Fréttablaðið - 07.09.2003, Qupperneq 18
18 7. september 2003 SUNNUDAGUR
Ballettvörur
Mikið úrval
Bolir, pils, tutu, skór,
gjafavara og fylgihlutir
Einnig vörur fyrir
fimleika og jazzdans
Háaleitisbraut 68 - Austurveri
Sími 568 4240
Ég efast ekki um að stundumvinna barnaverndarnefndir
þörf verk. Ég ætla ekki að halda
því fram að þær vinni aldrei góð
verk. En í það minnsta finnst
mér dæmin vera of mörg þar
sem börnin virðast ekki vera
númer eitt, tvö og þrjú hjá þessu
fólki,“ segir Þorgerður Elías-
dóttir, móðir, áhugamanneskja
um málefni fjölskyldna og ekki
síst baráttumanneskja fyrir rétt-
indum barna. Þorgerður vinnur
um þessar mundir að stofnun
samtaka sem er ætlað vera vett-
vangur mæðra og feðra sem eiga
það sameiginlegt að hafa staðið í
erfiðum forræðismálum eða
málum tengdum umgengnisrétti
barna við foreldri og þurft að
eiga mál sín undir barnavernd-
aryfirvöldum, með slælegum og
oft sorglegum árangri að eigin
sögn. „Þetta eru samtök sem
voru til fyrir nokkrum árum og
við höfum hugsað okkur að
reyna að endurvekja þau,“ segir
Þorgerður. „Okkur finnst ekki
vera vanþörf á, sérstaklega
vegna barnanna, því mér virðist
fjölmörg dæmi vera um að hag-
ur þeirra sé fyrir borð borinn í
erfiðum málum hér á landi.“
Víðtæk óánægja
Þorgerður segir að enn sem
komið er sé um að ræða viðræð-
ur milli nokkurra manneskja.
Áhugi sé þó vaxandi og sérstak-
ur aðili sé í því að hafa samband
við fólk sem hefur átt í vanda út
af forræðismálum og umgengn-
isrétti, oft tengt úrskurðum eða
meintu aðgerðaleysi barna-
verndanefnda, og láta það vita af
hinum nýja vettvangi. Stefnt er
að stofnfundi á allra næstu vik-
um og gerir Þorgerður ráð fyrir
að í félaginu verði bæði mæður
og feður. „Þetta er fólk sem hef-
ur staðið í forræðismálum, átt í
vandræðum og ekki fengið neina
lausn sinna mála, heldur þvert á
móti,“ segir Þorgerður. „Þetta
snýst að stórum hluta um störf
barnaverndarnefnda. Það er
mjög mikil óánægja með störf
þeirra, allt í kringum landið. Það
er ekki bara í Reykjavík. Mér
persónulega finnst troðið á rétt-
indum barna á Íslandi.“
Dæmi Þorgerðar
Það er ástæða fyrir því að
Þorgerður notar orðið „persónu-
lega“ þegar hún lýsir því yfir að
henni finnist troðið á réttindum
barna. Hún kveðst sjálf hafa
sögu að segja af viðskiptum við
barnaverndarnefnd, sem síðan
hafi leitt til þess að hún telur
núna ástæðu til þess að stofna
samtök út af misbresti í störfum
þeirra. „Ég vil bara nefna það
dæmi sem ég veit best um,“ seg-
ir Þorgerður. „Lítill drengur úti
á landi varð fyrir því að missa
foreldra sína. Það er í rauninni
skelfilegt hvernig mál hans þró-
aðist í kjölfarið á því slysi. Hann
var áður alinn upp í sama húsi og
föðuramma og föðurafi og hafði
alist þar upp alla tíð. Það hefði
Nokkrar mæður vinna nú að stofnun félags undir gömlu nafni, Fjölskylduvernd,
sem er stofnað til höfuðs því sem þær kalla gerræðisleg vinnubrögð barnaverndar-
nefnda í landinu. Þorgerður Elíasdóttir, hvatamaður að stofnun samtakanna,
kveðst þekkja störf nefndanna af eigin raun og ber þeim ekki vel söguna:
Stofnar samtök til
að vernda rétt barna
UMFJÖLLUN SÍÐUSTU HELGAR
Umfjöllun Fréttablaðsins um feður sem mótmæltu meðferð forræðismála fyrir utan sýslu-
mannsembættið í Hafnarfirði vakti talsverð viðbrögð. Þorgerður segir það á stefnuskránni
að hafa samband við Félag ábyrgra feðra þegar að stofnun Fjölskylduverndar kemur og
bjóða þeim að taka þátt.
ÞORGERÐUR ELÍASDÓTTIR
Hvatamaður að endurvakningu Fjölskylduverndar. Hún segist ekki efast um að barnaverndarnefndir vinni þarft verk, en hins vegar séu
þær eftirlitslausar og dæmin sýni að réttindi barna séu oftsinnis fótum troðin.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
Ð
/V
IL
H
EL
M