Fréttablaðið - 27.09.2003, Qupperneq 20
20 27. september 2003 LAUGARDAGUR
Það voru veitt einhver vefverð-laun í fyrra en mér fannst ég
nú ekki þekkja það net sem þar
birtist neitt sérstaklega vel,“ seg-
ir Óli Gneisti Sóleyjarson, sem
veitti vefverðlaun sín annað árið í
röð í vikunni. „Þetta virtust vera
einhverjir karlar í jakkafötum
sem voru að útdeila þessu en ég
beini sjónum mínum frekar að því
sem minna hefur farið fyrir í um-
ræðunni,“ bætir Óli við en blogg-
síður eru fyrirferðarmiklar á
verðlaunalista hans.
Rauða hættan
Óli er sjálfur æðsta yfirvald og
leggur smekk sinn til grundvallar
verðlaununum en hann segist þó
taka við tillögum. „Ég byrjaði að
fylgjast með hugsanlegum
kandídötum strax og ég hafði af-
hent verðlaunin í fyrra.“ Óli valdi
vinstra vefritið Múrinn.is besta
vefritið annað árið í röð og þar fyr-
ir utan hlutu tveir ritstjórnarmeð-
limir Múrsins, þeir Stefán Pálsson,
sagnfræðingur og Ármann Jakobs-
son bókmenntafræðingur, blogg-
verðlaun annað árið í röð. Stefán
varði titillinn „besti og frægasti
bloggari landsins“ og Ármann er
enn skemmtilegasti bloggarinn að
mati Óla. Vinstri slagsíðan á verð-
laununum er því nokkur en lætur
Óli stjórnmálaskoðanir sínar og
kunningsskap við ákveðna blogg-
ara hafa áhrif á sig?
Hégóminn kitlaður
„Múrinn er bara ósnertanlegur
og ég held að flestir séu sammála
því og lesi Múrinn óháð stjórn-
málaskoðunum,“ svarar Óli.
Hann segist aðspurður ekki
gera sér fulla grein fyrir því
hvaða þýðingu verðlaunin hafi
fyrir bloggara en telur þó víst að
einhverjir fái meiri umferð um
vefi sína í kjölfarið. „Nú veit ég að
Ármann Jakobsson hugsar ekki
um traffík en hann var mjög fljót-
ur að benda á það á síðunni sinni
að hann hefði fengið verðlaun.“ Þá
telur Óli víst að verðlaunin kitli
hégómann hjá sumum og bendir á
að „Stefán Pálsson vilji vissulega
verða frægasti bloggari á Íslandi.
Þeir sem færri lesa græða sjálf-
sagt einhverja traffík en ég veit
ekkert endilega hvort þeir vilji
það. Einhverjir verða kannski fúl-
ir yfir að ég sé að vekja athygli á
blogginu þeirra.“
Skemmtilegasti bloggarinn tvö
ár í röð, Ármann Jakobsson, fellur
væntanlega í þennan hóp hinna
hógværu en hann vill ekki ræða
þessa upphefð og telur bloggið
sitt síður eiga erindi í opinbera
umræðu.
Íslendingabók besti vefurinn
Íslendingabók er besti vefurinn
að mati Óla og tekur við þeim titli
af Baggalút sem vann í fyrra.
Fréttavefur Morgunblaðsins,
mbl.is, var besti fréttavefurinn í
fyrra en fréttavefur Steingríms
Ólafssonar, Fréttir.com, hlýtur
heiðurinn í ár. Fréttavefurinn
Pressan, sem Hrafn Jökulsson rit-
stýrði þegar hróður hennar var
sem mestur, fær hins vegar hinn
vafasama titil „mesta hrapið“ í ár.
Óli segist telja Steingrím hafa
náð að fylla upp í það skarð sem
varð til þegar Pressan fór að dala.
„Ég fór nú ekki að hugsa út í þetta
fyrr en ég var að ganga frá tilnefn-
ingunum en Pressan nýtti sér Net-
ið til að vera öðruvísi og það hafa
Fréttir.com líka gert. Pressan er
orðin einhvers konar bloggsíða
Andrésar Magnússonar þannig að
það er ekki mikið þangað að sækja
lengur nema maður vilji láta Andr-
és pirra sig. Pressan er því góð fyr-
ir þá sem vilja kvarta og kveina
undan bloggi en Andrés bloggar af-
skaplega sjaldan og er eiginlega
hálfgerður aumingjabloggari.“
Fréttir toppa í kreppu vef-
miðlanna
„Það er ljóst að Fréttir hafa
toppað og leiðin hlýtur að liggja
niður á við héðan í frá,“ segir
Steingrímur Ólafsson, ritstjóri
Frétta, „og því er kannski mál að
linni. Hafa Fréttir sagt sitt síðasta?
Er október upphaf endalokanna?“
Hann tekur undir það að hann hafi
nýtt sér það tómarúm sem skap-
aðist þegar Pressan fór að dala.
Það var mikil gróska í pólitísku
vefmiðlunum í kringum árið 2000
þegar netbólan var þanin í botn en
Óla finnst frekar lítið standa eftir
þar sem Múrinn drottnar á vinstri
vængnum og Vefþjóðviljinn er
eina raunverulega andsvarið
hægra megin. „Kreml.is var val-
inn fúlasti vefurinn í fyrra og það
er lágt á þeim risið núna og vefur-
inn virðist vera dottinn út úr öllu.“
Óli rekur kreppu vefmiðlanna til
þagnar Egils Helgasonar, sem hélt
úti vef Silfurs Egils á Strikinu á
sínum tíma. „Hjá Agli var hægt að
fá yfirlit yfir allt sem var að ger-
ast á pólitísku netmiðlunum og
vefur hans var miðstöð sem allir
voru að tala um en eftir að Egill
datt út er enginn miðpunktur.“
thorarinn@frettabladid.is
Salvör Gissurardóttir hefurbloggað um árabil og lætur
ekki síst til sín taka á femínísku
nótunum. Hún fékk Vefverðlaun
Gneistans fyrir að vera umtalað-
asti bloggarinn og tók titlinum
fagnandi á blogginu sínu:
„Mér hefur hlotnast mikil við-
urkenning. Þetta eru merkileg-
ustu verðlaun íslenskra blogg-
heima, fyllilega sambærilegt við
að vinna Edduverðlaun hinna
gömlu miðla. Að vinna slík verð-
laun þýðir að
maður hefur
náð langt, fátt
getur toppað
þetta nema
verða forseti
eða borgar-
stjóri eða ráð-
herra. Ég hef
verið að spá í
f o r s e t a n n
sem næsta
þrep...“ ■
Það urðu mjög margir argirþegar þeir áttuðu sig á því of
seint að þessi titill hefði legið á
lausu þangað til ég gerði tilkall til
hans,“ segir Stefán Pálsson, sem
hampar titlinum „besti og fræg-
asti bloggari landsins“. Stefán
segir engar alvarlegar tilraunir
hafa verið gerðar til að ná titlin-
um af honum. „Ég lít meira á það
sem svo að ég hafi helgað mér tit-
ilinn, eins og Hillary og sherpinn
hans voru fyrstir á topp Everest,
frekar en ég hafi unnið til hans.
Það þarf ekkert að diskútera það
meira.“
Stefán bætir því svo við að
hann telji það ekkert vandræða-
legt að hann hafi slegið skjald-
borg um titilinn. „Þetta er
bara svona þegar menn eru
komnir á ákveðinn stað, rétt
eins og tilteknir glæpa-
sagnahöfundar en þá verða
það fréttir í sumum blöðum
að þeir hafi ekki fengið til-
nefningar til verðlauna.
Einhver þarf að vera
bestur og á meðan ég
gegni því hlutverki þá eru
menn ekki að rífast og slást
um þetta. Ég held að þessi
góði drengur, Óli Gneisti,
hafi áttað sig á þessari stað-
reynd.“
Stefán telur eðlilegt að
verðlaunin taki mið af
skoðunum þess er veitir þau og
sér ekkert athugavert við vel-
gegni vinstrimanna. „Allt val mót-
ast af afstöðu þess sem skipar.
Hér áður fyrr voru vinstri menn
sakaðir um að stjórna menningar-
veldinu áður en Mál og menning
ákvað að brenna allt upp í inter-
netgeðveikinni og ég sé ekkert
óeðlilegt við að það sama gerist í
blogginu. Þetta er auðvitað lítið
samfélag sem er að verðlauna
sjálft sig þó að þetta sé ekki jafn
slæmt og í Eddunni þar sem tvær
bíómyndir skipta á milli sín tug-
um tilveitinga og álíka mörgum
verðlaunum, eða á Ólympíuleik-
um fatlaðra þar sem fjöldi kepp-
enda slagar upp í fjölda verð-
launagripa.“
Stefán segir það afrek út af
fyrir sig hjá Óla Gneista að veita
vefverðlaunin tvisvar í röð þar
sem „netheimar einkennast af út-
haldsleysi og þessi hafa því nán-
ast skapað sér sérstöðu í net-
bransanum. Ef hann afhendir þau
aftur að ári verður það með hrein-
um ólíkindum. Þetta er rakettu-
bransi og menn springa glæsilega
með einum hvelli og koma svo nið-
ur með prikinu þannig að þetta
eru sennilega nú þegar orðin lang-
lífustu netverðlaunin.“ ■
Vefverðlaun Gneistans eru flotteinstaklingsframtak en eru
bara einstaklingsframtak. Hann
vekur meðal annars athygli á sjálf-
um sér og öðrum
með þessu,“ segir
G u ð m u n d u r
Svansson, sem
hefur bloggað
á léninu www.-
svansson .net .
„Það mætti vera
miklu meira um
frumkvöðla sem
taka af skarið með þessum hætti“.
Guðmundur telur almennileg
vefverðlaun eiga fullan rétt á sér
og tekur undir það sjónarmið Stef-
áns Pálssonar að þó bloggsamfé-
lagið sé lítið séu margir að gera
góða hluti. „Menn ættu að taka sig
saman um að verðlauna það sem
vel er gert á Netinu,“ segir Guð-
mundur og bætir því við að hann
telji Stefán eiga vel inni fyrir titlin-
um besti og frægasti bloggarinn,
annað árið í röð. ■STEFÁN PÁLSSON
Telur sig besta og frægasta bloggara landsins. „Þetta er svipað
því að menn fari að tala um það að Megas sé búinn að vera
meistari svo lengi að það sé tími til kominn að hann
hætti og einhver annar taki við. Meistari Bjartmar til
dæmis. Þetta virkar bara ekki þannig.“
Besti bloggarinn:
Ætlar ekki niður með prikinu
Þetta er rakettu-
bransi og menn
springa glæsilega með ein-
um hvelli og koma svo nið-
ur með prikinu.
,,
GUÐMUNDUR SVANSSON
Er ánægður með framtak Gneistans en minnir á að einungis sé um
einstaklingsframtak að ræða og telur fulla ástæðu til þess að menn
taki höndum saman um að verðlauna það sem vel er gert á Netinu.
Svansson.net:
Fyrirmyndar
einstaklingsframtak
SALVÖR
GISSURARDÓTTIR
„Að vinna slík verðlaun
þýðir að maður hefur
náð langt.“
Umtalaðasti bloggarinn:
Merkileg verðlaun
HELSTU VEFVERÐLAUN
GNEISTANS 2003:
Besti vefurinn:
Íslendingabók
Besti fréttavefurinn:
Fréttir.com
Besta vefritið:
Múrinn
Mesta hrapið:
Pressan
Besti bloggarinn:
Stefán Pálsson
Skemmtilegasti bloggarinn:
Ármann Jakobsson
Umtalaðasti bloggarinn:
Salvör Gissurardóttir
Antibloggari ársins:
Svanborg Sigmarsdóttir
ÓLI GNEISTI SÓLEYJARSON
Veitir árleg verðlaun fyrir það sem er vel gert á Netinu. Hann bloggar sjálfur og hefur haldið úti dagbók á Netinu á slóðinni www.kaninka.net/-
oligneisti í eitt og hálft ár. „Ég fiktaði líka eitthvað við þetta árið 1999 en þá vissi ég ekkert hvað blogg var og hafði aldrei heyrt á það minnst.“
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/V
IL
H
EL
M
Gegn körlum
í jakkafötum
Bloggarinn Óli Gneisti tók upp á því að verð-
launa það sem vel er gert á Netinu í fyrra og
hefur nú afhent Vefverðlaun Gneistans annað
árið í röð. Hann segir verðlaun sín viðbrögð
við ládeyðu og öðrum verðlaunum sem hann
botnaði ekkert í. Sjálfur er hann vinstrimaður
og skammast sín ekki fyrir að hygla skoðana-
bræðrum sínum.