Fréttablaðið - 07.09.2003, Qupperneq 31
31SUNNUDAGUR 7. september 2003
Stökktu
til Benidorm
24.sept.
frá 19.963.-
Sértilboð 1.okt - 3 vikur
Nú getur þú tryggt þér síðustu sætin í sólina í september á hreint
ótrúlegum kjörum til vinsælasta áfangastaðar Íslendinga. Sumarið er í
blóma á Spáni fram í október og hér getur þú notið lífsins við frábærar
aðstæður og nýtur traustrar þjónustu fararstjóra Heimsferða allan
tímann. Bókaðu strax og tryggðu þér síðustu sætin í haust.
Kr. 29.950.-
Flug og gisting,
m.v. 2 í studio/íbúð.
24.sept. - vikuferð.
Skattar innifaldir. Staðgreitt.
Almennt verð kr. 31.450.-Kr. 19.963.-
Flug og gisting, m.v. hjón með
2 börn, 2 - 11 ára.
Skattar innifaldir. Staðgreitt.
Almennt verð kr. 20.960.-
Kr. 39.950.-
Flug og gisting, m.v. 2 í stu-
dio/íbúð. 17..sept. - 2 vikur.
Skattar innifaldir. Staðgreitt.
Almennt verð kr. 31.450.-
Sértilboð 1.okt - 3 vikur
Kr. 49.950.-
Flug og gisting, m.v. 2 í stu-
dio/íbúð. 1.okt. - 3 vikur.
Skattar innifaldir. Staðgreitt.
Almennt verð kr. 52.450.-
Munið Mastercard
ferðaávísunina
Síðustu sætin
10.sept - uppselt
17.sept - 8 sæti 2 vikur
24 sept. - 14 sæti vikuferð
1.okt. - 28 sæti 3 vikur
Skógarhlíð 18, sími 595 1000 www.heimsferdir.is
Undanriðlar Evrópu-
keppninnar 2004:
Skotar með
ellefu stig
FÓTBOLTI Skotar unnu Færeyinga
með þremur mörkum gegn engu í
Glasgow í gær í 5. riðli und-
ankeppni Evrópumótsins. Með
sigrinum komust Skotar í ellefu
stig, tveimur stigum minna en Ís-
lendingar, en eiga leik til góða gegn
Litháum.
Færeyingar veittu Skotum verð-
uga keppni. Heimamenn komust
yfir snemma leiks en Færeyingar
náðu að jafna tíu mínútum fyrir
leikhlé. Skagamaðurinn Julian
Johnson skallaði í mark eftir horn-
spyrnu Jákops af Borg.
Paul Dickov, leikmaður Leicest-
er, færði Skotum forystuna að nýju
með síðustu spyrnu fyrri hálfleiks.
James McFadden, leikmaður
Everton, gulltryggði sigur Skota
korteri fyrir leikslok þegar hann
sendi fyrirgjöf Neil McCann í
mark Færeyinga af stuttu færi. ■
SKOTASIGUR
Skotinn Colin Cameron og Færeyingurinn Frodi Benjaminsen í leik þjóðanna í gær.
Lékum með hjartanu
Eiður Smári Guðjohnsen segir íslenska landsliðið hafa leikið með hjart-
anu. Ásgeir Sigurvinsson landsliðsþjálfari var svekktur að leikslokum.
FÓTBOLTI „Við lékum með hjartanu,“
sagði Eiður Smári Guðjohnsen, fyr-
irliði íslenska
landsliðsins, eftir
leikinn í gær. „Við
sýndum Þjóðverj-
unum það með
fyrstu þremur til
fjórum tæklingun-
um að þeir þyrftu
að hafa mikið fyrir
hlutunum.“
Eiður Smári
sagðist hafa viljað
fá vítaspyrnu þegar
hann féll í teignum
seint í leiknum.
Sumir dómarar hefðu dæmt víti en
þessi gerði það ekki. „Þetta atvik
réð þó ekki úrslitunum,“ sagði Eið-
ur Smári.
Eiður fékk mjög gott færi seint
í fyrri hálfleik. Hann var óánægður
með að hafa ekki nýtt það. „Mér
sýndist Kahn vera of framarlega
svo ég ákvað að
fara nær í stað þess
að skjóta strax.“
Oliver Kahn varði
skot landsliðsfyrir-
liðans.
„Með smá
heppni hefði Ísland
getað sigrað – en
heppnin var ekki
með okkur í dag,“
sagði Eiður Smári.
„Þýsku leikmenn-
irnir hafa það
sjálfstraust sem þarf í svona leiki.
Það sést á leikmönnum eins og
Ballack. Hann er mjög öruggur
þegar hann er með boltann. Þetta
sjálfsöryggi vantar hjá okkur en
leikmenn geta öðlast það með þátt-
töku í stórleikjum sem þessum.“
Ásgeir Sigurvinsson lands-
liðsþjálfari var svekktur að
leikslokum. „Fyrir leikinn hefði
ég verið ánægður með jafntefli
en eftir hann er ég dálítið
svekktur,“ sagði Ásgeir. „Við
gengum til leiks með það að
markmiði að leika skipulega,
vera þolinmóðir og gefa ekki
færi á okkur. Ég vissi að við
myndum fá marktækifæri en
því miður nýttum við þau ekki.“
Að sögn Ásgeirs léku Þjóð-
verjar eins og við var að búast.
„Við vissum alveg hvað þurfti til
að verjast þeim.“ Hann telur að
þrátt fyrir allt muni Þjóðverjar
sigra í riðlinum. „Möguleikar
okkar í næsta leik eru ekki tald-
ir miklir. En ég minni á að Ís-
lendingar eru enn efstir í riðlin-
um,“ sagði Ásgeir Sigurvinsson
landsliðsþjálfari. ■
FÓTBOLTI „Þeir léku ekki eins og ég
vildi,“ sagði Rudi Völler, þjálfari
þýska landsliðsins, eftir leikinn.
„Ef við ætlum að vinna Skota þurf-
um við að leika mun betur.“
Völler sagðist sáttur við fyrri
hálfleikinn en að liðið hafi leikið
illa í þeim seinni. Þegar upp var
staðið var hann sáttur við jafn-
teflið.
„Gagnrýnin sem liðið hefur
fengið á rétt á sér,“ sagði Völler, en
var ekki sáttur við tóninn í henni.
Landsliðsþjálfarinn sagði að
gagnrýnin sem beindist að Þjóð-
verjum eftir leiki gegn lægra skrif-
uðum andstæðingum eins og Ís-
lendingum og Albönum sýndi virð-
ingarleysi fjölmiðla gagnvert
mótherjunum. „Forverar mínir,
Berti Vogts og Erich Ribbeck, tóku
þessu þegjandi en ég ætla ekki að
sitja undir þessu lengur,“ sagði
Völler.
Völler sagðist ekki geta sagt af
hverjum einstakir leikmenn skil-
uðu ekki 100% vinnu í svona leik en
hann ætlaði að vinna í því fyrir
leikinn við Skota að koma því í lag.
„Ég gagnrýni ekki leikmenn mína.
Ég stend með þeim. Þetta verður
betra gegn Skotum.“ ■
RUDI VÖLLER
Vill að Íslendingum verði sýnd meiri virðing.
Rudi Völler:
Léku ekki eins og ég vildi
EIÐUR SMÁRI
GUÐJOHNSEN
Landsliðsfyrirlið-
inn átti frábæran
leik í dag og var
óheppinn að
skora ekki.
ÁSGEIR SIG-
URVINSSON
Var hálfsvekktur
að leik loknum
þrátt fyrir jafn-
tefli.