Fréttablaðið - 27.09.2003, Page 13

Fréttablaðið - 27.09.2003, Page 13
13LAUGARDAGUR 27. september 2003 Mér líður eins og ég sé að verðaþrítugur en ekki fertugur,“ segir Friðrik Kingo Andersen tölvufræðingur, sem ætlar að bjóða vinum, fjölskyldu og velunn- urum til veislu í kvöld í tilefni þess að fjörutíu ár eru síðan hann leit fyrst dagsins ljós í Danmörku. Friðrik er Dani að hálfu og fékk nafnið Kingo í höfuð föður síns og Friðriksnafnið í höfuð konungs, föður Margrétar Þórhildar. Kingo- nafnið á rætur að rekja langt aftur og eitt frægasta sálmaskáld Dana. Tomas Kingo, sem uppi var á sautjándu öld, er forfaðir hans. „Fólk hváir vanalega þegar ég kynni mig og spyr hvaðan nafnið sé komið. Stundum þegar menn hafa hváð nokkrum sinnum sleppi ég því bara og segist heita Frið- rik,“ segir Kingo sem jafnan not- ar Kingo-nafnið enda þekkja flestir vinanna hann undir því nafni. „Ég geri það stundum að gamni mínu að kanna þekkingu presta í fræðunum. Þá sé ég það fljótlega þegar ég nefni nafnið mitt hvort þeir kannast við það. Ef þeir sýna engin viðbrögð veit ég að þeir hafa ekki lesið fræðin. Biskupinn okkar, herra Karl, er þar undantekning. Hann þekkir vel til sálmaskáldsins Tomasar Kingo,“ segir hann. Friðrik Kingo hefur leikið lítil hlutverk í nokkrum kvikmyndum. Meðal þeirra mynda sem hann hef- ur komið nálægt eru Ikingut, Í faðmi hafsins og honum brá fyrir í 101 Reykjavík. „Maður bíður bara spenntur eftir breikinu en ég hef líka leikið í nokkrum tónlistar- myndböndum og sungið lítillega með inn á nokkra geisladiska,“ segir Kingo, sem á afmælisdaginn ætlar að sofa út og stússast síðan við undirbúning veislunnar sem haldin verður á Grund við Úlfars- fell á milli 15 og 17 í dag. ■ GUÐJÓN PEDERSEN LEIKHÚSSTJÓRI Hann segir gaman að kynna fyrir yngstu kynslóðinni hve leikhúsið er fræðandi og skemmtileg listgrein. ??? Hver? Leikhússtjóri Leikfélags Reykjavíkur. ??? Hvar? Í Borgarleikhúsinu. ??? Hvaðan? Ég er Reykvíkingur en á ættir að rekja bæði austur og vestur á firði. ??? Hvað? Barnastarfið höfum við verið að byggja upp síðastliðin sjö ár og okkur langar til að halda því áfram. ??? Hvers vegna? Til að kynna fyrir yngstu kynslóðinni hve leikhúsið er bæði skemmtileg og fræð- andi listgrein. ??? Hvernig? Með því að vera í sem mestum tengsl- um við bæði börn og uppalendur. ??? Hvenær? Börnin hafa alltaf komið í leikhúsið fyrir hádegi en stefnan er að þau heimsæki okkur helst sem oftast allan ársins hring. ■ Persónan MEAT LOAF Sveitti stuðrokkarinn er 52 ára í dag. Hann er enn í gífurlegu stuði og örugglega alltaf jafn mikill Íslandsvinur en fáir hafa komið fólki í jafn rokkað sving hér á landi og Meat Loaf gerði um árið í Reiðhöllinni. Afmæli FRIÐRIK KINGO ANDERSEN ■ Hann er fertugur í dag en honum líður eins og þrítugum og finnst hann enn vera ungur þrátt fyrir að vera kominn á miðjan aldur samkvæmt því að meðal- aldur manna sé áttatíu ár. FRIÐRIK KINGÓ ANDERSEN Nafnið er danskt og hann segir menn jafnan hvá þegar hann kynni sig. Líður eins og þrítugum DAGSKRÁIN Í GRINDAVÍK Í DAG: 10.00 Tónlistaratriði frá Tónlistar- skólanum í Grindavík. 10.10 Þorsteinn G. Kristjánsson setur hátíðina. 10.15 Vigdís Finnbogadóttir heldur erindi. 10.40 Bergur Ingólfsson leikari kemur fram. 11.00 Hugmyndastofur – kaffi. 11.30 Niðurstöður úr könnun nemenda í 10 bekk. 12.00 Hádegishlé, léttar veitingar á staðnum. 12.30 Stúlknakór Tónlistarskóla Grindavíkur. 12.40 Kennarar úr Engjaskóla í Reykjavík ræða foreldrastarf. 13.20 Jón Baldvin Hannesson skóla- stjóri flytur erindi. 14.10 Hugmyndastofa – kaffi. 14.40 Guðbergur Bergsson rithöfundur flytur erindi. 15.15 Ráðstefnuslit.

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.