
50 ára.
Í pólitík eignast
menn ekki vini
Havana og Shakespeare
einoka vikuna
TÓMAS R. EINARSSON
Hann er að ganga frá plötu, ætlar að búa til músíkvídeó og stunda bókmenntahátíðina.
GUÐRÚN HELGADÓTTIR
„Ef ég færi að halda upp á afmæli mitt myndu óvinir mínir flykkjast að og aðdéndur mínir eru of litlir til að mega vera einir úti á kvöldin.“
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/R
Ó
B
ER
T
Tupac skotinn ■ Þetta gerðist1533 Elísabet I Englandsdrottning fæð-
ist.
1822 Brasilía lýsir yfir sjálfstæði frá
Portúgal.
1956 Tilraunaflugvélin Bell X-2 slær
heimsmet þegar hún klifrar upp í
126,000 feet.
1965 Help! með Bítlunum er á toppi
bandaríska listans.
1971 Eftir 9 ár og 216 þætti hættir
CBS-sjónvarpsstöðin að framleiða
Beverly Hillbillies.
1972 Curtis Mayfield fær gullplötu fyrir
Superfly.
1986 Desmond Tutu tekur við embætti
sínu.
TUPAC SHAKUR
Ekki bara glæparappari heldur einnig virtur
og dáður sem leikari. Hér er hann í mynd-
inni Poetic Justice.
■ Vikan
Í dag hefst vika símenntunar íSkriðu, sal Kennaraháskóla Ís-
lands, og í Egilshúsi í Stykkis-
hólmi. Tómas Ingi Olrich
menntamálaráðherra setur vik-
una en Þorsteinn Gunnarsson,
rektor Háskólans á Akureyri,
Ólafur Proppé, rektor Kennara-
háskóla Íslands, og Kristín Á
Ólafsdóttir, aðjúnkt við Kennara-
háskóla Íslands, flytja erindi. All-
ar nánari upplýsingar eru á slóð
vikunnar: www.mennt.net/si-
menntun. ■
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/V
IL
H
EL
M