Fréttablaðið


Fréttablaðið - 07.09.2003, Qupperneq 15

Fréttablaðið - 07.09.2003, Qupperneq 15
Stórkostleg borg í hjarta Evrópu, sem Íslendingum býðst nú að kynnast í beinu flugi frá Íslandi. Búdapest er nú orðin einn aðal áfangastaður Íslendinga, enda hefur hún að bjóða einstakt mannlíf, menningu og skemmtun. Hér getur þú valið um góð 3ja og 4ra stjörnu hótel í hjarta Búdapest og spennandi kynnisferðir með fararstjórum Heimsferða. Munið Mastercard ferðaávísunina Búdapest í haust frá kr. 28.550 Fimmtudaga og mánudaga í október 3, 4 eða 7 nætur Verð kr. 28.550 Flugsæti til Búdapest, 20. okt. með 8.000.- kr. afslætti. Gildir frá mánudegi til fimmtudags. Verð kr. 39.950 Helgarferð, 2. október, Tulip Inn með morgunmat, m.v. 2 í herbergi, 4 nætur. Flug, gisting, skattar. Staðgreiðsluverð. Skógarhlíð 18, sími 595 1000. www.heimsferdir.is 26. sept. – 21 sæti 2. okt. – 29 sæti 6. okt. – 11 sæti 9. okt. – laust 13. okt. – uppselt 16. okt. – uppselt 20. okt. – laust 23. okt. – 19 sæti 27. okt. – laust 30. okt. – 39 sæti Síðustu sætin 15SUNNUDAGUR 7. september 2003 Hver er maðurinn? Málverk vikunnar Hann er náttúrlega gangandialfræðiorðabók. Og það sem hann ekki veit reiknar hann út eða kjaftar sig út úr á staðnum. At- orkumaður, ein af hamhleypun- um,“ segir Leifur Hauksson, út- varpsmaður og rithöfundur. Hann hefur vitað af manninum sem um er spurt allt frá því hann var stubbur með hor í nefinu og lenti síðar í honum í návígi. Leifur seg- ir manninn sæmilega lagvissan ef það er vísbending. Maðurinn sem um er spurt hef- ur verið áberandi lengi, snöfur- mannlegur í framgöngu, og hefur skipt nokkrum sinnum um starfs- vettvang. Honum hefur verið lýst sem ekki allra. „Hann er samkvæmur sjálfum sér, harðduglegur og ósérhlífinn. Svo einbeittur að hundrað hestar myndu ekki trufla hann við störf sín. Hann er svolítið sérstakur karakter, einfari og býr yfir góðu jafnvægi. Ég hef haft góð kynni af honum,“ segir Helga Ólafsdóttir, ritstjóri Matartímans. Steingrímur Snævarr Ólafsson ritstjóri myndi nota eftirfarandi orð um manninn: „Drengur góður, á góðan afmælisdag, eldklár og vinur vina sinna. Hann nagar á sér neglurnar og borar í nefið. Svo kann ég vel við þessa strípihneigð sem hann er þekktur fyrir.“ Hver er maðurinn? Svar á síðu 19. Alfræðiorðabók og ekki allra EINBEITTUR EINFARI Samferðarmenn mannsins sem um er spurt bera honum vel söguna, eru á einu máli um að hann sé harðduglegur, ákaflega vel að sér og svolítið sérstakur karakter. Án titils“ eftir Sigurð Árna Sig-urðsson er málverk vikunnar. Verkið komst í eigu Listasafns Ís- lands árið 1994, sama ár og verkið var gert, og greiddi safnið 260.000 krónur fyrir það. Sigurður Árni er fæddur 1963 og lauk námi í upp- hafi tíunda áratugarins frá Institut des Hautes Études en Arts Pastiques í París eftir að hafa lokið námi hér heima í Mynd- listar- og handíðaskóla Íslands. Landslagið er aldrei langt und- an í verkum Sigurðar. En það er ekki hin óbeislaða náttúra sem hann sýnir okkur heldur landslag sem er mótað af mannavöldum, til dæmis trjá- garðar og golf- vellir. Lands- lagið í verkum Sigurðar Árna er greinilega skipulagt og oftar en ekki virðist sem hann noti nátt- úruna sem tæki til að kanna eig- inleika mál- verksins. Oft- ast beinir hann athyglinni að for- grunni og bakgrunni eða yfirborð- inu og því sem leynist undir. ■ MANNGERT LANDSLAG „Án titils“, olía, 150X150, frá árinu 1994. Skipulagt landslag Foreldrar Verjum tíma með börnunum okkar Hver stund er dýrmæt

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.