Fréttablaðið - 07.09.2003, Page 34
■ ■ KVIKMYNDIR
Sjá www.kvikmyndir.is
Sambíóin Kringlunni, s. 588 0800
Sambíóin Álfabakka, s. 587 8900
Háskólabíó, s. 530 1919
Laugarásbíó, s. 5532075
Regnboginn, s. 551 9000
Smárabíó, s. 564 0000
Sambíóin Keflavík, s. 421 1170
Sambíóin Akureyri, s. 461 4666
Borgarbíó, Akureyri, s. 462 3500
■ ■ FUNDIR
15.00 Bókmenntahátíð Reykjavík-
ur verður sett í Norræna húsinu.
Ókeypis
verður inn
á alla liði
hátíðarinn-
ar á með-
an húsrúm
leyfir. José
Saramago og Thor Vilhjálmsson eru
meðal þeirra sem munu ávarpa gesti
en Tómas Ingi Olrich menntamálaráð-
herra setur hátíðina.
20.00 Bókmenntakvöld í Iðnó þar
sem Hallgrímur Helgason, Emmanuel
Carrere, Gerður Kristný, Per Olov Enquist
og Yann Martel lesa upp úr verkum sín-
um.
■ ■ TÓNLEIKAR
16.00 Haldnir verða tónleikar í Ný-
heimum á Höfn í Hornafirði, þar sem
listamennirnir Ingibjörg Guðjónsdóttir,
sópran, Einar Jóhannesson klarínettu-
leikari og Valgerður Andrésdóttir píanó-
leikar flytja verk eftir Atla Heimir Sveins-
son, Jón Ásgeirsson, Mozart, Puccini,
McCabe og Gershwin.
20.00 Tríó Reykjavíkur heldur tón-
leika í Hafnarborg. Hópurinn fagnar nú
14. starfsári sínu og samstarfi við Hafn-
arborg, menningar og listastofnun
Hafnafjarðar. Á efnisskránni verður tríó í
e-moll eftir Joseph Haydn og tríó í C-dúr
eftir Jóhannes Brahms. Að auki mun
tríóið flytja „Out of the Gothic North“,
píanótríó eftir John Speight.
20.00 Tónleikaröðin Tíbrá í Saln-
um, Kópavogi, hefst með tónleikum
Kristins Sigmundarsonar bassaleikara og
Jónasar Ingimundarsonar píanóleikara.
Þeir félagar ætla að leika „Liederkreis
op. 39“ og „Kernerljóðin op. 35“ eftir
Robert Schumann. Tónleikarnir eru
helgaðir minningu Halldórs Hansen
barnalæknis og tónlistarfrömuðar.
20.00 Dansiball til hálf tólf í kvöld í
Ásgarði, Glæsibæ.
■ ■ UPPÁKOMUR
13.00 Útgáfuhátíð bókar um fót-
boltafélagið Arsenal verður haldið á Húsa-
vík á Sölku. Gleðin færist svo yfir á veiting-
arstaðinn Alí á Akureyri upp úr kl. 18.00.
17.00 Útiguðsþjónusta verður við
Þingvallabæinn með Þorvaldi Halldórs-
syni og Margréti Scheving. Létt tónlist
og gleðiríkt samfélag í óviðjafnanlegum
helgidómi sjálfrar náttúrunnar.
21.00 Kvöldmessa verður í Hraun-
gerðiskirkju í Flóa. Sr. Egill Hallgríms-
son Skálholtskirkjuprestur predikar og
þjónar fyrir altari.
■ ■ DANSSÝNINGAR
20.00 Nútímadanshátíð stendur
yfir í Borgarleikhúsinu og í kvöld er
sýning á sex sólódönsum. Markmið há-
tíðarinnar er að skapa vettvang þar sem
sjálfstætt starfandi dansarar og danshöf-
undar kynna verk sín. Þeir sem standa
að hátíðinni í ár eru meðal fremstu
dansara og danshöfunda á Íslandi. Þau
eru; Ástrós Gunnarsdóttir, Cameron
Corbett, Jóhann Freyr, Nadia Banine,
Ólöf Ingólfsdóttir og Sveinbjörg Þór-
hallsdóttir.
■ ■ LEIKHÚS
14.00 Lab Loki sýnir barnaleikritið
Baulaðu nú... í Listasafni Reykjavíkur í
Hafnarhúsinu. Sýningin er ætluð börnum
frá 3-9 ára. Það kostar 1.200 kall inn og
miðapantanir eru í síma 590-1200.
16.00 Söngleikurinn Grease er
sýndur í Borgarleikhúsinu. Í kvöld er
uppselt en sýningum fer þó fækkandi.
■ ■ LISTSÝNINGAR
Sýningin „Safneignin og samtíminn“
í Listasafni Árnesinga er opin laugar-
daga og sunnudaga milli 14.00 og
18.00. Síðasti sýningardagur er 21. sept-
ember. Aðgangur er ókeypis.
Pétur Már Gunnarsson myndlistar-
maður sýnir nú verk sitt í Gallerí Dvergi
við Grundarstíg 21 í Þingholtunum. Sýn-
ing Péturs nefnist „Bréfasprengjur“ og
má þar sjá borgaraleg vopn og ástarbréf,
sem jafnframt eru til sölu. Sýningin er
opin fimmtudag til sunnudags klukkan
17-19, til 14. ágúst.
Sjönn Har sýnir 45 ný málverk og
vatnslitamyndir í Art Icelandic Gallery,
Skólavörðustig 25 a. Opið virka daga. kl
12-18. laugard. kl. 12-16. sunnud. kl. 14-
18. Sýningin stendur til og með 14 sept-
ember 2003.
34 7. september 2003 SUNNUDAGUR
Þetta er ákveðin sjálfsskoðunhjá okkur öllum,“ segir Svein-
björg Þórhallsdóttir dansari en
hún er ein af sex danshöfundum
sem flytja eigin sólóverk á Dance-
festival 2003.
„Við vorum nokkrir sjálfstætt
starfandi dansarar sem ákváðum
að taka höndum saman í fyrra og
komum á fót þessari hátíð sem nú
er haldin í annað sinn.“
Verkin eru öll ný af nálinni en
verk Sveinbjargar kallast For I
Am: „Þetta er tilvitnun úr ljóði sem
ég fann í ljósmyndabók. Ég hafði
mikið verið að hugsa um togstreit-
una sem getur skapast á milli hlut-
verkanna sem við leikum í lífinu.
Ég er tveggja barna móðir og ég
dansa, kenni og þríf og elda mat.
Það getur auðvitað verið svolítið
töff stundum og mér fannst þetta
ljóð lýsa því sem ég hafði í huga,“
segir Sveinbjörg, sem hefur
kennslu í nútímadansi við Listdans-
skóla Íslands að aðalstarfi.
Þeir sem standa að hátíðinni í
ár eru meðal fremstu dansara og
danshöfunda á Íslandi: „Ólöf Ing-
ólfsdóttir samdi verk sem kallast
The Secret Life of a Wallflower,
en það fjallar um fólk sem er
ósýnilegt. Það er veggfóður á
sviðinu og í dansinum fellur hún
alveg saman við veggfóðrið.“
Dansverkin voru öll frumsýnd
í gær í Borgarleikhúsinu: „Mark-
miðið með hátíðinni er að skapa
vettvang þar sem sjálfstætt starf-
andi danshöfundar kynna verk sín
og koma sér á framfæri. Við
stefnum að því að gera þessa hátíð
að árvissum atburði,“ segir Svein-
björg en dansverkin verða flutt á
Nýja sviðinu kl. 20.00 í kvöld. ■
Kynntu þér verðið á www.raf.is
NLP Námskeið
Neuro - Lingustic - Programming
Námskeiðið fer fram dagana 22. sept til 3. október
kl. 18-22. Ekki er kennt helgina 27. og 28. sept.
NLP undirmeðvitundarfræði er fyrir alla og er okkar
innra tungumál milli hugsana og undirmeðvitundar.
NLP er notað af fólki um allan heim sem hefur náð
frábærum árangri í lífinu.
Kennt er m.a.:
-Að vera móttækilegur og læra á
auðveldan hátt.
-Að skapa nýtt samskiptamál.
-Að skapa þína eigin framtíð.
-Að stjórna samtölum.
-Að vekja snillinginn í sjálfum sér.
-Að leysa upp neikvæðar venjur.
-Að lesa persónuleika fólks.
-Venjur til varanlegs árangurs.
Upplýsingar í síma: 588 1594
Netfang: koe@islandia.is
Nánari upplýsingar um NLP má finna á: www.ckari.com
Leiðbeinandi: Kári
Eyþórsson MPNLP.
hvað?hvar?hvenær?
4 5 6 7 8 9 10
SEPTEMBER
Sunnudagur
■ DANS
Dansandi tveggja
barna móðir
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/A
LD
A
LÓ
A
SVEINBJÖRG
ÞÓRHALLSDÓTTIR
Dansar verk sitt For I am...
í Borgarleikhúsinu í kvöld