Fréttablaðið - 07.09.2003, Side 13

Fréttablaðið - 07.09.2003, Side 13
viðskiptasaga tveggja fyrirtækja hefur áhrif. Þannig var Shell Petr- oleum tilbúið að selja ráðandi hluthöfum hlut sinn í Skeljungi, en hafnaði þreifingum Kaupþings sem vildi líka kaupa. Þar réðu ára- löng samskipti fyrirtækisins við aðaleigendur Skeljungs. Viðbrögð stjórnmálanna Greina má fyrirvara í við- brögðum stjórnmálamann við yfirlýsingum Björgólfs. Sjálf- stæðismenn eru bjartsýnir á að aukin einkavæðing skapi hér við- skiptalíf sem lúti sömu lögmálum og viðskiptalíf annarra vest- rænna ríkja. Kristinn H. Gunn- arsson, Framsóknarflokki, segir erfitt að slá einhverju föstu út frá yfirlýsingum Björgólfs. „Venjan er sú að menn vilja græða á því sem þeir eru að gera. Menn hafa svo ýmis önnur sjón- armið í huga og þau koma oft sterkt fram, sérstaklega þegar menn eru búnir að græða vel og eru orðnir saddir.“ Birgir Ármannsson, Sjálf- stæðisflokki, segir það hafa verið markmið Sjálfstæðisflokksins að atvinnulífið byggi við við- skiptaumhverfi sem gerði mönn- um kleift að reka fyrirtæki með arðbærum hætti. „Hluti af þeirri þróun var meðal annars að selja hlutabréf ríkisins í bönkunum. Það er í sjálfu sér ekkert nema jákvætt að menn vilji nýta þá möguleika sem breytt við- skiptaumhverfi felur í sér.“ Jóhanna Sigurðardóttir segir auðvitað gott og blessað að rjúfa eignatengsl á fjármálamarkaði. „Það verður þá jafnframt að rjúfa þá valdasamþjöppun og fá- keppni sem þar hefur verið og gengið gegn hagsmunum neyt- enda. Stóra spurningin er hvað kemur í staðinn? Það eru hags- munir neytenda ef Kolkrabbinn riðar nú til falls sem nú blasir við og að verið sé að brjóta upp valdablokkir sem hafa ríkt hér í allt of langan tíma.“ Hún segir fá- keppni hafa haldið uppi háu verði á þjónustu og vaxtagjöldum banka. „Það verður grannt fylgst með því hvort hér verði breyting- ar sem þjóna hagsmunum neyt- enda. Ég hef mínar efasemdir, en ég vil gefa þessu tækifæri og sjá hvaða breytingar fylgja í kjölfar- ið,“ segir Jóhanna og leggur áherslu á að umbreytingar muni reyna á eftirlitsstofnanir samfé- lagsins. Ögmundur Jónasson segir að Björgólfur kunni að hafa að ein- hverju leyti rétt fyrir sér. „Ég spyr þá á móti, hvort hagnaður og völd standi svo langt hvort frá öðru þegar allt kemur til alls. Hvort þetta séu ekki í raun ná- skyldir ættingjar.“ Ögmundur segir áhrifamikla aðila í efna- hagslífinu hafa nýtt völd sín til að hagnast enn betur. „Það er tvennt sem mér finnst áhyggjuefni sem hefur verið að gerast í íslensku efnahagslífi. Í fyrsta lagi hve auður er að safnast á hendur fárra. Í öðru lagi hver áhrif ríkis- valdið hefur haft á þessa þróun með sölu ríkisbankanna. Þetta hlýtur að vera stjórnvöldum um- hugsunarefni. Þó ég trúi ýmsu upp á ríkisstjórnina þá trúi ég því ekki að henni hugnist sú innsýn sem við erum að fá í íslenskt at- vinnulíf.“ Yfirlýsingum Björgólfs er yf- irleitt vel tekið innan viðskipta- lífsins. Utan hópsins í kringum þá Björgólfsfeðga segja menn í viðskiptalífinu yfirlýsinguna góða og blessaða, en verkin eigi eftir að tala. Menn óttast að and- lát Kolkrabbans sé eins og dauði einvalds, Konungurinn er látinn, lifi konungurinn. Menn fylgjast spenntir með því hvort hugur fylgi máli og Björgólfur standist þá freistingu að tryggja völd og áhrif í stað þess að einblína á arð- semi fjárfestinga. haflidi@frettabladid.is SUNNUDAGUR 7. september 2003 JÓHANNA SIGURÐARDÓTTIR Segir mikilvægt að breytingar verði til hagsbóta fyrir neytendur. ÖGMUNDUR JÓNASSON Áhyggjuefni að auðurinn safnist á fáar hendur. BOÐBERI BREYTINGA Björgólfur Guðmundsson hefur bæði afl og ásetning til þess að gera breytingar á hugsun í viðskiptalífinu. Á næstu misserum mun verða fylgst með því hvernig hann beitir sér til þess að rjúfa eignatengsl fyrirtækja og auka arðsemi þeirra. Menn óttast að andlát Kolkrabbans sé eins og dauði einvalds, Konungurinn er látinn, lifi konungurinn. Menn fylgjast spenntir með því hvort hug- ur fylgi máli og Björgólfur standist þá freistingu að tryggja völd og áhrif í stað þess að einblína á arðsemi fjárfestinga. ,,FRÉ TT AB LA Ð IÐ /V IL H EL M

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.